Norðurslóð - 14.12.1994, Blaðsíða 24
FréttahorniÐ
Nei, EKKI ERU ÞETTA fjárhúsin á Betlehemsvöllum en þó er alltaf yfir þeim einhver helgiblær.
Uin síðustu páska gengu félagar úr Ferðafélagi Svarfdæla upp á Kaldbak
toppnum.
Ferðafélagið
Vetrardagskráin
Ferðafélag Svarfdæla hélt aðal-
fund sinn þann 30 nóv. s.l. og var
þar lögð fram hugmynd að vetr-
ardagskrá sem fundarmenn síð-
an lögðu blessun sína yfir. Er
dagskrúin svohljóðandi:
Sunnudagur 1. janúar: Hin ár-
lega fjölskylduferð fram í
Stekkjarhús og til baka.
Sunnudagur 5. febrúar: Gengið
yfirTungur. Tungufell-Dæli.
Sunnudagur 5. mars: Skíðadals-
ganga. Klængshóll-Hvarf.
Laugardagur 15. apríl: Klaufa-
brekknaskarð. Lágheiði-
Klaufabrekkur (eða öfugt eftir
aðstæðum).
Sunnudagur 7. maí: Skeggja-
brekkudalur-Siglufjörður (eða
Fljót eftir aðstæðum).
Eins og sjá má er meginreglan
sú að fara eina ferð fyrsta sunnu-
dag hvers mánaðar. Undantekning
frá reglunni er aprílferðin sem
verður laugardag fyrir páska en sú
dagsetning hefur gefist félags-
mönnum vel og er hálfgerð hefð
orðin. Það er líka orðin hefð hjá
félögum í Ferðafélaginu að byrja
ferðaárið unt áramótin með léttum
fjölskyldugöngutúr fram í Stekkj-
arhús. Nú er ætlunin að fara strax
fyrsta janúar enda vart hægt að
í blíðskaparveðri. Myndin er tekin á
ákveðin
hugsa sér heilsusamlegri byrjun á
nýju ári. I Stekkjarhúsum verður
boðið upp á kaffi og te en þátttak-
endur leggja sjálfir til brauð og
annað meðlæti. Þá má geta þeirrar
reglu hjá Ferðafélaginu að verði
sökum veðurs ekki hægt að fara á
auglýstum dagsetningum eins og
oft gerist þá ferstast ferðin um
viku.
Það kont fram á fundinum að á
síðasta starfsári voru farnar 10
ferðir á vegum félagsins. Þátttak-
endur í þessum ferðum voru 176
talsins. Það gera 17,6 þátttakendur
að meðaltali í hverri ferð er reikn-
islistin bregst okkur ekki.
Vetrarsólí stráum.
Sorphirða hér á svæðinu hefur
eins og kunnugt er að undan-
förnu verið í höndum Gámaþjón-
ustu Norðurlands. Samningur
Gámaþjónustunnar við sveitarfé-
lögin rennur út 1. maí n.k. og nú
um mánaðamótin rann út frestur til
að gera nýjan samning. Málið hef-
ur verið tekið fyrir í sveitarstjórn-
um og er nú ljóst að áframhald
verður á samstarfinu á Dalvík, 01-
afsfirði, Arskógsströnd og í Hrís-
ey. Svarfaðardalshreppur hefur
hins vegar dregið sig út úr sam-
starfinu og hefur nú gert samning
við Stefán Friðgeirsson um sorp-
hirðu í hreppnum frá og með 1.
maí n.k. Astæðan er sú að Gáma-
þjónustan taldi sig ekki geta veitt
þá þjónustu áfram að sækja sorp
heim á alla bæi, vildi þess í stað
taka það úr 2-3 gámum en taldi sig
ekki geta lækkað þjónustugjaldið í
samræmi við það. Því ákvað
hreppsnefndin að ganga til samn-
inga við Stefán. Stefán hefur þó
ekki störf fyrr en 1. maí eins og
áður segir en þó mun liann fara um
sveitina á tveggja mánaða fresti í
vetur og hirða plast og pappír.
Arfell h/f afhendir Dalvíkurbæ
þrjár nýjar íbúðir 15. desem-
ber n.k. Fyrirtækið hefur verið að
byggja þessar raðhúsaíbúðir í
Skógarhólunt. í allt er Árfell h/f að
byggja fjórar íbúðir fyrir bæinn en
þeir þurfa ekki að afhenda eina
þeirra fyrr en næsta vor. Auk þessa
hefur Dalvíkurbær keypt tvær ný-
legar íbúðir sem falla inn í félags-
legt kaupleigukerfi svo alls verða
það sex íbúðir á árinu sem keyptar
verða.
Björgúlfur EA 312 kom nteð
Kolbeinsey ÞH í togi til Akur-
eyrar laugardaginn 3. des sl. Skip-
in höfðu verið á veiðum norðaust-
ur af Langanesi og trollið farið í
skrúfu Kolbeinseyjar. Börgúlfur
var sent sagt skammt frá og að-
stoðaði skipverja Kolbeinseyjar og
tók skipið í tog. Til stóð að Björg-
úlfur færi í siglingartúr í byrjun
desember en þar sem lítið hafði
fiskast m.a. vegna veðurs var karf-
inn og grálúðan sent út í gámum en
skipið hélt áfram veiðum og mun
landa í frystihúsið hér eða senda út
fisk í gámum núna til áramóta.
TímamóT
Afmæli
Þann 24. desember nk. verður 95 ára Guðrún
Björnsdóttir, áður til heimilis í Bjarnarhóli,
Dalvík, nú vistmaður á Dalbæ, Dalvík.
Norðurslóð ámar heilla.
Til lesenda
Norðurslóð sendir vinum og vandamönnum
um land allt bestu óskir um
gleðileg jól
og gœfuríkt komandi ár
með þakklœti fyrir samskiptin
á liðnum árum