Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2016, Side 18
Helgarblað 18.–21. mars 201618 Umræða Stjórnmál
Magnús Geir Eyjólfsson mge@eyjan.is
Stefnir á að
E
nduruppbygging íslensku
utanríkisþjónustunnar er
hafin, segir í skýrslu utan-
ríkisráðherra um utanríkis-
og alþjóðamál sem lögð var
fram á Alþingi í vikunni. Þar kveður
við töluvert annan tón en í skýrsl-
unni frá því í fyrra þar sem lesa mátti
að ríkisstjórnin væri ófær um að
framfylgja eigin utanríkisstefnu sök-
um linnulauss niðurskurðar undan-
farin ár, þótt það væri ekki sagt ber-
um orðum. Tæplega fimm prósenta
aukning á fjárlögum ársins er upp-
hafið að enduruppbyggingunni.
Augljóst fórnarlamb
Utanríkismál eru alla jafna efst á
blaði þegar kemur að því að skera
niður í ríkisrekstri, líkt og gert var
eftir hrun. Stórum hluta fjárveiting-
anna er ráðstafað í útlöndum þar
sem afraksturinn er lítt sýnilegur
íslenskum kjósendum. Sú varð og
raunin á árunum eftir hrun þar sem
rekstrarkostnaður sendiskrifstofa
Íslands dróst saman um 30 prósent
og útsendum starfsmönnum fækk-
aði um fjórðung. Til dæmis er al-
mennt viðmið Norðurlanda að við
hverja sendiskrifstofu skuli starfa að
minnsta kosti þrír útsendir starfs-
menn, en rúmur helmingur ís-
lenskra sendiskrifstofa er undir
þessu viðmiði. Segir í skýrslu ráð-
herra að sést hafi þess merki að álag
á starfsfólk hafi farið fram úr hófi.
Stór verkefni framundan
Fyrirséð er að á næstu árum muni
umsvif utanríkisráðuneytisins
aukast allverulega. Þannig skapar
aukinn brottflutningur íslenskra
ríkisborgara aukin verkefni. Um 40
þúsund Íslendingar eru búsettir
erlendis og er Ísland í 6. sæti yfir
ríki OECD með hlutfallslega flesta
þegna búsetta erlendis. Árið 2014
bjuggu 11,7 prósent þess fólks sem
fætt er á Íslandi erlendis, en til sam-
anburðar var hlutfallið 5,7 í Finn-
landi, 4,6 prósent í Danmörku og 3,5
prósent í Noregi. Þetta þýðir aukið
álag á borgaraþjónustu ráðuneytis-
ins sem sinnti yfir 30 þúsund erind-
um í fyrra. Gert er ráð fyrir áfram-
haldandi fjölgun Íslendinga sem
dvelja erlendis á næstu árum.
Ísland mun gegna formennsku
í Norðurskautsráðinu á árun-
um 2019 til 2021. Síðast gegndi Ís-
land formennsku í ráðinu á árun-
um 2002 til 2004, en verkefnið nú
er mun umfangsmeira sökum stór-
aukins mikilvægis þessa málaflokks.
Undirbúningsvinna fyrir formennsk-
una hefst strax á þessu ári og felst
hún meðal annars í því að móta efn-
islegar áherslur Íslands og praktísk-
um málum í tengslum við skipulag.
Ísland tekur við formennsku í
norrænu samstarfi árið 2019 sem
kalla mun á málefnavinnu og undir-
búning frá árinu 2017. Ísland mun
einnig gegna formennsku í samstarfi
Norðurlanda og Eystrasaltsríkja árið
2019.
Þá er ótalin vinna við gerð hinna
ýmsu samninga, svo sem hinn um-
deilda TiSA-samning, fríverslunar-
samninga við ríki í Asíu og Suður-
Ameríku og endurskoðun samnings
EFTA og Kanada. Þá gæti einnig
komið til þess að gera þurfi fríversl-
unarsamning við Bretland fari svo
að Bretar segi sig úr Evrópusam-
bandinu eins og líkur eru á, en við-
skipti milli Íslands og Bretlands
byggja á EES-samningnum.
Samskiptin við Bandaríkin
verða sömuleiðis í brennidepli því
Bandaríkjaher og aðrar aðildar-
þjóðir NATO hafa aukið umsvif
sín á norðanverðu Atlantshafi á
liðnum árum. Breyttar öryggishorf-
ur í Evrópu leika þar stórt hlutverk,
meðal annars auknir hernaðar-
tilburðir Rússlands. Nýverið bárust
fréttir af því að Bandaríkjaher vilji
auka hernaðarleg umsvif sín á
Keflavíkurflugvelli með því að koma
sér upp aðstöðu til kafbátaleitar
Æðstu koppar í búri
Gunnar Bragi Sveinsson,
utanríkisráðherra, tekur
á móti Jens Stolten
berg sem nýverið tók
við stöðu fram
kvæmdastjóra NATO.
Stefán Haukur Jóhann
esson, ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins,
býður þá velkomna.
Mynd utAnríkiSráðunEyti
ná fyrri Styrk
n Enduruppbygging utanríkisþjónustunnar hafin eftir samfelldan niðurskurð
Mikilvægi Kína
stóreykst
Útflutningur til Kína stórjókst í fyrra í
kjölfar þess að fríverslunarsamningur
milli landanna tók gildi. Unnið er að því
að greiða enn frekar fyrir viðskiptum
íslenskra fyrirtækja í Kína og þrýsta
utanríkisþjónustan og Matvæla
stofnun á að Kínverjar opni fyrir fleiri
tegundir sjávarfangs og landbúnaðar
vara. Að sama skapi stórfjölgar
kínverskum ferðamönnum á Íslandi og
heimsóttu 47 þúsund Kínverjar landið
í fyrra sem er 87 prósent aukning á
milli ára.
VIÐ
HREINSUM
ÚLPUR!
Verð frá kr. 2.790 til kr. 3.990.
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is