Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Side 6
6 Fréttir Helgarblað 18.–21. mars 2016
Landsins
mesta úrval
af kókósvörum
með heilsuna þína að leiðarljósi
www.hberg.is / hberg@hberg.is
Fæst í öllum helstu
matvöruverslunum
V
erðmæti fasteignanna á
Landssímareitnum við
Austurvöll verður 10,5 millj-
arðar króna þegar fram-
kvæmdum við nýtt lúxus-
hótel Icelandair þar lýkur árið 2018.
Byggingarnar, þar á meðal gamla
Landssímahúsið, eru nú metnar á alls
4,5 milljarða króna en ekki liggur fyr-
ir mat á heildarkostnaði verkefnisins.
Fullfjármagnað
Húsin og lóðirnar á reitnum eru í
eigu einkahlutafélagsins Lindarvatn.
Icelandair Group keypti helming í fé-
laginu í ágúst í fyrra af Dalsnesi ehf.
sem er alfarið í eigu Ólafs Björns-
sonar, eiganda matvöruheildversl-
unarinnar Inness. Dalsnes, sem
keypti Landssímareitinn af hæsta-
réttarlögmanninum Pétri Þór Sig-
urðssyni í desember 2014, á í dag 50%
í Lindarvatni á móti helmingshlut
Icelandair. Pétur stóð í viðræðum um
uppbyggingu á reitnum, sem afmark-
ast af Vallarstræti, Thorvaldsens-
stræti, Kirkjustræti og Aðalstræti, í níu
ár eða frá hausti 2005.
Lindarvatn stóð í byrjun mars fyrir
3,1 milljarðs króna skuldabréfaútgáfu
til að fjármagna framkvæmdir félags-
ins á reitnum. Samkvæmt verðmati
sem Íslensk verðbréf unnu vegna út-
gáfunnar er reiturinn metinn á 4,5
milljarða króna. Hann verði að lokn-
um framkvæmdum, og út frá áætlun-
um um væntar leigutekjur, metinn á
alls 10,5 milljarða. Davíð Þorláksson,
framkvæmdastjóri Lindarvatns og
lögfræðingur Icelandair Group, segir
að skuldabréfaútgáfunni sé lokið og
að hún sé fullfjármögnuð.
„Verkefninu miðar nokkuð vel.
Þetta eru auðvitað stór hús þarna og
þetta eru bestu lóðirnar á landinu
að okkar mati og því teljum við þetta
vera mjög verðmætan reit,“ segir
Davíð og bendir á að á reitnum séu
einnig byggingar sem snúa að Ing-
ólfstorgi. Þar sé gert ráð fyrir verslun-
um, veitingahúsum og íbúðum.
„Við munum nýta sem mest nú-
verandi hús en deiliskipulagið gerir
ráð fyrir nýju húsi sunnan við Lands-
símahúsið, upp að Kirkjustræti, þar
sem við erum að grafa núna. Við
höldum gamla Landssímahúsinu
og Nasa, það verður endurnýjað, og
timburhúsunum við Ingólfstorg en
byggjum þar á milli. Við munum
leggja til að Nasa verði gert upp í upp-
runalegri mynd í anda gamla Sjálf-
stæðissalarins.“
Kaupverðið trúnaðarmál
Icelandair Hotels, dótturfélag
Icelandair Group, og Lindarvatn
skrifuðu í ágúst í fyrra undir leigu-
samning til 25 ára um rekstur hót-
elsins sem verður 160 herbergja. Í
þeim sama mánuði gekk Icelanda-
ir frá kaupum á 50% eignarhlutnum
í Lindarvatni. Eignirnar verða sam-
tals um fimmtán þúsund fermetrar
að stærð en gert er ráð fyrir að hótel-
ið verði þar af um ellefu þúsund fer-
metrar. Kaupverðið var ekki gefið upp
og segir Davíð það trúnaðarmál.
Pétur Þór Sigurðsson seldi Lands-
símareitinn í sama mánuði og Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra friðlýsti Nasa-salinn.
Uppbygging á reitnum hafði þá taf-
ist og salan til Lindarvatns átt sér
langan aðdraganda. Elín Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Dalsness, stað-
festi í samtali við DV að kaupin hefðu
gengið í gegn í desember 2014. Sagði
hún kaupverðið trúnaðarmál og vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um eigenda-
skiptin. Ekki náðist í Pétur Þór við
vinnslu fréttarinnar.
Grafir og bein
Áform Lindarvatns taka mið af núgild-
andi deiliskipulagi sem var samþykkt
2013. Gert er ráð fyrir þakbar á efstu
hæð hótelsins, veitingastað á jarðhæð
gamla Landssímahússins og heilsulind
í kjallara þess. Endanleg hönnun reits-
ins mun taka mið af niðurstöðum forn-
leifauppgraftar sem nú stendur yfir á
bílastæðinu við húsið í Kirkjustræti.
„Við byggðum bráðabirgða-
hús yfir uppgröftinn til að reyna að
standa sem allra best að þessu til að
verja svæðið fyrir veðri. Það eru að
koma upp þarna beinagrindur og
grafir því það var kirkjugarður þarna
á svæðinu á árum áður,“ segir Davíð
Þorláksson. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Opnar 2018 Davíð Þorláksson, fram-
kvæmdastjóri Lindarvatns og lögmaður
Icelandair Group, segir að lúxushótelið á
Landssímareitnum verði opnað 2018.
Hótelið Hér má sjá teikningu af nýju húsunum við Austurvöll sem eiga að rísa skáhallt á
móti Alþingishúsinu. Verkefnið er ekki fullhannað.
n Verðmæti fasteigna á reitnum verður 10,5 milljarðar n Fjármagna lúxushótel
Virði Landssímareitsins
eykst um sex milljarða
Landssímahúsið
Fasteignir á reitnum
eru nú metnar á 4,5
milljarða.
Byssusýning Veiðisafnsins
Rifflar, skammbyssur, herrifflar og haglabyssur til sýnis
Á
rleg byssusýning Veiðisafnsins
á Stokkseyri verður haldin um
helgina. Í ár verður sýningin í
samvinnu við verslunina Hlað.
Fjölbreytt úrval skotvopna verður
til sýnis, svo sem haglabyssur, rifflar,
skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu
tengdu skotveiðum, meðal annars úr
einkasöfnum.
Hjálmar í Hlaði og félagar sýna
úrval skotvopna sem og búnað til
skotveiða ásamt sjónaukum og auka-
búnaði. Búnaðurinn verður bæði til
sýnis og sölu.
Thomas Danielsen frá Zeiss í
Þýskalandi verður á staðnum ásamt
Arnfinni Jónssyni byssusmið sem
kynnir sína vinnu. Kynntir verða
rifflar frá Blaser, Sauer, haglabyssur
frá Marocchi og Blaser, einnig sjón-
aukar frá Zeiss og Meopta ásamt
hljóðdeyfum frá Hausken, endur-
hleðsluvörur og margt fleira.
Einnig verða til sýnis skotvopn
og munir frá Sverri Scheving Thor-
steinssyni, Sigurði Ásgeirssyni,
Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni,
fyrrverandi veiðistjóra, Sigmari B.
Haukssyni og Drífu-haglabyssur frá
Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík
svo eitthvað sé nefnt.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðu Veiðisafnsins:
www.veidisafnid.is n
Veiðisafnið Sýningin verður um helgina
og hefst á morgun klukkan 11. Mynd PáLL ReynissOn
Dregur í land
Sjávarútvegsráðherra, sem áður
hafði ákveðið að seinka upphafi
grásleppuveiða um 12 daga, hef-
ur nú flýtt veiðum um sex daga.
Veiðin hefst nú sex dögum síðar
en venjulega, eða þann 26. mars.
Fyrri ákvörðunin byggði á þeirri
staðreynd að mikill meðafli, aðal-
lega þorskur, kemur í netin fyrstu
daga grásleppuvertíðarinnar.
Með seinkun átti að freista þess
að minnka sóun, en þorskurinn
sem kemur í netin er oft orðinn
úldinn þegar grásleppunetin eru
dregin. Smábátasjómenn óttast
að grásleppan verði byrjuð að
hrygna – og rýrni þannig að verð-
mæti – þegar veiðar hefjast.
Halla í framboð
Halla Tómasdóttir, fjárfestir og
frumkvöðull, ætlar að bjóða sig
fram í embætti forseta Íslands.
„Kæru vinir, ég býð mig fram
til embættis forseta Íslands
og kem til dyranna eins og ég
er klædd og ekki einsömul.
Fjölskyldan stendur saman í
þessu verkefni sem og stór hópur
fjölhæfs fólks,“ sagði Halla á
blaðamannafundi á heimili sínu.
Halla er uppalin í Kópavogi
og er gift Birni Skúlasyni,
viðskiptafræðingi, og eiga þau
tvö börn saman. Halla hefur
verið áberandi í viðskiptalífinu
undanfarin ár. Hún var sem dæmi
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
og árið 2007 stofnaði hún Auði
Capital, fjárfestingafélag, sem
sameinaðist svo Virðingu.