Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Blaðsíða 2
Helgarblað 15.–18. júlí 20162 Fréttir ( 893 5888 Persónuleg og skjót þjónusta þú finnur okkur á facebook Metþátttaka í Símamóti Breiðabliks Metþátttaka verður í Síma- móti Breiðabliks sem hófst í gær, fimmtudag, og stendur fram á sunnudag. Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna og hefst keppni að morgni föstudags. Mótsslit verða síðdegis sunnudaginn 17. júlí. Um 2.100 iðkendur, í um 300 liðum og frá 40 félögum, eru skráðir til leiks og er mótið því það stærsta til þessa og um leið stærsta knattspyrnumót landsins. Allir leikir í mótinu fara fram á völlum á félagssvæði Breiðabliks, bæði úti og í Fífunni. „Við getum ekki annað en verið í skýjunum en það er metþátttaka í mótinu að þessu sinni. Kepp- endur verða á þriðja þúsund svo það verður mikið fjör og gaman í Dalnum alla helgina. Það er bara vonandi að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir en það er mikil tilhlökkun og skemmtilegir dagar fram undan. Við eigum von á milli 10–15 þúsund manns í Dalinn í tengslum við mótið,“ sagði Borg- hildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks. „Hún er lent í vítahring“ Konan, sem sveik fé út á útför lifandi móður sinnar, glímir við andleg veikindi og spilafíkn H ún var búin að biðja alla samnemendur sína um lán og margir urðu við því. Yf- irleitt voru þetta lágar upp- hæðir. Hún endurgreiddi peningana í fæstum tilvikum og því var hún ekkert sérstaklega vinsæl í skólanum,“ segir gamall bekkjarfé- lagi konu hvers gjörðir komust í há- mæli í byrjun vikunnar þegar DV fjallaði um að hún hefði fengið Jó- hann Guðna Harðarson til þess að lána sér pening fyrir útför lifandi móður sinnar. Konan er á fertugs- aldri. Faðir hennar segir hana glíma við andleg veikindi og spilafíkn. Um- fjöllunin kom fjölskyldunni á óvart en faðirinn vonar að dóttir sín leiti sér hjálpar og nái að snúa blaðinu við. Fjölskyldan muni styðja hana til þess. Bar harm sinn á torg fyrir fram- an nemendur Konan hefur undanfarin misseri stundað nám í kennslufræðum á há- skólastigi en tók hlé á námi þegar hún fékk starf við grunnskóla einn á höfuðborgarsvæðinu. Þar var henni falin umsjón yfir bekk á barnaskóla- stigi en fljótlega fór að bera á því að hún hefði ekki burði til þess að tak- ast á við starfið. Heimildir DV herma að hún hafi iðulega borið harm sinn á torg varðandi veikindi móður sinn- ar við nemendur sína og brostið í grát fyrir framan bekkinn. Eins og gefur að skilja reyndist það börnun- um erfitt. Þá hefur DV einnig heim- ildir fyrir því að konan hafi sent vinabeiðnir á samfélagsmiðlum á foreldra nemenda sinna og í fram- haldinu farið að óska eftir lánum. Hún kláraði skólaárið en var síðan sagt upp störfum. Fleiri stíga fram Frásögn Jóhanns Guðna vakti mikla athygli í byrjun vikunnar. Greinin hafði ekki fyrr farið í loftið en ann- að fórnarlamb steig fram sem hafði svipaða sögu að segja. Sá treysti sér ekki til þess að koma fram und- ir nafni en hann kvaðst hafa kynnst sömu konu á Einkamál.is og fljót- lega hafi hún farið að segja honum frá sviplegu fráfalli móður sinnar og eigin veikindum á Facebook. Óskaði hún eftir láni til þess að standa straum af útförinni. Annar lánaði 120 þúsund krónur „Ég vorkenndi henni sárlega og í heildina lánaði ég henni 120 þús- und krónur. Þegar hún óskaði eft- ir frekari lánum fór mig að gruna að maðkur væri í mysunni. Ástæð- an fyrir fjárskortinum var að henn- ar sögn sá að skólinn sem hún vann í hafði gert mistök varðandi launagreiðslurnar hennar og að hún myndi fá borgað tvöfalt næst. Hún kenndi því um að hún hefði glímt við mikil veikindi og hefði því ekki tök á því að mæta til vinnu. Ég hringdi hins vegar í skólann og þá kom í ljós að hún var mætt til vinnu þrátt fyrir að hún segði mér að hún væri veik heima,“ segir maðurinn. Hann undraðist hegðun konunn- ar og gekk á hana varðandi endur- greiðslu sem enn hefur ekki borist. Konan hafði þó fjölbreyttar afsakan- ir á reiðum höndum. „Ég áttaði mig í raun og veru ekki á svikunum fyrr en ég sá þessa grein í DV. Ég sendi hana umsvifalaust á konuna og krafðist endurgreiðslu. Hún hefur ekki orðið við því,“ segir sá svikni. Andleg veikindi og spilafíkn Konan neitaði viðtali vegna máls- ins en að sögn föður hennar hef- ur hún átt verulega erfitt frá því að málið kom upp á yfirborðið í byrjun vikunnar. Hvorki hann né fjölskylda konunnar hafi áttað sig á því hversu umfangsmikill vandinn var. „Dóttir mín hefur glímt við andleg veikindi í nokkurn tíma. Móðir hennar hef- ur verið mjög veik, var vart hugað líf um tíma, og það hefur fengið veru- lega á hana og okkur öll,“ segir faðir konunnar í samtali við DV. Að hans sögn glímir dóttir hans við spilafíkn sem hún ráði illa við. „Hún er lent í vítahring. All- ir hennar peningar hafa farið í spilakassa og þegar hennar fé var uppurið þá fór hún að sækjast eft- ir láni frá öðrum og þannig vatt vandamálið upp á sig,“ segir faðir- inn. Hann segist aðeins hafa vit- að af skuldum hennar við Jóhann Guðna og reynt að aðstoða dóttur sína við að greiða skuldina til baka. „Við foreldrarnir erum bæði öryrkj- ar og höfum því miður ekki mikið milli handanna til að gera upp svo háar fjárhæðir í einni greiðslu. Það er ömurlegt ástand á heimilinu,“ segir faðirinn. Að hans sögn hefur dóttir hans þegar hafið viðeigandi meðferð við sínum vandamálum og hann ætli að styðja hana með ráð- um og dáð. „Ég vona að þessi um- fjöllun verði til góðs og dóttir mín nái tökum á lífi sínu,“ segir hann. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Spilafíkn Konan hefur glímt við erfið veikindi. Mynd EyÞór ÁrnASon Jóhann Guðni Harðarson Steig fram í byrjun vikunnar og vakti athygli á fjársvikum sem hann hafði orðið fyrir. Í ljós er komið að fórn- arlömbin voru fleiri. Faðir gerandans vonast til þess að umfjöllunin verði til góðs og að dóttir hans nái að snúa við blaðinu. Mynd SiGtryGGur Ari Fékk hjarta- áfall við leit Maður sem tók þátt í leit að frönsk- um ferðamanni við Sveinsgil á miðvikudag fékk hjartaáfall og var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Maðurinn var staddur í Land- mannalaugum en hann hafði unnið að björgunaraðgerðum allan daginn. Maðurinn er á bata- vegi. Á fjórða hundrað björgunar- sveitarmanna tók þátt í leitinni að Frakkanum sem fannst látinn fastur undir snjóþekjunni. Hann var fæddur 1989. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.