Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1995, Blaðsíða 13

Norðurslóð - 13.12.1995, Blaðsíða 13
NORÐURSLÓÐ —13 voru bomir inn í bæinn, einnig stórir sekkir af hveiti, rúgmjöli, haframjöli og sykri. Við systkinin fengum ekki að sjá allt sem keypt var þótt við stæðum vaktina vel. Einhverju var stungið undan. En næstu daga fór frænka að sníða og sauma margs konar fatn- að handa einhverjum börnum sem vantaði föt fyrir jólin. Við þekkt- um þau ekki, þau voru svo langt í burtu, en hún fékk, sagði hún, okk- ur til að máta fötin. Það var undar- legt að þessi börn voru næstum alveg jafn stór og við! Undir niðri vissum við hvernig var í pottinn búið en sögðum lítið um það. Og eitt er víst, að við urð- um ekkert hissa þó að við fengjum þessi föt á aðfangadagskvöld í pakka eða værum bara klædd í þau. Engin jól án jólatrés Allur bærinn var þrifinn hátt og lágt fyrir jólin; það var mikið verk. eg man að grænsápa og steinolía voru hreingerningaefni sem voru mikið notuð. Olíulampamir sem voru hreinsaðir reglulega allan veturinn, voru enn betur pússaðir ef hægt var, og þegar búið var að þvo lampaglösin og þurrka, voru þau borin upp að ljósinu, og ef ein- hver minnsti skuggi eða blettur sást, var andað í annan endann svo myndaðist gufa og svo pússað og pússað, þar til glasið var tárhreint. Við bjuggum til jólapoka, ýmist brugðna eða límda saman eins og kramarhús. Alla vega litur, glans- andi pappír var aðalefnið. Fyrstu minningar mínar um jól- in heima á Sökku eru svo fast- tengdar jólatrénu að í huga mínum vom það jólin sjálf. Jólatréð var klætt iðjagrænu krækiberjalyngi, skreytt nokkrum jólakúlum, litríkum fuglum með stórt, hvítt stél, marglitum, brugðn- um jólapokum með nokkrum rús- ínum í, brjóstsykri og nokkrum súkkulaðimolum. Og að auki voru litlir, íslenskir pappírsfánar, límdir á langa snúru sem var lögð í sveiga utan um tréð. Jólatréð stóð í bað- stofunni með fallega stjömu á toppnum og öll litlu kertaljósin. Mér er enn í fersku minni þegar Jóna, nafna mín og frænka var að hasta á okkur systkinin einhverju sinni, stuttu fyrir jól og sagði: „ Ef þið verðið ekki þægir, krakkar, fara jólin fyrir neðan garð!“ Það var skelfileg tilhugsun! Ég sá fyrir mér alskreytt og ljósum prýtt jóla- tréð koma svífandi í lausu lofti, þó lágt, yfir götutroðningana fyrir neðan Hánefsstaði og líða áfram fyrir neðan túnið heima og svo hvarf það bak við gamla fjósið sem skyggði á útsýnið. Mikið ætlaði ég að vera þæg fram að jólum svo þetta gerðist ekki. Sennilega höf- um við bara öll verið þæg, því í alvörunni þurfti ég ekki að horfa á jólin fara fyrir neðan garð. Ég minnist þess vel þegar pabbi fór með okkur eldri systkinin á Þorláksdag út og upp fyrir Asa til að safna krækiberjalyngi á jóla- tréð; það var ofurlítill lausanjór en gott að ganga. Hann tók með sér reku og mokaði ofan af nokkrum þúfum. Það var eins og hann vissi altaf hvar best var að leita að lyng- inu. Það kom í ljós iðjagrænt und- an hvítri mjöllinni og hann sýndi okkur hvemig best væri að ná því upp án þess að rífa það upp með rótum. Pabba var annt um allan gróður og ekki máttum við taka of mikið af hverri þúfu. Þegar hann taldi að nóg væri komið til að klæða tréð, söfnuðum við lynginu í strigapoka og héldum heim. Uppi á framloftinu var geymdur gamall trjástofn með mörgum göt- um á bolnum og samanbundnir, gildir, mislangir vírbútar. Þetta sótti pabbi á aðfangadagsmorgunn og fór með inn á baðstofugólf, ásamt lynginu. Nú stakk hann vír- bútunum í götin á trjábolnum, þeim lengstu neðst og áfram upp eftir lengd, uns þeir stystu komu efst. Til vinstri: Mynd úr garðinum á Sökku hjá Gunnluugi og Rósa. Prestshjónin á Völlum, Jóna og sr. Stefán í heimsókn ásamt börnum sínum Gunnlaugi, Ingibjörgu og Stefaníu Rósu. Að neðan: Svarfdælskir bændur af austurkjálka um 1950, fremri röð frá vinstri: Gísli á Hofi, Sigvaldi í Hofsárkoti, Ari á Sökku, Valdemar Snævarr, Kristján á Klængshóli. Aftan við: Gestur Guðmundsson kaupamaður á Völlum, Rögnvaldur í Dæli, Þorleifur á Hofsá, Björn í Ölduhrygg, Kristján á Uppsölum. Sökkukrakkarnir, frá vinstri: Hall- dóra, Jóna, Halldór, Dagbjört og Þorgils á innfelldri mynd. Hann vildi ekki vera með hinum krökkunum, bara hjá mömmu. Til hægri: Svarfdælskar stúlkur í húsmæðraskóla, frá vinstri: Kristín Ingólfsdóttir, Sælu, Petra Antons- dóttir, Hrísum, og Jóna á Sökku. Þá var að klæða tréð. Pabbi byrjaði að binda lyngið fremst á endann á efstu greinunum og end- aði inn við bolinn Þannig klæddi hann allt tréð. Auðvitað vorum við að hjálpa honum eða þóttumst gera það. Svo var farið með tréð inn í Suðurhús og við máttum ekki sjá það fyrr en mamma og pabbi voru búin að skreyta það og það var orðið heilagt, þ. e. klukkan 6 síðdegis. Ketill Könnuson Gestir sem komu á jólaföstu voru nefndir jólasveinar og jólameyjar. Byrjað var að skrifa nöfn þeirra niður á fyrsta sunnudag í aðventu. Einn heimilismaður sá um að skrifa nöfnin á miða sem síðan voru brotnir saman. Karlmanns- nöfnin voru sett sér og kven- mannsnöfnin sér. Svo drógu karlar kvenmannsnafn og konur karl- mannsnafn á aðfangadag eða jóla- dag og var þá oft glatt á hjalla. A einn miðann var skrifað „Ket- ill Könnuson" og á annan „Kanna Ketilsdóttir“. Þau sem drógu þá miða urðu að gefa kaffi einhvem tíma um jólin. Loftkökur og „röfl“ Þær bökuðu mikið fyrir jólin, mamma, frænka og Rænka. Frænka kom ekki nálægt bakstri nema fyrir jólin. Hún tók til í og hnoðaði hvert smákökudeigið á fætur öðru. Það var minna um að deig væri hrært þá, enda engar hrærivélar til. Mamma og hún og hún gerðu svo sýrópskökur, hálfmána, sprautu- kökur, gyðingakökur, loftkökur („Þingeyinga"), „röfl“ o. fl. ; þar fyrir utan tertur og formakökur. Mamma lagaði „röflið" ein og sjálf og enginn veit enn í dag uppskrift- ina. Það var mjög ljúffengt. Rænka sat á stól framan við eldavélina, rjóð og sveitt af hitan- um sem af henni lagði. Það var viss kúnst að leggja eldivið í eld- hólfið svo hæfði hverri brauðteg- und. Rænka passaði ofninn en mamma tók af plötum og raðaði í kassana. A þessum tíma keypti pabbi kol til að nota með sverði og taði; fannst mömmu það mikil bót. Ég man þegar ég var að mynd- ast við að hjálpa til að setja á plötu að það var óskaplegt vandaverk. Engin kaka mátti teygjast eða af- lagast og hnoðaðar kúlur áttu að vera nákvæmlega jafn stórar. Að búa til fallegt S eða O úr sprautu- kökudegi var ekki á allra færi. Allir vasahnífar á lofti Laufabrauð var gert nokkrum dög- um fyrir jól. Laufabrauðsdagurinn var merkilegur dagur. Allir á heimilinu hjálpuðust að, aldnir sem ungir. Þegar við systkinin komum á fætur, var mamma búin að laga stór og mikil deig sem hún hélt svo volgum nálægt eldvélinni. Karlmennirnir komu inn frá útiverkum eins fljótt og hægt var, þvoðu sér og fóru í hrein föt. Pabbi safnaði saman öllum vasahnífum á bænum og brýndi ef þess þurfti. Mamma sá um að þeir væru hrein- ir; hún kærði sig ekki um fjósalykt í laufabrauðið. Búið var að þvo og þurrka laufabrauðsbrettin. Svo ótrúlegt sem mér finnst það nú, er það samt satt að fólkið sat á rúmunum með brettin á hnjánum og breiddi kökuna út á þeim með handfangalausum keflum. Það breiddu alltaf tveir út. Annar þynnti kökuna ofurlítið og hinn gerði hana eins þunna og hún átti að vera og skar hana undan venju- legum matardiski eða skál. Þegar nokkrar kökur voru komnar upp á borð, var farið að skera út. Lök og dúkar voru breidd yfir rúmin í Norður- og Suðurhúsi til að leggja kökurnar á. Mörg falleg listaverk urðu til þennan dag og önnur minna falleg; það gerði ekkert til, þetta var allt svo gaman, allir að vinna að því sama og spjölluðu og hlógu. það var liðið alllangt á nóttu þegar búið var að breiða út. skera og steikja 350-400 kökur. Jólahátíðin A aðfangadag var jólamaturinn borðaður í eldhúsinu, oftast kl. hálf fjögur síðdegis; það var steik og allskonar meðlæti að þeinar tíðar hætti. Eftirmaturinn var þykkur hrísgrjónagrautur með rúsínum í, kanel og sykri og rjómablöndu út á. Piltarnir hröðuðu sér við úti- verkin en pabbi gleymdi ekki að gefa dýrunum aukatuggu og hann lét loga ljós á lugt hjá þeim þar til farið var að sofa um kvöldið. Allir voru komnir í sparifötin fyrir kl. 6, það mátti ekki bregðast. Þá las pabbi jólaguðspjallið og hug- vekju. Eg man að einu sinni las hann úr bók Haraldar Níelssonar, Arin og eilífðin. Eftir lesturinn var jólatréð fært á mitt baðstofugólfið og kveikt á litlu, marglitu, snúnu kertunum og við gengum hönd í hönd kring um tréð og sungum jóla- sálma og ljóð. Vissir sálmar voru alltaf sungnir eins og t. d. I Betle- hem, Jesús, þú ert vort jólaljós, Sem börn afhjarta og Heims um ból. Mér er minnisstætt þegar nafna mín bað um að sunginn yrði sálm- urinn I dag er glatt í döprum hjört- um. Hvers vegna, hugsaði ég, var hún að tala um döpur hjörtu á þess- ari hátíðastund? Nú skil ég þessi orð betur og öðru vísi. Nú voru jólagjafimar afhentar. Þær voru ekki eins veglegar þá eins og í dag en þær glöddu engu síður. Síðar um kvöldið hitaði mamma súkkulaði, dúkaði borðið í baðstofunni og þangað voru borin kynstrin öll af smákökum og öðru sætabrauði. Kerti og spil Garnla baðstofan var orðin eins og ævintýrahöll með kertaljósum í hverjum krók og kima og músa- stigasveigum í loftinu. Anganin af súkkulaðinu, lynginu og vaxinu er ógleymanleg! Á jóladag fóru allir til rnessu sem vettlingi gátu valdið. Jólaboð- in voru ríkur þáttur í jólahaldinu. Farið var í Hánefsstaði,Velli, Hof og Tjöm og fólkið frá þessum bæj- um endurgalt síðan heimsóknirnar. I þessum boðum var ætíð glatt á hjalla; mikið var spilað og farið í leiki. Fullorðna fólkið spilaði aðal- lega göntlu vist og brús en yngra fólkið hjónasæng, gömlu jómfrú, rauðskegg og fleira. Síðan var far- ið í leiki, svo sem „að telja bækur Móses“, „stokkurinn liggur", „teikna tunglið“, „láta skærin ganga“, að ógleymdri „flugferð". Við systkinin áttum ákaflega gott heimili. Eg held að við höfum búið við hæfilegan aga; við bárum virðingu fyrir foreldrum okkar og elskuðum þá. Viljandi gerðum við þeim ekki á móti skapi. Ég er inni- lega þakklát fyrir það veganesti sem ég fór með úr foreldrahúsum en hvemig mér hefur tekist að nýta það er svo annað mál. J.J.D.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.