Norðurslóð - 14.12.1994, Page 11
NORÐURSLÓÐ —11
Æskustöðvar Tryggva Svörfuðar, Brekka í Svarfaðardal, eins og þar var umhorfs um aldamótin.
Forsíða Spegilsins í maí 1950 þegar leikrit Tryggva, Jón Arason, var á fjölum
Þjóðleikhússins og olli miklum blaðadeilum.
Ovægin gagnrýni
Tryggvi var umdeildur og hlaut
mikla og oft neikvæða og niður-
drepandi gagnrýni fyrir leikrit sín.
Um leið og danskir og íslenskir
gagnrýnendur fóru hamföum í
greinum sínum tóku samt nokkrir
óbreyttir leikhúsgestir upp hansk-
ann fyrir skáldið. En yfirleitt var
gagnrýni mjög á einn veg - nei-
kvæð. Dönskum gagnrýnendum
þótti Regnen bera merki um byrj-
endagalla sem fælust í löngunt
samtölum. Höfundurinn þótti sýna
hæfileika, sem honum þó tækist
ekki að spila nægilega vel úr. í
Politiken er þess sérstaklega getið
að Islendingar í Kaupmannahöfn
hafi fjölmennt á frumsýninguna og
klappað ákaft. Það á þó varla að
skiljast á annan veg en þann. að
þeir hafi verið þar til að hylla sant-
landa, frekar en fagna miklu meist-
arastykki.
Leikararnir Paul Reumert og
Bodil Ipsen fóru með aðalhlutverk
í Den lille Verden í Konunglega
leikhúsinu árið 1938. Einn danskur
gagnrýnandi sagði að Tryggvi
hefði lítið batnað sem leikrita-
skáld. Sama gerist þegar sænskur
gagnrýnandi skrifar um beina út-
sendingu Sænska útvarpsins á Jóni
Arasyni. Leikstjórinn sjálfur var
reyndar sáróánægður með upp-
færsluna og lýsir því í bréfi til
Tryggva hvernig aðalleikarinn hafi
fengið stórmennskubrjálæði og
öskrað sig gegnum þrjá þætti. Til
að eitthvað heyrðist í hinum hafi
þeir fallið í sömu gryfju.
Arið 1949 tekur Konunglega
leikhúsið Jón Arason til sýningar.
Enn finna danskir gagnrýnendur
leikritun Tryggva flest til foráttu.
Þess er jafnvel krafist að leikhús-
stjóri segi af sér. Olafur Gunnars-
son frá Vfk í Lóni skrifar hins veg-
ar gagnrýni í Vísi og hælir leik-
ritinu mjög. Frammistaða leikara
og leikstjóra hafi hins vegar ekki
verið góð. I lokaorðum greinarinn-
ar hvetur Ólafur til þess að Þjóð-
leikhúsið taki Jón Arason til sýn-
ingar að ári.
Biskup veldur
blaðadeilum
Svo fór að Jón Arason var settur á
svið í Þjóðleikhúsinu haustið
1950. Haraldur Bjömsson leik-
stýrði en í aðalhlutverkuni voru
Valur Gíslason og Arndís Björns-
dóttir. Tryggvi hafði sjálfur þýlt
leikritið en Kristján Eldjárn verið
honum til halds og trausts. breytt
og bætt. Enn er gagnrýni í flestu
neikvæð. Dómar byggðust sumir á
þeirri skoðun að um sögulegt leik-
rit væri að ræða og breyting sögu-
legra staðreynda því ótæk. Af
þessu spruttu illskeyttar blaða-
deilur milli Kristjáns Eldjáms og
gagnrýnendanna Sigurðar Gríms-
sonar og Lofts Guðmundssonar.
Guðlaugur Rósinkranz þjóðleik-
hússtjóri hafði reyndar varað
Tryggva við því í bréfi að dr. Guð-
brandur Jónsson yrði lítt hrifinn.
Hann hefði hótað sér miklum
skömmum fyrir að sýna leikritið á
400 ára ártíðardegi Jóns Arasonar.
Lútherskt leikhús mætti ekki
heiðra katólskan biskup á minn-
ingardegi hans.
Dr. Guðbrandur stóð við orð sín
og birti í Alþýðublaðinu grein
undir fyrirsögninni Skrípamynd af
Jóni biskupi Arasyni. Þessi grein
var samfelldur reiðilestur um leik-
rit Tryggva og Þjóðleikhúsið.
Kristján Eldjám var einnig
skammaður fyrir það sent hann
hefði skrifað um leikritið. Dr.
Guðbrandur hafði reyndar aldrei
séð leikritið, aðeins lesið það á
dönsku en sagðist aldrei ætla að sjá
það. Hér er gripið niður í grein dr.
Guðbrands.
„En nú er leikritið farið á höf-
uðið, og þá vil ég efna orð mín, og
biðja Þjóðleikhúsið að hafa skarpa
skömm fyrir að hafa, þó í góðri
meiningu væri, vansæmt minningu
herra Jóns með því að sýna aðra
eins skrípantynd af honum og
þarna er gert. Til þess að stjórna
Þjóðleikhúsi verða menn að vera
þeirri háttvísi gæddir, að slíkt geti
ekki hent þá.“
Blaðið Spegillinn gerði á þess-
um árum gys að ýmsu í samtíman-
um og varð Tryggvi Svörfuður
með Jón sinn Arason að forsíðu-
efni og inni í blaðinu var skopgrein
um leikritið. Forsíðumyndin sýnir
Tryggva sem hafði unnið til verð-
launa fyrir Jón Arason í samkeppni
Þjóðleikhússins, frammi fyrir
þremur dómnefndarmönnum,
Guðlaugi Rósinkranz, Vilhjálmi Þ.
Gíslasyni op Indriða Waage.
Spadómurínn
í Þjóðleikhúsinu
Á árunum eftir seinni heimsstyrj-
öld samdi Tryggvi Spádóminn og
víst er að Þjóðleikhúsið sent tók
það til sýninga batt miklar vonir
við leikritið. I leikritinu er deilt á
hin eilífu átök í heiminum - þetta
er harmsaga mannkyns í einföld-
um dráttum. En dómarnir voru
hinir sömu og áður. Gagnrýnendur
sáu vart aðra ljósa punkta en leik-
tjöld Lothars Grund og frammi-
stöðu leikaranna. Leikstjórn
Indriða Waage var yfirleitt talin
ntisheppnuð. Nú bregður svo við
að Olafur Gunnarsson frá Vík í
Lóni er einna harðorðastur:
„Gallarnir eru svo margir að
óhugsandi er að telja þá alla upp
enda lítils virði að hafa fyrir því,
það er eins og að tala um líkams-
lýti í andvana fæddum kálfi.“
Sveinn Skorri Höskuldsson
segir líka íTímanum:
„Mig skortir algjörlega orð yfir
þetta „leikrit“. Eg veit ekki, hvað
á helzt að kalla það. Þetta er einn
dramatískur óskapnaður frá upp-
hafi til enda.“
Sýningar á Spádóminum urðu
fáar og leikhúsgestir sömuleiðis
fáir. Leikritið kolféll.
Einkenni á
leikritunum
Leikrit Tryggva eru að verulegu
leyti byggð upp á sálfræðilegum
skýringum vandamála. Fram yfir
1930 eru sálarlífslýsingar einráðar
en þá fer að bera meira á þjóðfé-
lagslegum leikritum. Tryggvi
hafði predikað að menn ættu að
hlúa að hinum innri manni í stað
þess að hlaupa í kapp við verald-
argæðin. Síðan verður gagnrýnin
þróttmeiri og tengdari þjóðfélags-
málum. Þessar breyttu áherslur
haldast í hendur við nýja stefnu í
leikritun og hörmungar í stríðs-
hrjáðum heimi. Meginkjatninn í
leikritum Tryggva er þó alllaf sá
sami, ástin.
Ástin er frá upphafi meginuppi-
staðan í leikritunum og undirrót
flækjunnar. Algengt er að hann
lýsti ástarsanibandi ungs fólks og
miðaldra eða gamals. Hrömun lík-
amans og sálarinnar er vandamál
og hvetnig þetta allt tengist kyn-
lífinu. Framan af er þjóðfélags-
myndin einskorðuð við borgara-
legt umhverfi og persónurnar
dæmigerðir fulltrúar miðstéttar og
borgarastéttar, í stofuverki. Al-
þýðufólk er aðeins til uppfyllingar.
Við af þessum borgaralegum hetj-
um taka svo hetjur Islendinga-
sagna.
Eins og ástin. er ótti sterkt afl í
leikritum Trygga Sveinbjömsson-
ar. Hann birtist í mörgum mynd-
um, svo sem ótti við blindu í leik-
ritinu Myrkri, ótti við elli og hrörn-
un líkamans í Levende Monu-
menter og í fleiri leikritum og ótti
við nútímaleg Ragnarök í Spádóm-
inum. Orðin „angst“ eða „ótti“
koma líka mjög oft fyrir í leikritun
Tryggva.
Ekki verður sagt að gamansemi
og fyndni sé stór þáttur í leikrit-
unum. Flest eru þau alvarlegs eðl-
is, jafnvel sorgarleikrit. Þeim lýkur
oft á dramatískan og dapurlegan
hátt, með skilnaði hjóna, drápi eða
sjálfsmorði söguheljunnar. En
þrátt fyrir þessa dökku hlið skín
alltaf í gegn einlæg virðing skálds-
ins fyrir lífinu og vonin um að
unga fólkið taki hinum eldri fram í
breytni.
Vonbrigði
Tryggvi Sveinbjörnsson sigraði
ekki heiminn með leikritun sinni,
eins og hann vissulega hafði vænt-
ingar um. Með mikilli þrautseigju
tókst honum samt að koma nokkr-
uin verka sinna á svalir virtustu
leikhúsa og nokkrum sinnum vann
hann til verðlauna fyrir leikrit sín.
Hann eignaðist fjölda vina innan
leikhúsveggja sem studdu hann og
hvöttu af kappi. En dóntar í blöð-
um voru honum sár vonbrigði.
Einkanlega tók hann nærri sér
dónta í íslensku blöðunum unt Jón
Arason, sem hann virðist hafa talið
sitt besta leikrit og bundið miklar
vonir við.
Telja verður harla ólíklegt að
þessi svarfdælski andans maður
leikhússins nái lengra en hann
gerði á sinni tíð. Leikrit Tryggva
virðast ekki hafa átt mikið erindi í
leikhús meðan hann lifði og það
verður vart séð að þau eigi heldur
erindi inn í þau núna.
(JBH setti saman upp úr eigin
BA-ritgerð við HÍ árið 1980)
FLUGLEIDIR
Umboð Flugleiða
Dalvík
óskav öllum Dalvíkingum og
Svarfdœlingum gleðilegra jóla
og farsœldar á nýju ári.
Þakka mikil og góð viðskipti á
árinu sem er að líða.
Verslunin Sogn
Goðabraut 3 • Sími 61300
Sólveig Antonsdóttir
Saga sýslunefndar
Eyjafjarbarsýslu
1874-1989
í tveim bindum
Höfundur: Hjörtur E. Þórarinsson á
Tjörn í Svarfaðardal
Ungmennasamband Eyjafjarðar hefur
tekið að sér að bjóða Eyfirðingum verkið
til sölu og getur fólk hvort sem er sent
pöntun til UMSE í pósthólf 136, 602
Akureyri eöa hringt í síma 96-24011.
Verði ritverksins er stillt í hóf því bæði
bindin, samtals 1.104 bls. með á sjötta
hundrað mynda, kosta aðeins 8.000 kr.