Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Qupperneq 28
Helgarblað 15.–18. júlí 201628 Lífsstíll V ið erum mikið fyrir útiveru og datt í hug að gera eitt- hvað skemmtilegt í kring- um það áhugamál.“ Þetta segir Smári Stefánsson, en hann hefur, ásamt konu sinni, Hall- beru Gunnarsdóttur, og sonunum Friðriki og Loga, sem báðir eru 8 ára, ákveðið að sofa utandyra 52 sinnum næsta árið. „Við ákváðum þetta í kringum af- mæli strákanna, þann 24. júní, og markmiðið er að ná að meðaltali einni nótt á viku áður en 9 ára afmæli þeirra rennur upp.“ Fylgist með á Facebook Fjölskyldan stofnaði Facebook-síð- una, Útigöngufjölskyldan, þar sem hún hyggst deila myndum, mynd- böndum og frásögnum af nætur- stöðum. „Við hefðum auðvitað getað gert þetta og haldið kjafti, en okk- ur langaði í leiðinni að hvetja fólk til meiri útiveru. Síðan fjallar um að gista úti, en við ætlum líka að birta góð ráð og frásagnir af ýmsu sniðugu sem við finnum upp á utandyra.“ Vön útivist Smári og Hallbera eru engir ný- græðingar í útivist, en bæði eru þau menntuð sem íþróttakennar- ar og stunduðu í kjölfarið útivistar- nám í Noregi. Hallbera er grunn- skólakennari í Bláskógaskóla á Laugarvatni og er þar verkefnastjóri yfir þróunarverkefni í útikennslu, og Smári kennir útivist við íþrótta- og heilsubraut Háskóla Íslands. „Strák- arnir eru líka vanir. Þegar við bjugg- um í Bodö í Norður-Noregi á árun- um 2012–14 gengu þeir í leikskóla þar sem mikil áhersla var á útivist.“ Smári segir Íslendinga geta lært sitthvað af Norðmönnum þegar kemur að útivist. „Þar er ríkjandi mikill kúltúr í kringum útivist og fólk er ekki að láta smámuni eins og veð- ur hamla sér. Maður verður auðvit- að að bera ákveðna virðingu fyrir slæmu veðri, en við erum alltof góð við okkur. Íslendingum þykir afskap- lega gott að sitja inni þegar veðrið er slæmt.“ Fyrsta ferðin í Kerlingarfjöll Síðan fjölskyldan ákvað að hefja verk efnið hefur hún gist þrjár næt- ur utandyra. „Strákarnir áttu afmæli fyrir þremur vikum svo við erum á áætlun. Við gistum í Kerlingarfjöll- um, reyndar þrjár nætur í röð. Á end- anum verða þetta í það minnsta 52 nætur yfir árstímabil.“ Smári segir að fjölskyldan sé ekki með áætlun, heldur ætli að láta það ráðast hvar gist verður. Þau munu ekki láta vetrarveður aftra sér. „Við höfum verið svo mikið í fjalla- mennsku og eigum allan búnað sem þarf til að þola kuldann.“ Góð ráð Eflaust gætu margir hugsað sér að stunda meiri útiveru, til dæmis á kostnað skjátíma og sjónvarpsgláps. Smári segir að oft mikli fólk fyrir sér að stunda útivist. Hvaða ráð skyldi hann hafa til þeirra sem vilja taka útigöngufjölskylduna til fyrirmynd- ar? „Ég ráðlegg þeim sem eru óvan- ir að byrja smátt. Þetta þarf ekki að vera svo flókið. Það er líka sniðugt að skoða skipulagðar barnvænar ferðir, til dæmis eins og þær sem Ferðafélag barnanna býður upp á. Í þannig ferð- um er hægt að læra ýmislegt og byrja svo sjálfur að skipuleggja sínar eigin ferðir í kjölfarið.“ n Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður. Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS Þjóðleg sumarhús sem falla einstaklega vel að íslensku landslagi Ætla að sofa úti vikulega næsta árið Útigöngufjölskyldan lætur veðrið ekki stöðva sig Sofa úti Smári Stefáns- son og fjölskylda ætla að sofa utandyra 52 sinnum á einu ári. Mynd SiGtryGGur Ari Úti í stuði Fjölskyldan öll í Kerlingarfjöllum. ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.