Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Blaðsíða 10
10 Fréttir Helgarblað 18.–21. mars 2016
LJÓSASPEGLAR
Á TILBOÐI FRAM
AÐ PÁSKUM
30%
afsláttur!
Besta eggið er
frá Nóa síríus
n Útlendingar kunna ekki að meta lakkrísblandað súkkulaði n Vildi þýskan dómara
H
reina páskaeggið frá Nóa
Síríus vann yfirburðasigur
í páskaeggjasmakki DV í ár.
Dómnefndin var eingöngu
skipuðu útlendingum sem
komu frá Englandi, Indlandi, Ástr-
alíu og Bandaríkjunum. Um var að
ræða atvinnumenn í skák sem höfðu
nýlokið þátttöku sinni á Alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu sem lauk
síðastliðið miðvikudagskvöld.
Egg frá þremur framleiðendum
Umgjörð bragðprófsins var með
öðru sniði en undanfarin ár. Í stað
þess að prófa allar tegundir á mark-
aðinum var tekin ákvörðun um að fá
álit útlendinga á hvaða framleiðandi
byði upp á besta hreina súkkulaði-
eggið frá þremur helstu framleið-
endum páskaeggja hérlendis, Nóa
Síríus, Góu og Freyju. Að auki voru
þátttakendurnir látnir bragða á lakk-
ríseggjum þessara þriggja framleið-
enda enda Íslendingar annálaðir
lakkrísunnendur og því fróðlegt að
fá álit útlendinga á þeim. Eggin voru
framreidd af handahófi og var nokk-
uð um það að þátttakendur báðu
um viðbótarflísar af tilteknum eggj-
um til þess að bera þau saman.
Forfallinn kaffiunnandi formað-
ur dómnefndar
Formaður dómnefndar var ástr-
alski skákmeistarinn Manuel Weeks.
Hann sá um að lýsa skákum í beinni
útsendingu á mótinu auk þess sem
hann var að þjálfa einn sterkasta
skákmann Ástralíu sem tók þátt
í mótinu. Weeks er kaffiunnandi
af guðs náð og titraði af tilhlökk-
un yfir því að prófa kaffi hjá Reykja-
vík Roasters sem hann sagði að
væri heimsfrægt meðal kaffiunn-
enda. Það kom því fáum á óvart
að Weeks er forfallinn áhugamað-
ur um súkkulaði og í ljós kom að
eiginkona hans starfaði hjá hand-
verkssúkkulaðigerð í heimalandi
þeirra.
Mótmæli út af fjarveru
þýskumælandi dómara
Aðrir í dómnefndinni voru enski
stórmeistarinn Gawain Jones,
bandaríska landsliðskonan Tatev
Abrahamyan og indversku snill-
ingarnir Abihjeet Gupta og Tania
Sachdev. Gupta stóð uppi sem sigur-
vegari Reykjavíkurmótsins með 8,5
vinninga af 10 mögulegum og Tania
vann hug og hjörtu allra viðstaddra
með frábærri frammistöðu sem
skilaði henni áfanga að stórmeist-
aratitli. Það var því glatt á hjalla á
meðan bragðprófunin fór fram og
vakti hún talsverða athygli meðal
annarra þátttakenda.
Þýska landsliðskonan Elizabeth
Paehtz fór mikinn á hliðarlínunni
og gagnrýndi harðlega þá ákvörðun
blaðamanns að bjóða ekki þýsk-
um eða svissneskum skákmönnum
sæti í nefndinni enda hefðu þessi
lönd yfirburðaþekkingu á súkkulaði.
„Hvaða þekkta súkkulaðivörumerki
kemur frá Indlandi?“ sagði sú þýska
og var fátt um svör. Til þess að kæfa
andófið fékk Paehtz leyfi til þess að
maula það sem útaf gekk af eggjun-
um og heyrðist vart múkk í henni
eftir þá hárnákvæmu strategísku
ákvörðun framkvæmdaraðila.
Nói Síríus skaraði fram úr
Niðurstöður smakksins voru á þá
leið að Nói Síríus þótti skara fram
úr með hreina súkkulaðieggið sitt.
Dómnefndin gaf egginu meðal-
einkunn upp á 7,7 af 10. Hreina egg-
ið frá Góu var í öðru sæti með 6,7 í
einkunn og hreina eggið frá Freyju
var með 6,3 í einkunn. Þess má
geta að Freyju-eggið fæst aðeins í
stærð 2, ólíkt fyrrnefndu tegundun-
um sem fást í fjölmörgum stærðum.
Sláandi niðurstaða bragðprófan-
anna var sú að útlendingarnir voru
alls ekki hrifnir af lakkríseggjun-
um. Þannig þótti Apollo-lakkrísegg
Góu skást með 5,4 í einkunn og næst
kom lakkríseggið frá Nóa Síríus með
5,2 í einkunn. Draumaegg Freyju
rak lestina með 5,0 í einkunn. Þessi
niðurstaða var síðan í raun staðfest
því að aðrir erlendir skákmenn létu
greipar sópa um afgangana og voru
yfirleitt á einu máli um að lakkrís-
blandað súkkulaði væri ekki málið.
Fyrir sigurvegarann Nóa Síríus kom
sennilega mesta hrósið frá hollenska
skákblaðamanninum Lennart Oot-
es. Hann nældi sér í bita og heyrðist
síðan muldra við vin sinn: „Þetta er
súkkulaði sem ég myndi vilja þegar
ég stæði í sambandsslitum.“ n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Dómnefnd að störfum
Frá vinstri: Enski stór-
meistarinn Gawain Jones,
bandaríska landsliðskonan
Tatev Abrahamyan, ástralski
skákmeistarinn Manuel
Weeks, indverski stórmeist-
arinn Abhijeet Gupta og
Tania Sachdev, alþjóðlegur
skákmeistari frá Indlandi.