Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Blaðsíða 25
Helgarblað 18.–21. mars 2016 Kynningarblað - Gæðakaffi 3
Gamla kaffihúsið: Krúttlega
kaffihúsið í hverfinu
Cafe Adesso, Smáralind
Eitt vinsælasta kaffihús landsins
C
afe Adesso í Smáralind hef-
ur um árabil verið geysilega
vinsælt kaffihús og veitinga-
staður en staðurinn var
opnaður 7. apríl 2002. Cafe
Adesso er vel sótt af viðskiptavin-
um Smáralindar en auk þess venur
stór hópur fastagesta komur sínar
á staðinn, meðal annars fólk sem
vinnur í nágrenninu.
Cafe Adesso býður upp á hið
rómaða og bragðmikla Chaqwa-
kaffi. Chaqwa inniheldur kaffi-
baunir frá ýmsum þekktum kaffi-
ræktunarhéruðum víðs vegar um
heiminn, meðal annars Mið-Ame-
ríku, Indlandi, Indónesíu og Afríku.
Með kaffinu er gott að snæða
franska súkkulaðiköku með rjóma
eins og sést á mynd hér. Mikið úr-
val er af alls konar gómsætum kök-
um sem bakaðar eru á staðnum.
Sem fyrr segir er Cafe Adesso
í senn kaffihús og veitingastað-
ur. Geysilegt úrval af mat er í boði
alla daga en matseðla má skoða á
heimasíðu staðarins. Meðal annars
eru álitleg hádegistilboð alla daga
milli kl. 11 og 14 og þar eru Crépes-
réttirnir meðal annars vinsælir –
ekta kaffihúsamatur.
Fjölbreytnin er megináhersla
í starfsemi Cafe Adesso þannig
að allir geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Er leitun að veitingastað
sem býður upp á jafnmikla fjöl-
breytni enda kemur fólk til að fá sér
allt frá kleinuhring upp í stórsteik.
Að ógleymdu kaffinu sem nýtur
ómældra vinsælda.
Cafe Adesso er opið mánudaga–
miðvikudaga frá kl. 10.30 til 19.00,
fimmtudaga frá 11.00 til 21.00,
föstudaga og laugardaga frá kl.
11.00 til 20.00 og sunnudaga frá kl.
12.00 til 18.00. n
G
amla kaffihúsið er hlýleg-
ur staður í Drafnarfelli í
Breiðholti. Unnur Arna Sig-
urðardóttir, einn eigenda
þess, er ákaflega ánægð með
frábærar móttökur viðskiptavina.
„Það var brýn þörf á að fá gott
kaffihús í hverfið hér sem er rótgróið
og rólegt svæði. Hér býr mikið af fólki
og alls ekki allir sem vilja fara niður í
bæ til þess að fá sér góðan kaffibolla
og finnst notalegt að setjast inn hjá
okkur,“ segir hún. „Það hefur vak-
ið mikla lukku að við bjóðum einnig
upp á mat og við erum t.d. alltaf með
tvær mismunandi gerðir af súpum í
hádeginu og fínan salatbar. Þannig
að það má segja að við séum nokkur
konar bistró. Hádegismatartíminn
stendur yfir frá kl. 12.00–14.00.“
Ljúffengar steikur
Unnur segir að matseðillinn sé ekki
stór en sætur og með sérvöldum,
bragðgóðum réttum. „Gestir hafa
verið afar hrifnir af eðalbrauðun-
um okkar en þau er tvisvar sinn-
um stærri en hefðbundin rúnstykki
og fyllt með laxi, kjúklingasalati eða
mínútusteik.
Eftir kl. 18.00 eru síðan á boðstól-
um ljúffengar steikur; nautasteik
með bernaise- eða piparsósu og
fær fólk sér þá gjarnan rauðvínsglas
með máltíðinni og röltir svo satt og
sátt heim til sín, í göngufæri. Gamla
kaffihúsið okkar er heimilislegt og
fólki finnst þægilegt að setjast nið-
ur hér og lesa eða spjalla við vina-
legan þjóninn. Við erum með bóka-
hillu sem fólk getur seilst í og lesið.
Fólk getur bæði tekið bækur og gef-
ið þær sem það hefur lesið og vill að
aðrir njóti.“
Kökuhlaðborð á sunnudögum
„Á sunnudögum er alltaf kökuhlað-
borð hjá okkur upp á gamla móðinn
á milli kl. 15.00–17.00 en það kostar
aðeins 2000 kr. og er kaffi þá inni-
falið. Þetta er nokkuð sem fólk hef-
ur saknað og þykir dásamlegt að
geta tekið upp þennan skemmtilega
gamla sið að fara í kaffihlaðborð á
sunnudagseftirmiðdögum,“ segir
Unnur og brosir hlýlega um leið og
hún kemur því á framfæri að hún
þakki innilega fyrir frábærar mót-
tökur gesta. n
Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18,
111 Reykjavík. Sími: 511 – 1180.