Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Blaðsíða 38
Helgarblað 15.–18. júlí 201638 Fólk Gerir það Gott í brjóstadúskabransanum e itt af aukasjálfum Margrét- ar Erlu Maack er burlesque- drottningin Miss Mokki. Margrét hefur um árabil kennt og sýnt dans, til dæm- is magadans, Bollywood-dansa og hina sívinsælu Beyoncé-dansa. Mar- grét segir að magadansinn hafi leitt hana út í burlesque-ævintýrið. „Ég fór til New York 2007 í magadanstíma. Í ferðinni kynntist ég Reggie Watts, sem stjórnar núna hljómsveitinni í The Late Late Show og er hæfileikaríkasti maður sem ég hef kynnst. Honum fannst geggjað að ég væri íslensk magadansmær og reddaði mér giggum á stöðum eins og The Box og Slipper Room. Þar kynntist ég burlesque-dönsurum og kabarettlistamönnum og heillað- ist algjörlega. Reggie lagði svo hart að mér að hætta í Háskólanum og fara að einbeita mér að því að vera skemmtileg og skapa.“ Margrét sér ekki eftir þeirri ákvörðun. „Ég fór að ráðum Reggie, hætti í Háskólanum og byrjaði að sækja sirkustíma sem urðu grunnur- inn að Sirkus Íslands. Þetta er röð tilviljana, eins og svo margt í lífinu.“ Fullorðinsskemmtun En hvað er eiginlega burlesque? „Burlesque er fullorðinsskemmt- un, þar sem alls kyns hæfileikum er blandað við kynþokka og stundum stripp. Dita Von Teese er sú fræg- asta sem stundar þetta í dag, en mín- ar uppáhalds eru Gal Friday, Dirty Martini, Peekaboo Pointe og Poison Ivory. Af strákum sem stunda þetta er Chris Harder frábær, Matt Knife er af- skaplega fyndinn, Luminous Pariah fær mann til að efast um allt sem heit- ir kyn og kynvitund og Kheaven Jesus er minn uppáhalds strípitrúður. Svo er kabarettsenan öll full af frábærum skemmtikröftum sem fara úr eng- um fötum eins og Wilfredo, sem ég er að reyna að fá til Íslands, og Carla Rhodes, sem er dásamlegur búktal- ari. Kynnarnir á þessum kvöldum eru líka algjörir grínlistamenn, eins og Mel Frye, Richard Castle, Murray Hill og Bastard Keith. Svo ráðlegg ég áhugasömum að kynna sér M Dame Cuchefrita, sem er líka í miklu upp- áhaldi bæði sem burlesque-kona og sem kokkur og bakari. Núðluatriðið hennar er stórkostlegt. Það vantar ekki hæfileikana hjá þeirri konu.“ Margrét hefur kennt burlesque- námskeið i Kramhúsinu og örnám- skeið í þessum glettna og lostafulla dansi eru vinsæl á þessum árstíma í gæsapartíum. Miss Mokki er að sjálfsögðu með síðu á Facebook þar sem aðdáend- ur geta fylgst með landvinningum hennar. Margrét segir farir sínar í samskiptum við Facebook-veldið þó ekki algjörlega sléttar. „Ég er að reyna að safna fólki á síðuna, því það hjálpar mér að bóka gigg, og ætlaði þess vegna að kaupa Facebook-aug- lýsingu. Mér var hins vegar bann- að að gera það þar sem myndin af mér þótti sýna of mikið hold og vera of klámfengin. Mér finnst myndin bara listræn og mjög falleg.“ Brjóstadúskabransinn Í haust ætlar Miss Mokki að leggja land undir fót og koma fram á sýn- ingum í Seattle og Los Angeles. Margrét segir að það gangi prýði- lega að plana ferðalagið. „Ég er með nokkuð mörg gigg bókuð miðað við marga í þessum brjóstadúskabransa. Ég reyni að ferðast reglulega og koma fram á burlesque-sýningum og kabarett- um ýmiss konar, þá helst í Banda- ríkjunum. Ég fæ ekki greitt fyrir, en fer til að kynna mér þennan heim til að geta haldið senunni gangandi hérlendis. Það geri ég svo með Hits & Tits og Skinn- semi, fullorðinssirkus Sirkus Íslands. Ferðirnar eru líka dýrmætar til að kynnast fólki og segja listamönnum að koma til Íslands með sýn- ingar sínar. Senan hér er öll að lifna við, Dragsúgur er mjög gott dæmi um það, en þau hafa staðið fyrir frábær- um kvöldum á Gauknum upp á síðkastið.“ Margréti dreymir um að breiða út burlesque-fögnuðinn enn frekar á Íslandi og verður að öllum líkind- um með reglulegar sýningar í vetur. „Mig langar að hafa alls konar fólk með mér og er bara að leita að því rétta þessa dagana.“ n Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Myndin dónalega Þetta var of mikið hold fyrir Facebook! Mynd AlEx BRown Glamúr Margrét sýnir reglulega á klúbbum í Bandaríkjunum. Allar sprungnar Í burlesque-atriðum er bæði að finna húmor og kynþokka. Klædd í blöðrur Blöðrurnar springa svo ein og ein og afhjúpa líkama dansdívunnar. Spegilsjálfa Margrét með siðsemiskrossa á geirvörtum. Reggie og Magga „Hættu í skóla og farðu að skapa“ sagði Reggie, og Magga hlýddi. BB | | BB BB BB | BLEMISH BAL M THE ORIGINAL Light Classic Honey| www.schrammek.com The power of medical beauty. Útsölustaðir Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ Nánari upplýsingar: www.vilja.is Dregur úr bólgum í húð og róar húðina Örvar endurnýjun húðar Hylur háræðaslit, stórar húðholur, roða og litabreytingar Sótthreinsandi Gott á sólbruna, brunasár og önnur sár Gott á bólur Góður hyljari Hentar öllum húðgerðum www.schrammekshop.com erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.vilja.is B | | BBB BB | BLEMISH BAL M THE ORIGINAL Light Classic Honey| www.schrammek.com The power of medical beauty. Útsölustaðir Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ Nánari upplýsingar: www.vilja.is Dregur úr bólgum í húð og róar húðina Örvar endurnýjun húðar Hylur háræðaslit, stórar húðholur, roða o litab eytingar Sótthreinsa i Gott á sólbruna, brunasár og önnur sár Gott á bólur Góður hyljari Hentar öllum húðgerðu www.schrammekshop.com erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.vilja.is B |B | BB BB BB | BLEMISH BAL M THE ORIGINAL Light Classic Honey| www.schrammek.com The power of medical beauty. Útsölustaðir Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ Nánari upplýsingar: www.vilja.is Dr gur ú bólgum í húð og róar húðina Örvar endurnýjun húðar Hylur háræðaslit, stórar húðholur, roða og litabreytingar Sótthreinsandi Gott á sólbrun , brunasár og önnur sár Gott á bólur Góður hyljari Hentar öllum húðgerðum www.schrammekshop.com erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.vilja.is Útsölustaðir Verði þinn vilji Snyrti- og nuddstofa. Borgartún 3, Reykjavík Heilsa og útlit Hlíðarsmára 17, Kópavogi Deluxe snyrti- og dekurstofa Glæsibæ Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6, Kópavogi Pandora snyrti- og fótaðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.vilja.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.