Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Blaðsíða 22
18 Menning Vikublað 3.–5. maí 2016
Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is
Fjölbreyttar vörur og úrval meðferða
Maí tilboð - 20% afsláttur af öllum vax meðferðum
“Hér er æðislegt tilboð frá æðislegum stelpum”.
L
istasafn ASÍ mun selja hús
næði sitt að Freyjugötu 41,
þar sem safnið hefur verið til
húsa undanfarna áratugi, og
hættir um leið sýningarstarf
semi. Safnið mun aftur á móti ein
beita sér að því að sýna safneignina
á öðrum vettvangi.
„Það er minnkandi stuðningur
hins opinbera sem leikur stærst
hlutverk. Tekjur safnsins hafa dreg
ist verulega saman,“ segir Guðrún
Ágústa Guðmundsdóttir, formaður
rekstrarstjórnar Listasafnsins.
Vilja sinna safneigninni
Listasafn ASÍ er í eign Alþýðusam
bands Íslands og var stofnað árið
1961 utan um safneign iðnrekand
ans og bókaútgefandans Ragnars
Jónssonar í Smára, sem hann gaf
Alþýðusambandinu. Síðan þá
hefur safnið fengið fjölda verka
að gjöf, meðal annars frá Kristni
Péturssyni listamanni, Margréti
Jónsdóttur, ekkju Þórbergs Þórðar
sonar, og Ástu Eiríksdóttur, ekkju
Svavars Guðnasonar, auk þess að
kaupa íslenska samtímalist. Ár
lega hafa verið haldnar 10 til 15
sýningar í sölum safnsins.
„Okkur er ætlað að hafa safn
eignina sýnilega fyrir almenn
ing, en núverandi tekjur standa
ekki undir rekstri húsnæðisins,“
útskýrir Guðrún.
„Í stað þess að reka listasafn
þar sem aðrir geta sýnt í, ætlum
við því að einbeita okkur að því
að sinna safneigninni. Við ætlum
að hætta rekstri safnsins, að sinni
að minnsta kosti, í núverandi
húsnæði og finna aðrar leiðir til
að auka sýnileika safnkostarins.
Safnið verður flutt í annað hús
næði án sýningarsalar og fyrir
komulagið verður með öðru sniði
– sem við eigum þó enn eftir að
finna út úr,“ segir Guðrún.
„Hvort verkin verði sýnd í eigin
húsnæði safnsins eða á öðrum
stað, til dæmis með samkomu
lagi við önnur söfn, á eftir að koma
í ljós. Við gerum ekki ráð fyrir að
það verði minni sýnileiki eftir að
við hættum að reka bygginguna,
því við höfum í raun bara haft eina
eða tvær sýningar á ári úr safn
eigninni. Með þessum hætti get
um við sinnt því betur og leitað
leiða til að sýna víðar,“ segir hún.
Lítið af styrkjum
Guðrún segir ástæðuna fyrir
rekstrar vanda safnsins vera minnk
andi styrki frá hinu opinbera. „Við
fáum lítið af styrkjum frá ríki og
borg og við seljum ekki inn á safnið.
Staðan var bara með þeim hætti að
við töldum eðlilegt að staldra við
og endurmeta með hvaða hætti við
ættum að gera þetta.“
Aðspurð segir hún það ekki
hafa verið talið líklegt að aðgangs
eyrir gæti bætt rekstrarstöðuna, en
gesti safnsins segir hún hafa verið
á milli þrjú og fjögur þúsund á ári
undanfarin ár.
Freyjugata 41 hýsti áður vinnu
stofu og íbúð Ásmundar Sveins
sonar myndhöggvara en safnið
keypti húsið fyrir rúmum tveimur
áratugum. „Okkur þykir mjög vænt
um þetta hús og okkur þykir mjög
mikilvægt að því verði sýndur sá
sómi sem því ber. Það er engin
launung að ef við fengjum stuðn
ing til að reka starfsemina í þessu
húsnæði þá værum við ekki í
þessari stöðu,“ segir Guðrún. n
Listasafn ASÍ hættir sýningarstarfsemi
Selur Ásmundarsal og einbeitir sér að því að sýna safneignina
S
telpur rokka! og hjálpar
samtökin Sól í Tógó
standa um þess
ar mundir
fyrir hljóð
færasöfnun fyrir
stelpurokkbúðir
sem verða í Afr
íkulandinu Tógó
í ágúst. Rokkbúð
irnar, sem eru á
vegum tógóskra
tónlistarkvenna, eru
fyrir stelpur á aldrinum
13 til 20 ára.
„Þetta eru fyrstu rokkbúðirnar
í Tógó af þessu tagi,“ segir Margrét
Hugadóttir, einn af aðstandendum
Stelpur rokka! Auk stelpurokkbúða
og ýmissa viðburða hér á landi hafa
samtökin Stelpur rokka! tekið þátt í
að halda rokkbúðir í Grænlandi og
Færeyjum í samstarfi við þarlendar
tónlistarkonur. Tvær úr hópnum
munu ferðast til Tógó í sumar til að
ráðleggja skipuleggjendum rokk
búðanna um skipulag og þjálfun
sjálfboðaliða sem munu taka þátt í
búðunum.
Þessa dagana standa þær svo
fyrir hljóðfærasöfnun fyrir tógósku
rokkstelpurnar. Framboð af raf
magnshljóðfærum í landinu er lítið
og því hvetja samtökin Íslendinga
til að gefa hljóðfæri til búð
anna: rafmagnsgítara, og bassa,
magnara, hljómborð, trommusett
og míkrófóna.
„Við þyrftum helst að ná að safna
hljóðfærum fyrir fjórar hljómsveit
ir, en í rokkbúðunum er miðað
við að í einni hljómsveit sé gítar,
bassi, hljómborð og trommur. Við
vitum að fínustu hljóðfæri leynast
í geymslum og hirslum á Íslandi,
sem keypt voru í góðri trú en liggja
svo ónotuð í myrkrinu og rykfalla.
Við bjóðumst því til að frelsa þessi
hljóðfæri og veita þeim endurnýj
un lífdaga í rokkbúðunum í Tógó,“
segir Margrét.
Hægt er að koma með hljóð
færin í Tónastöðina, Skipholti 50D
fram til 7. maí. n
Tógóskar stelpur rokka með íslensk hljóðfæri
Stelpur rokka! hvetja Íslendinga til að gefa rafmagnshljóðfæri
Loka og selja húsið Listasafn ASÍ hættir sýningarstarfsemi og selur Ásmundarsal.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Safnið verður
flutt í annað hús-
næði án sýningarsalar
og fyrirkomulagið verður
með öðru sniði.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Menningarverðlaun DV Stelpur rokka! hlutu Menningarverðlaun DV 2015, en hér sjást
tveir aðstandendur samtakanna taka við verðlaununum. MynD ÞorMar ViGnir Gunnarsson
rokkað í Tógó Tógóska kvennasveitin Orchestra Bella Bellow mun standa að rokkbúðum
fyrir ungar stúlkur í Tógó í samstarfi við Stelpur rokka!