Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Blaðsíða 44
40 Fólk Helgarblað 18.–21. mars 2016
V
inkonurnar Sigríður Þór-
unn Þorvarðardóttir og
Guðrún Ósk Gunnarsdótt-
ir búa á Höfn í Hornafirði.
Sigríður Þórunn er nýút-
skrifuð úr Framhaldsskólanum í
Austur-Skaftafellssýslu og Guðrún
lýkur námi þaðan í vor. Fyrir ári
kom Guðrún út úr skápnum sem
lesbía en vinkonurnar segja það
mikil tíðindi í litlu sjávarþorpi eins
og Höfn.
Vildi vera öðrum samkyn-
hneigðum fyrirmynd
„Ég kom út úr skápnum með það
í huga að þá væri þetta komið
upp á yfirborðið og þá mátti tala
um það. Ég hafði fundið fyrir því
að fólk grunaði þetta og að þegar
einhver umræða kom upp varð-
andi samkynhneigð í kringum mig
þá fannst fólki það svo vandræða-
legt. Svo vildi ég líka vera öðrum
samkynhneigðum einstaklingum á
Hornafirði fyrirmynd, sem ég hefði
óskað þess að hafa haft sjálf,“ segir
Guðrún Ósk.
Sigríður tekur undir með vin-
konu sinni og segir að orðræðan
varðandi Guðrúnu hafi verið mjög
sérstök og jafnvel ljót á tímabili.
„Það var svo mikil þöggun í gangi
og orðræðan í skólanum í tengslum
við samkynhneigð var orðin svo
sérstök. Það kom til dæmis tími þar
sem reynt var að þröngva Guðrúnu
út úr skápnum. Svona getur þetta
orðið í litlu sjávarþorpi. Ég myndi
ekki segja að þetta væru fordómar,
heldur lítil vitneskja um þessi mál
sem veldur svona miklum vand-
ræðagangi.“
Guðrún Ósk áttaði sig á kyn-
hneigð sinni í 7. bekk en kom ekki
út úr skápnum fyrr en rúmum sex
árum síðar, á sínu öðru ári í fram-
haldsskóla. Stelpurnar segjast
meðvitaðar um að svona sé þetta
ekki endilega alls staðar á Íslandi
en að í svona litlu samfélagi sé það
að koma út úr skápnum bæði hug-
rakkt og fréttnæmt.
Setti kynhneigð sína á
samfélagsmiðla
„Við þekktum engan annan í
sveitarfélaginu sem hafði kom-
ið út úr skápnum þegar ég ákvað
að gera það. Þess vegna var þetta
risastórt skref fyrir mig. Ég ætlaði
aldrei að segja neinum þetta enda
var ég ákveðin í að flytja héðan burt
og koma aldrei aftur. En þegar ég
kynntist Siggu þá eignaðist ég vin-
konu sem ég fann að ég gat treyst
almennilega fyrir þessu. Stuðning-
ur hennar og annarra vinkvenna
minna hjálpaði mér afskaplega
mikið og þann 7. apríl í fyrra héld-
um við vinkonurnar svona „út
úr skápnum-partí“ þar sem við
enduðum með því að setja það á
samfélagsmiðla að ég væri lesbía.“
Viðtökurnar komu vinkonunum
á óvart þar sem flestir tóku frétt-
unum mjög vel en þær sáu samt
ástæðu til þess að kalla eftir fræðslu
frá Samtökunum '78 fyrir samnem-
endur sína. „Hér er ennþá allt svo
svart og hvítt og þess vegna vild-
um við fá fræðslu frá Samtökunum
'78 í kjölfar þess að Guðrún kom út
úr skápnum. Við fundum ekki fyr-
ir neinum fordómum meðan á fyr-
irlestrinum stóð og hann var mjög
þarfur. En eftir á skein fáfræðin í
gegn og sumir skildu ekki alveg
hvað í þessu fólst. Það var líka mikið
rætt um hvort þetta væri ákvörðun
eða meðfætt og jafnvel hvort Guð-
rún upplifði sig sem strák.“
Guðrún segir samt að flestir hafi
reynt að skilja hana og að fólk hafi
komið upp að henni og óskað henni
til hamingju með þessa ákvörðun.
Eins segist Guðrún vera stolt af því
að kalla á þessa mikilvægu um-
ræðu í samfélaginu. „Auðvitað er til
fleira samkynhneigt fólk frá Horna-
firði en það var ekki fyrr en eftir að
ég steig sjálf út úr skápnum að ég
komst að því. Þetta var falið, alla-
vega fyrir okkur yngri kynslóðina.
Ég er samt stolt af því að hafa von-
andi tekið þátt í breytingum hvað
það varðar og gert það auðveldara
fyrir aðra að koma út úr skápnum
hér í framtíðinni. “
Stofnuðu Femínistafélag FAS
Og vinkonurnar hafa brallað ýmis-
legt fleira en að hafa áhrif á viðhorf
samfélagsins til samkynhneigðar
því í fyrra stofnuðu þær Femínista-
félag Framhaldsskóla Austur-
Skafta fellssýslu ásamt því að vera
forsprakkar fyrir Druslugöngunni
á Höfn.
„Já, í framhaldsskólanum var
byrjað að kenna kynjafræði sem
kallaði á mikla femíníska umræðu
hérna. Okkur fannst því mikilvægt
að stofna femínistafélag við skól-
ann eins og svo margir aðrir fram-
haldsskólar á landinu. Í fyrstu
héldum við að við myndum verða
örfáar í félaginu en í það skráðu sig
30 manns. Sem er mjög gott í 120
manna framhaldsskóla.“
Félagið hefur verið starfandi í
tæpt ár og staðið fyrir alls konar
uppákomum. Til dæmis fræðslu og
fyrirlestrum, sent frá sér ályktan-
ir um femínísk málefni sem betur
mega fara í samfélaginu og margt
fleira. Vinkonurnar horfa björt-
um augum fram á veginn og stefna
báðar á lýðháskóla í Svíþjóð í haust
og Guðrún tekur það sérstaklega
fram að nú geti hún vel hugsað
sér að snúa aftur á Höfn að loknu
námi. n
„Ákveðin í að flytja burt
og koma aldrei aftur“
n Guðrún kom út úr skápnum fyrir ári síðan sem lesbía n Vildi vera öðrum fyrirmynd
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
Fyrirmynd Vildi vera
öðrum samkynhneigðum
sú fyrirmynd sem hana
vantaði. Guðrún (t.h.) og
Sigríður (t.v.).
Ný námskeið
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is
Námskeið í apríl 2016
• FJÁRMÁL - hefst 4. apríl
• TÖK Á TILVERUNNI - hefst 5. apríl
• ÚFF! ÚR FRESTUN Í
FRAMKVÆMD - hefst 5. apríl
• TÖLVUR 1 - hefst 5. apríl
• SJÁLFSTYRKING - hefst 6. apríl
• HEILbRIGT LÍFERNI - hefst 25. apríl
Er ekki kominn tími til að gera eitthvað