Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Blaðsíða 17
Helgarblað 15.–18. júlí 2016 Umræða 17
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Yfirfærum
yfir 30 gerðir
myndbanda,
slides og
fleira
Björgum
minningum
Persónulegar
gjafir við öll
tækifæri
Allt til að
merkja
vinnustaðinn
Rauðarárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga kl. 10–18
uppbod.is
Louisa Matthíasdóttir
Jóhannes S. Kjarval
Kristján Davíðsson
Sumarperlur
Vefuppboð nr. 228
Einstakar perlur eftir
íslenska myndlistarmenn
Uppboðinu lýkur 13. júlí
Álfar, efnahagsmál og íþróttir
Spán, Króatíu, Svíþjóð, Rússland og
Danmörku. Snemma í september
það ár er handboltahetjurnar sneru
heim var þeim fagnað af hálfri þjóð-
inni í miðborg Reykjavíkur. Þetta var
ein glæstasta stund í okkar sögu,
enda var veðrið frábært og árgæska
til sjós og lands, efnahagslífið virt-
ist allt í blóma, íslensku bankarn-
ir voru að breytast í alþjóðlega risa,
og sú hugmynd leitaði á marga að
úr þessu myndi ekkert illt geta hent
okkur. En aðeins þremur eða fjór-
um vikum seinna vöknuðum við við
nýjan veruleika; allt íslenska banka-
kerfið fór á hausinn á einni nóttu,
það tók Seðlabankann með sér og
flestar stærstu fyrirtækjasamstæð-
urnar að auki. Það virtist áþreifanleg
hætta á að ríkið hryndi að auki og
sjóðir þess tæmdust og ríkisstjórnin
sat á neyðarfundum vegna þeirrar
yfirvofandi skelfingar að við mynd-
um ekki lengur geta greitt fyrir svo
lífsnauðsynlegar innflutningsvör-
ur eins og eldsneyti eða lyf. Á þeirri
stundu mundi enginn lengur glæsta
sigra handboltaliðsins okkar innan
við mánuði fyrr.“
Og niðurlag pistilsins:
Svona lét ég gamminn geisa um
hríð, sumt af því sem ég ræddi er
flestum hér kunnugt, og ég sjálfur
áður tekið fyrir í pistlum á þessum
vettvangi. En ég endaði sumpart á
jákvæðum nótum:
„En furðu fljótt fór allt að ganga
betur. Forsætisráðherrann var
meira eða minna sýknaður og er nú
ambassador í Washington, hrun-
skýrslunnar óralöngu er nú helst
minnst fyrir óvænt bókmennta-
legt gildi hér og þar, fyrirtækin
sem lifðu af tóku brátt að blómg-
ast á ný. Bresk stjórnvöld töpuðu
málaferlunum á hendur íslenskum
skattgreiðendum, fiskimiðin eru full
af fiski, og vinsældir landsins sem
ákvörðunarstaður ferðamanna hafa
aukist svo mikið að nú koma hing-
að sexfalt fleiri en fyrir hrun; nú í ár
verða hér eitthvað um fimmfalt fleiri
ferðamenn en innlendir borgarar.
Eina áhyggjuefnið virðist vera að
ástandið minnir æ meir á það sem
var fyrir hrunið 2008. En svona er
þetta í lífinu: líka sporti og bissness;
stundum vinnur maður, en stund-
um tapast.“ n
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson „Forsætisráðherrann, valdamesti maður samfélags-
ins, neyddist til að hverfa úr embætti á svipstundu.“ MynD SiGtryGGur Ari„Eina áhyggju-
efnið virðist vera
að ástandið minnir æ
meir á það sem var fyrir
hrunið 2008.