Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1983, Blaðsíða 23
eru þá leiðréttir með því að margfalda þá með
hlutfallinu á milli gildis verðvísitölu vöru og
þjónustu í árslok og gildis sömu vísitölu í
ársbyrjun.
Ópeningalegir liðir (t.d. vörubirgðir, hús,
tæki, fengin fyrirframgreiðsla upp í skuld-
bindingu til að afhenda ákveðið vörumagn)
eru leiðréttir með því að margfalda þá með
hlutfallinu á milli gildis vísitölunnar í árslok
og vísitölugildis kaupdags þeirra. Eigið fé í
ársbyrjun kemur svo fram sem mismunur
leiðréttra fjármuna og leiðréttra skulda.
Á sama hátt og lýst hefur verið er farið með
liði efnahagsreiknings í árlok; peningalegir
liðir taka þó engri breytingu, þar sem
leiðréttingin er fólgin í margföldun og deil-
ingu með sama vísitölugildinu. Hagnaður
tímabilsins, ársins, finnst sem mismunur
eigin fjár í árslok og eigin fjár í ársbyrjun.
Hægt er að sundurgreina hagnað/tap ársins
í tyo hluta: hagnað/tap af rekstrarliðum og
hagnað/tap af peningaliðum. Fyrri hlutinn
verður til við leiðréttingu á rekstrareikningi
hefðbundinna reikningsskila með því að færa
alla liði hans til verðlags eins og það er í
árslok. Fyrir raunverulegt fyrirtæki, sem
hefur átt gífurlega oft í viðskiptum á árinu, er
að jafnaði við þennan umreiknings stuðzt við
einföldunarforsendur. Til dæmis gæti þótt
nægilega nákvæmt að reikna með, að öll
vörusala ársins hefði farið fram á miðju ári,
og yðri þá sölunni komið yfir í staðkrónur
með því að margfalda hana með hlutfallinu á
milli gildis verðvísitölunnar í árslok og gildis
hennar á miðju árinu. Skýringardæmið, sem
hér er stuðzt við, er hins vegar fábrotnara en
svo, að á nauðsyn slíkrar einföldunar reyni.
Þess má geta, að álitamál getur verið, hvort
telja skuli suma liði, sem fyrir geta komið í
efnahagsreikningi, til flokks peningalegra
liða eða til flokks ópeningalegra liða. Sú
lausn, sem fyrir valinu yrði, mundi engin áhrif
hafa á niðurstöðuna um afkomu tímabilsins,
en mundi hins vegar hafa áhrif á það, hvernig
hagnaður/tap yrði sundurgreint í hlutana tvo.
4)
Hér á eftir fara viðeigandi skýrslur um
fyrirtækið:
Efnahagsreikningur 111 19x1 - vísitala 130
Fjármunir
Sjóður 100x130/100 130
Fjármagn
Langvinntlán 30x130/100 39
Eigið fé 91
130
Efnahagsreikningur 31112 19x1 — vísitala 130ár 19x1:
Fjármunir
Sjóður
Vörubirgðir
29x130/130 29
30x130/100 39
60x130/115 67,83 106,83
135,83
Fjármagn
Langvinntlán 30x130/130
Eigiðfé
30
105.83
135.83
Samanburður efnahagsreikninga sýnir, að hagnaður hefur numið kr. 14,83 (= 105,83 — 91)
21