Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Blaðsíða 12
12 Fréttir Vikublað 3.–5. maí 2016 É g var nýlega upplýstur um að ég hefði verið dæmdur til dauða í Íran. Ástæða dóms- ins er sú að ég yfirgaf íslam og gerðist kristinn. Slíkt er strang- lega bannað í heimalandi mínu og ef ég sný aftur þangað þá verð ég um- svifalaust hengdur,“ segir Morteza Songolzadeh, 36 ára gamall Írani, sem sótti um hæli hérlendis fyrir um níu mánuðum. Fyrir rúmum mánuði úrskurðaði Útlendingastofnun að hann skyldi sendur til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinn- ar. Hann telur yfirgnæfandi líkur á að Frakkar sendi hann aftur til Írans þar sem hann á dauðann vísan. Leynd yfir skírn Dauðadóminn hlaut Morteza vegna þess að hann yfirgaf íslam og gekk kristni á hönd. „Ég átti erfiða æsku. Faðir minn og eldri bróðir börðu mig reglulega til óbóta ef ég var ekki mættur í bænastund í dagrenningu. Það fékk mig til að íhuga af hverju það væri svona mikið ofbeldi í íslam á meðan það virtist vera mun meiri ást og kærleikur í öðrum trúarbrögð- um,“ segir Morteza. Hann þráði að upplifa annan veruleika og árið 2006 hélt hann til Indlands til þess að klára masters- gráðu í enskum bókmenntum. Þar upplifði hann frelsi í fyrsta sinn. „Indland er magnað land. Þar getur þú séð hof hindúa, mosku, kirkju og samkunduhús gyðinga í grennd hvert við annað og fólk getur ræktað sína trú án þess að óttast,“ segir hann. Á Indlandi fékk Morteza rými til þess að kynna sér önnur trúarbrögð og eftir að hafa kynnst Biblíunni og frá- sögnum af Jesú Kristi þá ákvað hann að gangast undir skírn. Mikil leynd var yfir gjörningnum enda mátti enginn vita af leyndarmáli hans. Ef íranskir samnemendur hans hefðu komist að hinnu sanna hefðu þeir látið íranska sendiráðið í Mumbai „Ég vil bara fá að lifa í friði“ Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is n Morteza Songolzadeh var dæmdur til dauða í Íran fyrir að ganga kristni á hönd n Vísað úr landi á grundvelli Dyflinnarreglunnar„Ég sæki kirkju reglulega og hef verið að kynna kristna trú fyrir öðrum Samansaumaðar varir Í mars síðastliðnum mótmæltu íranskir flóttamenn skelfilegum að- stæðum sínum í flóttamannabúðum í Calais. Það gerðu þeir með því að sauma saman varir sínar. Fiskur er okkar fag - Staður með alvöru útsýni Opið allt árið, virka daga, um helgar og á hátíðisdögum Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.