Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1995, Blaðsíða 10

Norðurslóð - 13.12.1995, Blaðsíða 10
10 — NORÐURSLÓÐ Dabbis buste Þegar faðir minn stundaði nám í Kaup- mannahöfn á árunum fyrir seinni heimsstyrj- öldina var hann í miklu vinfengi við sveit- unga sinn Tryggva Sveinbjömsson sendi- ráðsritara og fjölskyldu hans. Tryggvi var leikskáld, en mun nú kunnastur af róman- tískri lýsingu Þórbergs í Islenskum aðli. Davíð Stefánsson var mikill vinur Tryggva, sem var einn af samferðarmönnum hans í hinni frægu Ítalíuferð 1922 og dvaldist Davíð gjarna hjá honum þegar hann var staddur í Danmörku. Tryggvi bjó ásamt konu sinni Bodil og tveimur sonum, Sigurði og Steina, í Farum þar sem heitir í Svörtumýri, á fögrum stað umluktum skógi, sem nú er löngu runninn saman við þéttbýli stórborgarinnar. Þarna bjuggu þau í sambýli við dönsk hjón Jacob- sen að nafni. Maðurinn var myndhöggvari ágætur í frístundum, þó hann gegndi annars borgaralegu starfi á kontór einhvers staðar inni í borginni, og var hann af heimafólki þarna í Svörtumýri aldrei nefndur annað en Hugger eða Huggeren, en kona hans hét Trine. Fyrir þessi tengsl æxlast það síðan með einhverjum hætti sem ég kann ekki frá að greina að Huggeren mótar af Davíð Stefáns- syni forláta brjóstmynd í leir og eru það afsteypur af þeirri sömu mynd sem tróna nú mér vitanlega á þremur stöðum hérlendis: í minningarlundi í Fagraskógi, í Davíðshúsi á Akureyri og loks í Þjóðleikhúsinu hér sunn- an heiða. A þessum stöðum umgöngumst við hana sem virðulega táknmynd um skáld sem er eiginlega ekki mennskt lengur, held- ur komið á stall. Líða svo áratugir og allt safnast þetta eldra Svörtumýrarfólk til feðra sinna og Davíð líka, allir utan Trine kona Huggerens. Faðir rninn hélt alltaf sambandi við hana og dag einn 1970 berst honum bréf frá henni þar sem hún segist vera að taka saman föggur sínar og búa sig á elliheimili. Við þá iðju hafi fyrir henni orðið einn gripur sem hún kveðst endilega vilja gefa foreldrum mínum, nefnilega eins og hún orðar það á sínu fagra móðurmáli: „Dabbis buste“. Þetta er þegið með þökkum og þar kemur að til landsins berst kassi mikill frá Trine og reynist innihalda upphaflega gifsafsteypu af því virðulega höfði Davíðs Stefánssonar sem Huggeren mótaði í leir. Bústan var síð- an geymd á háalofti hér í bænum um nokk- urra ára skeið, en loks kom það í minn hlut fyrir tæpum tíu árum að aka henni norður í land og afhenda Amtsbókasafninu á Akur- eyri lil ævinlegrar eignar og þar er hún nú eftir því sem ég best veit. Þessi norðurferð okkar Davíðs verður sjálfsagt aldrei talin jafnþýðingarmikil og Italíuferðin, síst af öllu fyrir hann, en ég hef rakið þessa ómerkilegu sögu hér vegna þess að ferðin, eða kannski öllu heldur farangur- inn varð mér tilefni hugsana um Davíð og skáldskap hans, flug hans og hrap, hugleið- inga um skáld á stalli og örlög þeirra. Þau fljúga varla á stallinum og þurfa kannski að hrapa þaðan til að vekja áhuga á ný. Ég komst að þeirri niðurstöðu að Davíð Stef- ánsson kynni að vera einskonar fórnarlamb of mikils hátíðleika í bland við ásakanir um of mikinn léttleika. Þetta var nógu áhugaverð blanda til þess að ég ákvað að gefa Davíð séns eins og það heitir. Ég ákvað að strekklesa nú bara loks- ins öll ljóðin hans opnum huga eins og mað- ur og gá hvort hann væri jafn andskoti væm- inn og leiðinlegur og ég hafði fyrir satt, hvort hann væri sá uppskrúfaði glamrari sem hann var haldinn í mínum kreðsum á mínum horfnu gáfumannsárum. Skemmst er frá því að segja að sá lestur varð til þess að ég skipti allrækilega um skoðun á kveðskap Davíðs. Eða öllu heldur öðlaðist skoðun á honum eftir að hafa kom- ist yfir fordómana. Þegar Davíð Stefánsson lést 1. mars 1964, aðeins tæpu ári áður en hann hefði orðið sjötugur hafði hann náð slíkri stærð sem þjóðskáld, að ekki þótti duga minna en að halda heilar þrjár athafnir yfir honum látn- um. Fyrst fór fram ein slík í Akureyrar- kirkju, þar sem Akureyringar fjölmenntu. Því næst var húskveðja heima í Éagraskógi en þangað flykktist fjöldi manns úr nærliggj- andi sveitum, og svo loks vegleg útför frá Möðruvallakirkju þar sem skáldinu var búin hinsta hvíla við hlið foreldra sinna og ætt- Þórarinn Eldjárn skrifar menna. Öll þjóðin syrgði og allir höfðingjar landsins, veraldlegir og andlegir voru við- staddir. Þar á meðal var annað þjóðskáld, Tómas Guðmundsson, og er til saga af því sem segir ef til vill eitthvað um stemmning- una: Maður nokkur hitti Tómas á förnum vegi ekki löngu eftir útför Davíðs og segir einhvem veginn sem svo við skáldið: Jæja, þá er henni sem sagt lokið þessari útför Dav- íðs? En þá á Tómas að hafa svarað: - Ja, hún er að minnsta kosti mjög í rénun. Þetta var auðvitað fyndið hjá Tómasi, en var þetta rétt? Var ekki útförin bara rétt að byrja? Er það ekki upp úr þessu sem Davíð fer að fara alveg úr tísku? Ég minnist þess að um þetta leyti varð það nánast eins og hluti af dagskipan ungra manna sem þóttust vera að grauta í skáldskap og fylgjast með bók- "menntum, hér syðra í það minnsta, að tala af eins mikilli fyrirlitningu og hægt var um Davíð Stefánsson og kveðskap hans. Oftast auðvitað án þess að hafa lesið nokkuð af ljóðum hans. í besta falli höfðu menn kannski heyrt Abbalahblá og Rokkarnir eru þagnaðir eða Sestu hérna hjá mér sem síð- asta lag fyrir fréttir. Og slíkt tal hafði reyndar hlotið uppá- skrift hinna æðstu páfa og goða því um þess- ar mundir birtust á prenti brot um skáldskap sem Steinn Steinarr hafði sett á blað 1952 og þar er komist svo að orði: „Okkur hefur einnig verið kennt það að Davíð Stefánsson frá Fagraskógi sé mesta núlifandi skáld íslensku þjóðar- innar. Það má vel vera að svo sé, en þá vil ég leyfa mér að fullyrða það að hinir séu býsna lélegir. Og sé nokkur einstakur maður ábyrgur fyrir eymd og niðurlægingu kveðskaparins á sein- ustu 20-30 árum þá er það hann.“ Og svo klykkti Steinn út með þessum glæsilegu orðum sem gerðu alveg útslagið og sannfærðu mann endanlega um að það hve gjörsamlega Davíð væri úti að aka. Svo lélegur að ekki einasta þurfti maður ekki að lesa hann heldur átti maður ekki að gera það. Það gat beinlínis verið hættulegt og haft slæm áhrif á manns eigin ferð um djúpmiðin ef maður hafði áður verið að þvælast urn á slíkurn grynningum og ef til vill laskað fley sitt. Töfraorðin hljómuðu svona: „Ekkert ljóðskáld annað hefur flutt með sér inn í listina svo billegan og forheimskandi áslátt." Þessi skoðun hefur síðan orðið ríkjandi hjá þeim sem erfðu bókmenntastofnunina. Davíð hefur ábyggilega sjálfur fundið fyrir þessu viðhorfi, þó hann héldi auðvitað vin- sældum sínum meðal almennra lesenda af eldri kynslóð og eldri fræðinga. I seinni bók- um hans vottar greinilega fyrir því hér og hvar að hann er með hugann við þetta. Þann- ig hefst td. ljóðið Stormahlé í Ljóðum frá liðnu sumri, sem út komu 1956: Oll byggðin man hve bjart var um þig áður, því bœði varst þú elskaður og dáður, uns gleðin hvarfog gekk í björg með álfum. Eða stutt ljóð úr sömu bók, Utigöngu- hestur: Er ungir folar fitna inn við stall, sem flestir verða aðeins markaðsvara, má gamall jálkur líkt og freðið fjall á fannabreiðum einn og gleymdur hjara. Hann krafsar gadd, uns kelur hófog legg, og koldimm nóttin ógnar sínum gesti. En stormakófið kœfir brostið hnegg í klakabörðum útigönguhesti. Hart er að verða að híma undir vegg og hafa verið gœðingurinn besti. Kristján Eldjárn og Huggeren í Svörtumýri vorið 1937. Þama kann einhverjum að þykja sem gæti nokkurrar beiskju, en staðreyndin er þó sú að þessi tilfinning verður alls ekki ríkjandi í seinni bókum Davíðs. Og Síðustu Ijóð, tí- unda og síðasta ljóðabók hans sem kom út 1966 er sterk bók. Hún er alls ekki nein ruslakista, eins og Ólafur Briem hefur bent á, heldur var handrit hennar fullfrágengið og samansett af höfundinum sjálfum áður en hann lést. Það er ekki lítið afrek að enda með slíkri bók eftir fjörtíu og fimm ára samfelld- an útgáfuferil þar sem oftast líða tvö, þrjú og upp í sex ár milli bóka, ef undan er skilið ca 10 ára hlé sitt hvoru megin við Nýja kvœða- bók sem út kom 1947. En hvað var Steinn að meina þegar hann tal- ar urn billegan og forheimskandi áslátt? Hann er bara ósköp einfaldlega að gera lítið úr því sem var aðalsmerki Davíðs frá fyrstu tíð, því sem hreif alla þjóðina með sér, það er að segja léttleikanum og ljóðrænunni. í raun er það svo sem ósköp eðlilegt að tíska sveiflist til og frá og þeir sem á eftir koma reyni að fiska á öðrum miðum. Og Davíð hefur áreiðanlega snemma gert sér þetta ljóst og jafnvel verið undir það búinn svo sem heyra má af ljóðinu Einn kemur þá annar fer úr I byggðum , 1933: Það heldur allur fjöldinn, sem hefur mörgu að sinna, að hœtta sé áferðum, efbreytt er gömlum sið, að gcefa heimsins hvíli á verkum sem þeir vinna, og vonlaust sé um allt - efþeirra missti við. Þeir hafa hvorki tíma né tök á því að deyja og treysta ekki á aðra né þeirra háttalag, en svoferþó að lokurn, að árin bakið beygja og bœgja þeimfrá störfum einn góðan veðurdag. Ogfœsta þeirra grunar, sem fellur þyngst að hverfa, hvefáir leggja á minnið að þeir hafi verið til. Þeir gleyma hverjir sáðu, sem uppskeruna erfa, og œskan hirðir lítið um gömul reiknings- skil. Við iðjumannsins starfi tekur annar sama daginn, og efhann deyr að kvöldi tekur nœsti maður við. Lífið yrkir þrotlaust... en botnar aldrei braginn, og breytirfyrr en varir um rím og Ijóðaklið. Léttleikinn og ljóðrænan voru þó síður en svo eitthvað sem hægt er að segja að Davíð hafi fest algjörlega í. Hann átti miklu fleiri strengi en svo. En þetta sem Steinn lét fara svona í taugarnar á sér, er einmitt það sama og aðrir hafa talið skipta mestu í ljóðlist Davíðs. Tómas Guðmundsson skrifaði svo um Davíð sextugan 1955: „... vegna þess hversu Davíð Stefáns- syni hefur tekist öðrum skáldum frem- ur að ná eyrum alþjóðar, hefur tjöldi fólks um allt land og af öllum stéttum tamið sér að nýju lestur góðra ljóða og lært að meta þau. Hann hefur því ekki aðeins fært út landamerki íslenskrar ljóðlistar að því er tekur til viðfangs- efnis og stíls, heldur hefur hann í sama mæli stækkað lesendahóp íslenskra ljóðskálda mjög verulega." Og Steingrímur J. Þorsteinsson orðar svipaða hugsun þegar hann segir um Davíð í grein 1965 að hann hafi ekki aðeins átt „hlut að því að tengja kveðskapinn innbyrðis, heldur einnig að treysta böndin milli skáldskaparins og fólks- ins. Hann var sterkasti þáttur líftaugar- innar milli ljóðs og þjóðar." Ég held þau séu ekki ýkja mörg skáldin á seinni árum sem hægt væri að komast þann- ig að orði um. Mörg þeirra hafa reyndar (amk. ómeðvitað) unnið markvisst að því að fækka ljóðaunnendum. Samt er nú svo komið að þegar bók- menntafræðinemar í Háskóla íslands gengu til eins konar kosninga fyrir nokkrum árum um hverjir ættu að skoðast sem helstu skáld og höfundar tuttugustu aldar á íslandi þá komst þar enginn Davíð Stefánsson á blað. Og reyndar ekki Tómas Guðmundsson held- ur og enginn Guðmundur Böðvarsson. Þetta er vissulega athyglisvert og táknrænt en ger- ir reyndar ekkert til, það er ekki á þeim vett- vangi sem endanlega verður skilið rnilli feigs og ófeigs í íslenskum bókmenntum. Verra var hins vegar að sjá þegar ég fór á samkomu í Þjóðleikhúsinu sl. vor til að minnast 100 ára afmælis Davíðs hvað með- alaldur viðstaddra var hár. Ég hygg hann hafi komist niður í 77 ár eingöngu vegna þess að ég var með þriggja ára son minn með mér. En nú þykist ég sjá af ýmsum teiknum að þetta sé að breytast. Mér sýnist að nokkurt endurmat fari nú frarn. Ég vona samt að eng- inn skoði þessi fátæklegu orð mín sem ein- hvers konar útfyllingu á umsóknareyðublaði fyrir Davíð Stefánsson um úthlutun úr jöfn- unarsjóði ofmetinna og vanmetinna, hann þarf ekkert á slíku að halda. Hann vissi sjálf- ur betur en aðrir hvers biðja skyldi dísina sem úthlutar því sem máli skiptir: Snert liörpu mína. Svo einfalt er það. Og það gerði dísin alveg nógu oft við hörpuna hans. Aslátturinn á slíka hörpu verður aldrei billegur eða forheimskandi hversu léttur og leikandi sem hann kann að verða. Og hátíðleikann þarf ekkert að óttast lengur. Það er ekki skáldið sjálft sem er á stallinum. Þar er bara Dabbis buste og hún getur alveg átt það til að bregða sér ofan í kassa og fara í bíltúr eins og ekkert sé. Flutt á fundi hjá Félagi áhugamanna um bókmenntir,

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.