Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Page 17
Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 Kynningarblað - Bón og bílaþvottur 3
Bíllinn þarf líka að vera fallegur að innan
Dr. Leður sérhæfir sig í litun og viðgerðum á leðuráklæðum og selur rómuð Dr. Leður hreinsiefni
V
ið þrífum, lögum og litum
leðurhúsgögn og inn
réttingar í bílum. Við sjá
um um öll flugvélasætin
fyrir Icelandair, sjáum um
allt fyrir Alþingi í þessum efnum,
þjónustum flestar húsgagnaversl
anir í bænum, bílaumboðin, bíla
sala og svo framvegis,“ segir Ólafur
Geir Magnússon, eigandi fyrirtæk
isins Dr. Leður. Ólafur Geir er lærð
ur húsgagnabólstrari og hefur sér
hæft sig í viðgerðum á leðri síðan
árið 1992. Hann stofnaði Dr. Leður
árið 2008 og fyrirtækið hefur dafn
að mjög síðan. Meðal annars er Dr.
Leður mjög framarlega í viðgerðum
á bílsætum sem víða er mikil þörf
fyrir.
Dr. Leður leðursápa og
leðurnæring
Auk þess að sérhæfa sig í litun og
viðgerðum á leðursætum í bílum og
leðurhúsgögnum þá selur Dr. Leður
hreinsiefni og næringu fyrir leður
sem nauðsynlegt er að bera á til að
lengja líftíma leðursins. Með þess
um efnum öðlast leðrið nýtt líf.
Hér er um að ræða Dr. Leður
leðursápurnar og leðurnæringu.
Vörurnar njóta mikillar hylli meðal
þeirra sem þurfa að þrífa leður og
hróður þeirra eykst sífellt:
„Í hvert einasta skipti sem ein
hver kaupir þetta af mér veit ég að
ég er búinn að eignast framtíðar
viðskiptavin vegna þess að fólk
notar þetta alltaf aftur. Það er bara
þannig,“ segir Ólafur Geir. Vörurnar
eru seldar í ýmsum húsgagna
verslunum, til dæmis í Línunni og
Heimahúsinu, auk þess í Toyota
Akureyri og víðar. Þá kaupa margir
efnin hjá Dr. Leður, Krókhálsi 4, 110
Reykjavík.
Langamma gaf tóninn
Almenningur leitar mikið til Dr.
Leður vegna innréttinga og sæta
áklæða í bílum:
„Þetta byrjar á að fólk kemur
og sýnir mér bílinn. Í mörgum til
vikum getur það þrifið sjálft, feng
ið mína frábæru Dr. Leður sápu og
næringu til að græja þetta. En svo er
þarf stundum að skipta um kanta –
það er oft sem kantarnir eru ónýtir
eftir að sest er inn í bílinn og stigið
úr honum – þá getum við gert það –
og að sjálfsögðu þrífum við líka bíl
inn ef bíleigendur vilja það.“*
Ólafur Geir segir mjög mikilvægt
að halda bílum hreinum að innan:
„Það er nauðsynlegt að bera á
bílinn og þrífa hann um það bil
tvisvar á ári. Ég nota oft frasann sem
langamma sagði einu sinni við mig
þegar ég var lítill: „Óli minn, það er
ekki nóg að vera fallegur að utan.““
Það er stutt í glensið hjá Ólafi en
öllu gamni fylgir alvara og ljóst er
að dæmisagan um langömmuna
fangar vel mikilvægi þess að hirða
vel um bílinn sinn, jafnt að innan
sem utan. n
Dr. Leður
Krókhálsi 4, 110 Reykjavík
Sími: 824-1011
www.drledur.is
Dr. Leður á Facebook
UNDRI: 100% vistvæn hreinsiefni
Þ
að er mörgum fagnaðar
efni að nú eru komin á
markaðinn hreinsiefni
sem eru í senn mjög áhrifa
mikil og 100% vistvæn –
eru með öllu óskaðleg mönnum og
náttúrunni. Hreinsiefnin standast
kröfur OECD um hratt niðurbrot í
náttúrunni. Þau má nota til dæmis
í sjávarútvegi, fiskvinnslu og mat
vælaframleiðslu almennt.
Ekki spillir fyrir að þessi hreinsi
efni eru íslensk framleiðsla. UNDRI
ehf. er staðsett að Stapabraut 3a í
Reykjanesbæ en eigandi fyrirtækis
ins og stofnandi er Sigurður Hólm
Sigurðsson, fyrrverandi skipstjóri.
UNDRI ehf. hefur þá umhverfis
stefnu að hafa sem minnst um
hverfisáhrif með starfsemi sinni og
í þeim anda eru hreinsiefnin þróuð
og framleidd.
Undri er efni sem þróað var
með það í huga að
nýta fitu sem félli til
í matvælaiðnaði til
að gera hreinsiefni
sem nýtast mætti
í iðnaði almennt
til að hreinsa
olíu og tjöru.
Það tókst með
ágætum og
er það nú
víða notað til
þvotta í iðnaði,
við tjöruþrif á
bifreiðum og
einnig sem penslasápa fyrir olíu
málningarpensla. Í ljós hefur kom
ið að efnið virkar dável í loðnu
bræðslum og hefur ótvíræða kosti
fram yfir önnur efni þar sem sýru
stig þess er mun lægra og því veld
ur það engri tæringu í málmum,
svo sem áli. Starfsmenn SRmjöls
í Helguvík hafa mikla reynslu af
þessu efni, en þeir hafa notað það
til allra þrifa í vel á þriðja ár.
Á vandaðri heimasíðu UNDRA
ehf., undri.is, er að finna ítarlegar
almennar upplýsingar um UNDRA
hreinsiefnin og hvað aðgreinir þau
frá hefðbundnum hreinsiefnum.
Þar eru einnig sértækar upplýs
ingar um hverja og eina vöru og
góð vefverslun þar sem panta má
vörurnar.
Vörutegundirnar eru UNDRI
penslasápa, iðnaðarhreinsilögur,
tjöruhreinsir, línusápa, bletta
hreinsir, garðahreinsir, flísahreinsir,
kvoðuhreinsir og bílasápa og bón.
Penslasápan hefur til dæmis
þá kosti að mun fljótlegra er að
þrífa málningu úr penslum og ekki
þarf að margskola pensilinn und
ir vatni. Einnig ýfast hárin ekki á
penslinum þó að hann sé marg
þveginn með efninu.
UNDRI iðnaðarhreinsilögurinn
er afar kröftugt hreinsiefni til sjós
og lands og inniheldur engin leysi
efni.
UNDRI tjöruhreinsir er afar
áhrifaríkur við að hreinsa tjöru og
önnur óhreinindi af bílum, vélum
og tækjum, en efnið inniheldur í
senn tjöruhreinsi, sápu og bón.
UNDRI flísahreinsir fjarlægir
alla fitu auðveldlega, þar með talda
húð og matvælafitu. Hann skilur
eftir sig þunna fituhúð sem gefur
gljáa. UNDRI flísahreinsir mattar
hvorki flísar, ál
né stál því hann
er hvorki súr né
basískur og sýru
stig hans er ph7,7.
Sem fyrr segir
eru ítarlegar og
afar greinargóðar
upplýsingar um allar
vörurnar á heimasíðunni
undri.is og þar má panta
vörur. n
UNDRI ehf.
Stapabraut 3a
260 Reykjanesbær
Opið kl. 9–16 alla
virka daga en lok-
að í hádeginu
Símar: 421-6574
og 821-6574
Netfang:
undri@undri.is
Sápa og næring
Dr. Leður leðursápa
og leðurnæring
þykja vera undra-
góðar hreinsivörur
fyrir leður.
Fyrir og eftir Bílsæti og stýri.
Fyrir og eftir
Ótrúlegur árangur.