Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1995, Blaðsíða 2

Norðurslóð - 13.12.1995, Blaðsíða 2
2 — NORÐURSLÓÐ NORÐURSLOÐ Útgefandi: Rimar hf. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Hjörleifur Hjartarson, Laugahlíð. Fax: 466-1551 Jóhann Antonsson, Dalvík Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjöm. Sími 466-1555 Tölvuumbrot: Þröstur Haraldsson, Reykjavík Prentun: Dagsprent hf. Akureyri Grímur Thomsen: Jólavers Upp er oss runnin úr eilífðarbrunni sannleikans sól, sólstöður bjartar, birtu í hjarta, boða ossjól. Lifna við Ijósið liljur og rósir í sinni og sál, í hjartanu friður, farsœlukliður og fagnaðarmál. Kristur er borinn, kærleika vorið komið í heim; köld hjörtu glœðir, kærleikinn brœðir klakann úr þeim. Sólheima börnum sindrar af stjömum hinn suðlægi kross;* lífsins hann lýsi og leiðina vísi innra hjá oss. * Suðurkross, stjörnumerki í Suðurheimi. FréttahorN Frá því var greint í síðasta blaði að rífandi gangur væri í fram- leiðslunni hjá Sæplasti á Dalvík og unnið alla daga og allar nætur til að hafa undan eftirspum. Síðan þá hefur þó eftirspumin aukist til muna því nýverið var undirritaður sölusamningur við útgerðarfyrir- tæki í Frakklandi um smíði á fiski- kerum fyrir fjóra togara þess. Samningur þessi hljóðar upp á 25 milljónir króna og er um að ræða ein l .800 ker fyrir þessa einu pönt- un. Með sama áframhaldi er ljóst að stækka þarf verksmiðjuna og eru nú uppi áform í þá veruna. Fyrirtækið Norðurströnd er að fara út í vinnslu á ígulkerjum og hefur auglýst eftir 20 lesta báti til ígulkerjaveiða. Fyrirtækið sem fengist hefur við fiskverkun á nú orðið öll tæki til framleiðslunnar og er ekkert að vanbúnaði að byrja. Vonast menn hjá fyrirtækinu til að hægt verði að verka eitt til eitt og hálft tonn af ígulkerjum á dag en reiknað er með að tonnið gefi af sér um 100 kg af hrognum sem Japanir eru sólgnir í og telja að auki kyngetuna. Að sögn má fá 2- 3.000 krónur fyrir kílóið af ígul- kerjahrognum svo það er eftir nokkm að slægjast. JVIinning Daníel A. Daníelsson s Argerði Fæddur 21. maí 1902 - Dáinn 22. nóvember 1995 Að kvöldi 22. nóvember barst sú fregn hér um norðurslóð Eyja- fjarðar, og síðan um land allt að látinn væri fyrrverandi héraðs- læknir, Daníel A. Daníelsson. Meðal Svarfdæla var hann jafnan kallaður Daníel í Argerði. Daníel var Vestfirðingur að ætt og uppruna, fæddur 21. maí 1902 á Hóli í Valþjófsdal í Önundarfirði. Hann var af traustum bænda og sjómannaættum, tvo bræður sína missti hann í sjóinn fyrir vestan en þriðji bróðir hans er Finnur frv. togaraskipstjóri á Akureyri. Hingað flutti Daníel 1944 með fjölskyldu sína, sem var eiginkon- an, Dýrleif Friðriksdóttir, d. 19. júní 1994, og dóttirin Guðný. Síð- an bættust í hópinn synimir Friðrik og Bjami. Héraðslæknirinn Daníel var einstaklega samviskusamur og dugmikill læknir og hugsaði ekki á brottflutning eftir að fjölskyldan hafði komið sér vel fyrir í nýja húsinu sínu við ána, þar sem hún sveiflar sér breið og lygn upp að Argerðishólnum. Ég held mér sé óhætt að segja, að Daníel læknir naut til hins síðasta fyllsta trausts fólksins í úteyfirska lækishérað- inu: Arskógsstrendinga, Hrísey- inga, Svarfdælinga og Dalvíkinga. Þó að læknirinn Daníel rækti starf sitt með ágætum mundi það eitt ekki halda nafni hans á lofti með komandi kynslóðum. En hann var svo mikill bókmenntamaður, að fáir munu finnast hans líkar hér á norðurslóð. Hann fékkst öðm fremur við þýðingar úr erlendum málum, sænsku, þýsku og ensku. Hér nægir fullkomlega að láta þess getið að á efri ámm þýddi hann allar sonnettur Shakespeares á voratungu. Þæreru 154 að tölu, 14 Ijóðlínur hver, allt rímað undan- bragðalaust eftir íslenskum brag- reglum. Allra síðustu árin heillað- ist hann mjög af fransk-spönskum ljóðastíl hinna merkilegu Trúba- dúra, sem líka áttu sér ljóðavett- vang í Norður-Afríku. Daníel gekk svo rösklega til verks, að unnt var á síðastliðnu ári að gefa út ljóðmæl- in Andalúsíuljóð arabískra skálda Það er sannkölluð bókmennta- perla, sem metin verður að verð- leikum meðal komandi ljóðunn- enda. Ég og fjölskylda mín áttum því láni að fagna að kynnast Argerðis- hjónunum náið einkum á efri árum þeirra. Daníel þurfti á viðmælend- um að halda að ræða bókmenntir einkum og sér í lagi, ljóð og annað bókmenntakyns, sem honum bár- ust í hendur. Það varð smátt og smátt árviss þáttur í jólahaldi okkar að aka á Þorláksmessukvöld niður í Argerði þar sem boðið var til veislu og efnt til söngs og glaðværðar. En hvað sem annars sungið var þá endaði gamanið við orgelið niðri í for- stofu þar sem síðast var leikið og sungið eftirlætisljóð okkar allra við texta Jónasar og húsbóndinn lék undir: Efst á Arnarvatnshœðum oft hefég fáki beitt... Þessi þáttur í jólagleðskap okk- ar verður ekki ræktur meir. Þess verður nú saknað Ég votta minningu Argerðis- hjónanna dýpstu virðingu okkar og við sendum bömum Daníels og Dýrleifar og öðra skylduliði inni- legar samúðarkveðjur. Hjörtur E. Þórarinsson Daníel nú dynur dúnmjúk klukka ykkar endurfundum aftur eftir hafti þrungið ár sem aðeins bið var örþreyttum og mettum. Heill þér skáld, nú skulum skilja vinir —heilir. Steinunn P. Hafstað Fyrir lausn þessarar myndagátu eru engin verðlaun utan þau sem í henni SJÁLFRI ERU FÓLGIN.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.