Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Blaðsíða 28
Helgarblað 15.–18. júlí 201628 Lífsstíll
V
ið erum mikið fyrir útiveru
og datt í hug að gera eitt-
hvað skemmtilegt í kring-
um það áhugamál.“ Þetta
segir Smári Stefánsson, en
hann hefur, ásamt konu sinni, Hall-
beru Gunnarsdóttur, og sonunum
Friðriki og Loga, sem báðir eru 8 ára,
ákveðið að sofa utandyra 52 sinnum
næsta árið.
„Við ákváðum þetta í kringum af-
mæli strákanna, þann 24. júní, og
markmiðið er að ná að meðaltali
einni nótt á viku áður en 9 ára afmæli
þeirra rennur upp.“
Fylgist með á Facebook
Fjölskyldan stofnaði Facebook-síð-
una, Útigöngufjölskyldan, þar sem
hún hyggst deila myndum, mynd-
böndum og frásögnum af nætur-
stöðum. „Við hefðum auðvitað getað
gert þetta og haldið kjafti, en okk-
ur langaði í leiðinni að hvetja fólk
til meiri útiveru. Síðan fjallar um að
gista úti, en við ætlum líka að birta
góð ráð og frásagnir af ýmsu sniðugu
sem við finnum upp á utandyra.“
Vön útivist
Smári og Hallbera eru engir ný-
græðingar í útivist, en bæði eru
þau menntuð sem íþróttakennar-
ar og stunduðu í kjölfarið útivistar-
nám í Noregi. Hallbera er grunn-
skólakennari í Bláskógaskóla á
Laugarvatni og er þar verkefnastjóri
yfir þróunarverkefni í útikennslu, og
Smári kennir útivist við íþrótta- og
heilsubraut Háskóla Íslands. „Strák-
arnir eru líka vanir. Þegar við bjugg-
um í Bodö í Norður-Noregi á árun-
um 2012–14 gengu þeir í leikskóla
þar sem mikil áhersla var á útivist.“
Smári segir Íslendinga geta lært
sitthvað af Norðmönnum þegar
kemur að útivist. „Þar er ríkjandi
mikill kúltúr í kringum útivist og fólk
er ekki að láta smámuni eins og veð-
ur hamla sér. Maður verður auðvit-
að að bera ákveðna virðingu fyrir
slæmu veðri, en við erum alltof góð
við okkur. Íslendingum þykir afskap-
lega gott að sitja inni þegar veðrið er
slæmt.“
Fyrsta ferðin í Kerlingarfjöll
Síðan fjölskyldan ákvað að hefja
verk efnið hefur hún gist þrjár næt-
ur utandyra. „Strákarnir áttu afmæli
fyrir þremur vikum svo við erum á
áætlun. Við gistum í Kerlingarfjöll-
um, reyndar þrjár nætur í röð. Á end-
anum verða þetta í það minnsta 52
nætur yfir árstímabil.“
Smári segir að fjölskyldan sé
ekki með áætlun, heldur ætli að
láta það ráðast hvar gist verður. Þau
munu ekki láta vetrarveður aftra sér.
„Við höfum verið svo mikið í fjalla-
mennsku og eigum allan búnað sem
þarf til að þola kuldann.“
Góð ráð
Eflaust gætu margir hugsað sér að
stunda meiri útiveru, til dæmis á
kostnað skjátíma og sjónvarpsgláps.
Smári segir að oft mikli fólk fyrir sér
að stunda útivist. Hvaða ráð skyldi
hann hafa til þeirra sem vilja taka
útigöngufjölskylduna til fyrirmynd-
ar?
„Ég ráðlegg þeim sem eru óvan-
ir að byrja smátt. Þetta þarf ekki að
vera svo flókið. Það er líka sniðugt að
skoða skipulagðar barnvænar ferðir,
til dæmis eins og þær sem Ferðafélag
barnanna býður upp á. Í þannig ferð-
um er hægt að læra ýmislegt og byrja
svo sjálfur að skipuleggja sínar eigin
ferðir í kjölfarið.“ n
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin
mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
Ætla að
sofa úti
vikulega
næsta árið
Útigöngufjölskyldan lætur veðrið ekki stöðva sig
Sofa úti Smári Stefáns-
son og fjölskylda ætla að
sofa utandyra 52 sinnum á
einu ári. Mynd SiGtryGGur Ari
Úti í stuði
Fjölskyldan öll í
Kerlingarfjöllum.
ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is