Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Qupperneq 38
Helgarblað 15.–18. júlí 201638 Fólk
Gerir það Gott
í brjóstadúskabransanum
e
itt af aukasjálfum Margrét-
ar Erlu Maack er burlesque-
drottningin Miss Mokki.
Margrét hefur um árabil
kennt og sýnt dans, til dæm-
is magadans, Bollywood-dansa og
hina sívinsælu Beyoncé-dansa. Mar-
grét segir að magadansinn hafi leitt
hana út í burlesque-ævintýrið.
„Ég fór til New York 2007 í
magadanstíma. Í ferðinni kynntist
ég Reggie Watts, sem stjórnar núna
hljómsveitinni í The Late Late Show
og er hæfileikaríkasti maður sem ég
hef kynnst. Honum fannst geggjað
að ég væri íslensk magadansmær og
reddaði mér giggum á stöðum eins
og The Box og Slipper Room. Þar
kynntist ég burlesque-dönsurum og
kabarettlistamönnum og heillað-
ist algjörlega. Reggie lagði svo hart
að mér að hætta í Háskólanum og
fara að einbeita mér að því að vera
skemmtileg og skapa.“
Margrét sér ekki eftir þeirri
ákvörðun. „Ég fór að ráðum Reggie,
hætti í Háskólanum og byrjaði að
sækja sirkustíma sem urðu grunnur-
inn að Sirkus Íslands. Þetta er röð
tilviljana, eins og svo margt í lífinu.“
Fullorðinsskemmtun
En hvað er eiginlega burlesque?
„Burlesque er fullorðinsskemmt-
un, þar sem alls kyns hæfileikum er
blandað við kynþokka og stundum
stripp. Dita Von Teese er sú fræg-
asta sem stundar þetta í dag, en mín-
ar uppáhalds eru Gal Friday, Dirty
Martini, Peekaboo Pointe og Poison
Ivory. Af strákum sem stunda þetta er
Chris Harder frábær, Matt Knife er af-
skaplega fyndinn, Luminous Pariah
fær mann til að efast um allt sem heit-
ir kyn og kynvitund og Kheaven Jesus
er minn uppáhalds strípitrúður. Svo
er kabarettsenan öll full af frábærum
skemmtikröftum sem fara úr eng-
um fötum eins og Wilfredo, sem ég
er að reyna að fá til Íslands, og Carla
Rhodes, sem er dásamlegur búktal-
ari. Kynnarnir á þessum kvöldum
eru líka algjörir grínlistamenn, eins
og Mel Frye, Richard Castle, Murray
Hill og Bastard Keith. Svo ráðlegg ég
áhugasömum að kynna sér M Dame
Cuchefrita, sem er líka í miklu upp-
áhaldi bæði sem burlesque-kona og
sem kokkur og bakari. Núðluatriðið
hennar er stórkostlegt. Það vantar
ekki hæfileikana hjá þeirri konu.“
Margrét hefur kennt burlesque-
námskeið i Kramhúsinu og örnám-
skeið í þessum glettna og lostafulla
dansi eru vinsæl á þessum árstíma í
gæsapartíum.
Miss Mokki er að sjálfsögðu með
síðu á Facebook þar sem aðdáend-
ur geta fylgst með landvinningum
hennar. Margrét segir farir sínar í
samskiptum við Facebook-veldið
þó ekki algjörlega sléttar. „Ég er að
reyna að safna fólki á síðuna, því það
hjálpar mér að bóka gigg, og ætlaði
þess vegna að kaupa Facebook-aug-
lýsingu. Mér var hins vegar bann-
að að gera
það þar sem
myndin af
mér þótti
sýna of mikið
hold og vera
of klámfengin. Mér finnst myndin
bara listræn og mjög falleg.“
Brjóstadúskabransinn
Í haust ætlar Miss Mokki að leggja
land undir fót og koma fram á sýn-
ingum í Seattle og Los Angeles.
Margrét segir að það gangi prýði-
lega að plana ferðalagið.
„Ég er með nokkuð mörg gigg
bókuð miðað við marga í þessum
brjóstadúskabransa. Ég reyni að
ferðast reglulega og koma fram á
burlesque-sýningum og kabarett-
um ýmiss konar, þá helst í Banda-
ríkjunum. Ég fæ ekki greitt
fyrir, en fer til að kynna mér
þennan heim til að geta
haldið senunni gangandi
hérlendis. Það geri ég svo
með Hits & Tits og Skinn-
semi, fullorðinssirkus Sirkus
Íslands. Ferðirnar eru líka
dýrmætar til að kynnast fólki
og segja listamönnum að
koma til Íslands með sýn-
ingar sínar. Senan hér er öll
að lifna við, Dragsúgur er
mjög gott dæmi um það, en
þau hafa staðið fyrir frábær-
um kvöldum á Gauknum
upp á síðkastið.“
Margréti dreymir um að breiða
út burlesque-fögnuðinn enn frekar
á Íslandi og verður að öllum líkind-
um með reglulegar sýningar í vetur.
„Mig langar að hafa alls konar fólk
með mér og er bara að leita að því
rétta þessa dagana.“ n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Myndin dónalega Þetta var of mikið hold fyrir Facebook! Mynd AlEx BRown
Glamúr Margrét sýnir reglulega á klúbbum í Bandaríkjunum.
Allar sprungnar Í burlesque-atriðum er
bæði að finna húmor og kynþokka.
Klædd í blöðrur Blöðrurnar
springa svo ein og ein og afhjúpa
líkama dansdívunnar.
Spegilsjálfa Margrét með siðsemiskrossa
á geirvörtum.
Reggie og Magga „Hættu í
skóla og farðu að skapa“ sagði
Reggie, og Magga hlýddi.
BB | |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbruna,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
B | |
BBB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða o litab eytingar
Sótthreinsa i
Gott á sólbruna,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðu
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
B |B |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dr gur ú bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbrun ,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Útsölustaðir
Verði þinn vilji
Snyrti- og nuddstofa.
Borgartún 3, Reykjavík
Heilsa og útlit
Hlíðarsmára 17, Kópavogi
Deluxe snyrti-
og dekurstofa
Glæsibæ
Snyrtistofan Tulip
Hæðasmára 6, Kópavogi
Pandora snyrti- og
fótaðgerðastofa
Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar:
www.vilja.is