Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Blaðsíða 8
8 Fréttir Helgarblað 18.–21. mars 2016 Fiskur er okkar fag - Staður með alvöru útsýni Opið allt árið, virka daga, um helgar og á hátíðisdögum Kaffi Duus • Duusgata 10 • 230 Keflavík • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá k l. 10:30 - 23:00 alla daga Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð Rannsakar hvort rektor hafi brotið bankaleynd n Embætti héraðssaksóknara skoðar samskipti Vilhjálms Egilssonar við Morgunblaðið R annsókn héraðssaksóknara á því hvort bankaleynd hafi verið brotin hjá Sparisjóði Vestmannaeyja snýr með- al annars að því hvort Vil- hjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst og fyrrverandi varafor maður sparisjóðsins, hafi veitt Morgun- blaðinu upplýsingar um ákvörðun Borgunar um að taka rúmlega 200 milljónir króna út úr sjóðnum í lok mars 2015. Aðspurður hafnar Vil- hjálmur því alfarið að hann hafi í samskiptum sínum við blaðamann Morgunblaðsins mögulega brotið bankaleynd. Samkvæmt heimildum DV er rannsóknin skammt á veg komin og hefur Vilhjálmur ekki verið boðað- ur til skýrslutöku. Kæra, sem Fjár- málaeftirlitið (FME) hafi sent til embættisins, vegna fréttar sem birt- ist í Morgunblaðinu fyrir ári síðan, byggi á því að ótilgreindur aðili hafi með upplýsingagjöf til fjölmiðils- ins, um viðskipti Borgunar við Spari- sjóð Vestmannaeyja, brotið lög um bankaleynd. Embættinu hafi verið falið að rannsaka hvort fyrrverandi stjórnendur sparisjóðsins, sem Landsbankinn tók yfir í mars 2015, hafi brotið bankaleynd. Ólafur Þór Hauksson héraðssak- sóknari vildi í samtali við DV ekki staðfesta ofangreind atriði og sagði embættið ekki tjá sig um mál sem séu til rannsóknar. „Ég tel að ég hafi í samskiptum við Morgunblaðið gætt þess vand- lega að fara að lögum. Það var ekki einfalt mál að ræða þetta því spari- sjóðurinn var í afar viðkvæmri stöðu. Ég var í stjórn sparisjóðs- ins og var í samskiptum við blaða- mann á Morgunblaðinu. Ég taldi mig vera með á hreinu hvað ég gæti sagt og hvað ekki og reyndi hvað ég gat að gæta þess að hegða mér í samræmi við lög. Aðkoma mín að málinu þolir alveg skoðun,“ segir Vilhjálmur í samtali við DV. Gaf skýrslu sem vitni Morgunblaðið greindi á fimmtu- dag frá ákvörðun FME um að kæra til héraðssaksóknara að fjölmiðill- inn hafi í mars 2015 búið yfir upp- lýsingum, og birt frétt þess efnis, um að Borgun hafi tekið út rúmlega 200 milljónir króna af reikningi sínum í sparisjóðnum. Fréttin birtist undir fyrirsögninni „700 milljónir teknar út úr Sparisjóði Vestmannaeyja“ og var skrifuð af Stefáni Einari Stefáns- syni viðskiptablaðamanni. Í fréttinni kom fram að Borgun hefði tekið umrædda upphæð út, í einni milli- færslu, nokkrum dögum áður og þannig átt þátt í áhlaupi sem hafi rýrt lausafé sparisjóðsins um helming. Blaðið hafði þá birt fréttir af veikri eiginfjárstöðu sjóðsins, og viðtal við Vilhjálm um stöðu mála, sem rann á endanum inn í Landsbankann 28. mars, eða tveimur dögum áður en fréttin um úttekt Borgunar birtist. Stefán Einar var samkvæmt upp- lýsingum DV boðaður til skýrslu- töku sem vitni hjá embætti ríkissak- sóknara í gær, fimmtudag. Íhuguðu að krefjast rannsóknar Stjórnendur Borgunar íhuguðu í apríl 2015 að krefjast rannsóknar á því hvort bankaleynd hefði verið rofin þegar upplýsingar um úttekt greiðslukortafyrirtækisins rötuðu í fjölmiðla. Haukur Oddsson, for- stjóri Borgunar, sagði þá í samtali við DV að stjórnendum fyrir tækisins þætti fyllsta ástæða til þess að „lek- inn“ yrði rannsakaður. Ekki náð- ist í Hauk við vinnslu fréttarinnar en samkvæmt upplýsingum DV fór stjórn Borgunar aldrei fram á að FME skoðaði málið. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is „Aðkoma mín að málinu þolir alveg skoðun Mynd SiGtryGGur Ari Borgun Greiðslukortafyrirtækið átti rúmlega 200 milljónir hjá Sparisjóði Vestmannaeyja. Mynd EyjAfréttir Sat í stjórninni Vilhjálmur Egilsson var síðasti varafor­ maður stjórnar Sparisjóðs Vest­ mannaeyja. Mynd Hordur SvEinSSon Tilboð þér að kostnaðarlausu. Uppl. í síma: 820 8888 eða markmid@markmid-ehf.is ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD Smíðavinna · Pípulagnir · Raflagnir Málningavinna · Múrvinna · Flísalagnir Hellulagnir · Jarðvinna · Lóðavinna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.