Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 15.–18. júlí 201622 Fólk Viðtal „Bara úr fjarlægð. Ég er löngu hættur þarna og er ekkert að velta málefnum RÚV fyrir mér, nema hvað ég hlusta auðvitað stundum og horfi stundum. Svo vinnur dótt- ir mín þarna og ég fylgist auðvitað með því sem hún er að gera.“ Gefandi lífsreynsla Fyrr á þessu ári var sýnd í sjónvarpi heimildamynd sem Páll gerði ásamt Jóni Gústafssyni í samvinnu við Ís- lenska erfðagreiningu um Alzhei- mer-sjúkdóminn. Þeir eru nú að leggja síðustu hönd á heimilda- mynd um arfgengt brjóstakrabba- mein. Hann er spurður um upplifun sína af vinnunni við þessar myndir. „Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Og það allra skemmtilegasta hefur verið að kynnast nýju fólki með allt öðruvísi vandamál og viðfangsefni í lífinu en maður á að venjast. Þegar maður er búinn að vera í svona störfum eins og ég er búinn að vera í áratugum saman þá er maður að umgangast og tala við fólk sem er að miklu leyti með samstofna við- fangsefni og verkefni. Þegar við fór- um að gera þessar heimildamyndir þá kynntist ég allt öðruvísi fólki með allt öðruvísi reynsluheim. Í þessari fyrstu heimildamynd var fjallað um Alzheimer. Núna erum við að fjalla um það að vera með stökkbreytingu í svokölluðu brakkageni sem gerir að verkum að það geta verið 80 prósent líkur á því að fá brjóstakrabbamein. Hvernig tekst fólk á við vitneskjuna um það að vera í tíu sinnum meiri áhættu en allir aðrir við að fá tiltekið krabba- mein og geta dáið úr því? Það þarf meðal annars að taka ákvörðun um hvort það eigi að undirgangast fyrir- byggjandi aðgerð til að forða sér frá þessum örlögum. Fyrir mig var það gefandi lífsreynsla og viss opinber- un að kynnast þessu fólki og verða vitni að þeim hetjuskap og æðru- leysi sem það sýnir í baráttu sinni.“ Ekki afhuga stjórnmálaþátttöku Snúum okkur að pólitík. Þú hefur gert eitthvað af því að skrifa blaða- greinar um þjóðfélagsmál sem hafa vakið nokkra athygli. Gætirðu hugs- að þér að fara í stjórnmál? „Þetta hefur stundum verið orð- að við mig í gegnum tíðina og ég hef alltaf verið mjög afhuga því. Alveg frá því ég var þingfréttamaður þá hef ég hugsað sem svo: Þetta vil ég ekki gera. Stuðningsmenn tveggja stjórnmálaflokka hafa talað um það við mig núna að fara í framboð í haust. Það hefur svosem gerst áður en þetta er í fyrsta skiptið sem ég hef ekki sagt þvert nei. Ég er að hugsa málið.“ Viltu segja mér hvaða flokkar þetta eru? „Nei, nú er það mitt að vita og þitt að giska.“ Hefurðu alltaf haft mikinn áhuga á stjórnmálum? „Já, en fyrst og fremst sem áhorf- andi og fjölmiðlamaður en ekki sem þátttakandi. En í fyrsta skiptið núna þá finn ég á sjálfum mér, og það kom mér á óvart eftir allan þennan tíma, að ég er ekki afhuga því.“ Hvar staðsetur þú þig í hinu póli- tíska litrófi? „Ef það ætti að pína mig til að nota eitt orð væri það frjálslynd- ur, og ég gæti ábyggilega fundið því frjálslyndi stað í fleiri en einum stjórnmálaflokki. Sennilega myndi einhver vilja bæta við: hægra megin við miðju - en þessi vinstri/hægri skali dugar ekki jafnvel og áður til að staðsetja fólk á hinu pólitíska litrófi. Píratar fara með hæstum hæðum núna, eru þeir vinstri flokkur eða hægri flokkur? Ég veit það ekki; held helst að þeir séu hvorugt. Það unga fólk sem ég tala við notar ekki skipt- inguna í hægri og vinstri með sama hætti og áður tíðkaðist og hugsar ekki eftir sömu línum og eldri kyn- slóðin gerir. Smám saman er þessi vinstri-hægri skali ekki lengur að svara spurningum um það hvaða pólitísku afstöðu fólk hefur í þeim mæli sem hann gerði.“ Glatað traust Það virðist vera ákveðin upplausn í stjórnmálunum hér á landi, hefurðu áhyggjur af því? „Í haust eru átta ár liðin frá hrun- inu og okkur hefur að mestu tekist að laga efnahagslegu skemmdirn- ar sem urðu. Hér er allt í blússandi uppsveiflu; sjávarútvegurinn, ferða- mannabransinn og aðrar atvinnu- greinar dafna. Lífskjörin eru smám saman að ná sér á strik og kaupmáttur er að aukast. Það urðu hins vegar aðr- ar skemmdir í hruninu. Traustið, sem á að vera límið í samfélaginu, hvarf að miklu leyti og það hefur nákvæmlega ekkert gengið að endurheimta það. Í öllum mannlegum samskiptum er það sem betur fer þannig að maður treystir þeim sem maður á í samskipt- um við þangað til annað kemur í ljós. Traustið er útgangspunkturinn, mað- ur byrjar á að treysta nema maður sé óeðlilega tortrygginn að upplagi. Núna er þessu öfugt farið, menn byrja á að tortryggja og vantreysta þangað til annað kemur í ljós. Og þetta gerist ekki af sjálfu sér. Ítrekað sér fólk hluti sem sann- færa það um að það sé kannski bara öruggast að tortryggja allt. Alls kon- ar dæmi hafa komið upp á síðustu misserum. Stjórnendur í banka og fyrirtæki sem er að fara á markað, Síminn á sínum tíma, halda að það sé enn í lagi, eftir hrun, að handpikka vini sína sem fá að kaupa hlutabréf á lágu verði og gera þá ríkari áður en fyrirtækið fer á markað fyrir almenn- ing. Fólk sér þetta og því blöskrar. Það er hægt að taka fleiri dæmi. Forystumenn í atvinnulífinu sitja á fundi í stjórn Samtaka atvinnulífs- ins, koma út af fundinum og segja grafalvarlegir að það sé ekki svigrúm til að hækka laun á Íslandi meira en tvö til þrjú prósent, annars fari allt til andskotans. Þetta sama fólk fer sama dag á stjórnarfund, til dæm- is í Granda eða VÍS, og hækkar eig- in laun um 30–40 prósent á einu bretti. Og þessir menn halda enn, eft- ir hrun, að þetta sé allt í lagi og að það gildi allt önnur lögmál um þá sjálfa en alla aðra. Núna nýlega sjáum við dæmi um að Kjararáði finnst allt í lagi að hækka ráðuneytisstjóra um 30 prósent í launum meðan aðrir eiga að láta 3 prósentin duga. Það er þessi hegðan í samfélaginu sem gerir að verkum að traustið er enn í núllpunkti. Fólk er alltaf að sjá dæmi um það aftur og aftur að það borgi sig bara að gera ráð fyr- ir því í upphafi að rangt sé haft við – og reikna með því þangað til ann- að kemur í ljós. Þetta held ég að sé miklu meiri vandi en þau efnahags- legu áhrif sem urðu af hruninu.“ „Þarna líður mér best“ Að lokum, þegar ég ræddi við þig um að koma í viðtal frestaðist það vegna þess að þú vildir vera í Vestmanna- eyjum og sigla á báti þínum. Er þetta einhver stórútgerð? „Þessi útgerð mín er stórlega orð- um aukin en viljandi geri ég lítið til að leiðrétta það. Ég reyni að vera eins mikið í Vestmannaeyjum og ég mögulega get og á litla tuðru sem ég þvælist um á þegar veður leyf- ir. Eini gallinn við það að sjá um Sprengisand á sunnudagsmorgn- um er að langar helgar sem ég vil helst eiga alltaf í Vestmannaeyjum, sérstaklega yfir sumartímann, hafa orðið styttri en efni stóðu til.“ Þú ert alinn upp í Vestmannaeyj- um, hefurðu sterkar taugar til þess staðar? „Ég hef alltaf sótt mikið þangað og eftir því sem ég hef elst sæki ég enn meira þangað, í æsku minnar spor, eins og Ási í Bæ sagði. Það er eitthvað við samfélagið, náttúruna og fólkið sem gerir það að verkum að þarna finnst mér alltaf að ég eigi heima og þarna líður mér best. Bók eftir Stefán Jónsson byrjar á þeirri staðhæfingu að hann sé veiðimaður. Það skipti engu hvaða störf hann hefði unnið sér til viðurværis; aðspurður gæti hann ekki sannara sagt en að hann væri veiðimaður. Þetta er spurn- ingin um það hvernig maður upplif- ir sjálfan sig. Ef ég væri spurður eins og Stebbi á löppinni: hvað ertu? þá er fyrsta svarið sem mér dettur í hug: Ég er Vestmannaeyingur.“ n „Stuðningsmenn tveggja stjórn- málaflokka hafa talað um það við mig núna að fara í framboð í haust. Það hefur svosem gerst áður en þetta er í fyrsta skiptið sem ég hef ekki sagt þvert nei. Ég er að hugsa málið. Heimildamyndagerð „Fyrir mig var það gefandi lífsreynsla og viss opin- berun að kynnast þessu fólki og verða vitni að þeim hetjuskap og æðruleysi sem það sýnir í baráttu sinni.“ Mynd SiGtryGGur Ari Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is Póst-sendum um allt land Allt til hanny rða160 garnt egundir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.