Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2016, Qupperneq 6
Helgarblað 15.–18. júlí 20166 Fréttir Umsýslufélag ríkisins fær ráðgjafa til að selja eignir fyrir milljarða n Virðing og Landsbankinn annast sölu á eignarhlutum í fimm fyrirtækjum n Markaðsvirði eigna yfir 10 milljarðar E ignaumsýslufélag ríkisins, sem heldur utan um tug- milljarða eignir sem voru af- hendar stjórnvöldum vegna stöðugleikaframlags slitabúa gömlu bankanna, mun á næstu vikum og mánuðum selja eignarhluti í skráð- um og óskráðum fyrirtækjum sem eru metnir á meira en tíu milljarða króna. Félagið Lindarhvoll, sem annast um- sýslu þessara stöðugleikaeigna, hefur þannig nýlega gengið frá samkomu- lagi við tvö fjármálafyrirtæki um að vera ráðgjafi við sölu á eignunum. Samkvæmt heimildum DV mun Virðing vera fjármála- og söluráð- gjafi við söluferli á Lyfju, sem er ein stærsta lyfjakeðja landsins, en ríkið fer með 100% eignarhlut í fyrirtækinu. Þá mun Landsbankinn annast ráðgjöf vegna sölu skráðra hlutabréfaeigna í umsýslu Lindarhvols en þar er um að ræða eignarhluti í tryggingafélaginu Sjóvá, Reitum fasteignafélagi, Síman- um og Eimskipafélagi Íslands. Miðað við núverandi gengi bréfa í félögun- um sem eru skráð í Kauphöll Íslands nemur verðmæti eignarhluta ríkis- ins í þeim samtals um sjö milljörðum króna. Ein verðmætasta eignin Lindarhvoll óskaði í byrjun júní- mánaðar eftir tilboðum frá fyrirtækj- um um að taka að sér ráðgjafarhlut- verk vegna sölu á eignarhlutum í samtals fimm skráðum og óskráðum félögum í eigu ríkisins. Bárust tilboð frá flestum þeirra fjármálafyrirtækja sem hafa leyfi til að annast slíka ráð- gjöf. Eignarhlutur ríkisins í Lyfju er á meðal verðmætustu einstöku eigna í formi hlutafjár í félögum og fjár- festingasjóðum sem eru í umsýslu Lindarhvols en hluturinn var áður í eigu slitabús Glitnis. Lyfjakeðjan var upphaflega tekin yfir af Glitni árið 2012 þegar þáverandi eigandi félags- ins gat ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart slitabúinu. Þrátt fyr- ir áhuga fjárfesta þá báru tilraunir Glitnis í kjölfarið til að selja fyrirtæk- ið engan árangur, ekki síst vegna þess, samkvæmt heimildum DV, að Glitn- ir vildi fá erlendan gjaldeyri til sín við söluna. Afkoma af rekstri Lyfju hefur far- ið batnandi á undanförnum árum. Þannig nam hagnaður fyrirtækisins á árinu 2014 tæplega 300 milljón- um króna og meira en tvöfaldaðist frá fyrra ári. Þá jókst einnig EBITDA- hagnaður á milli ára – afkoma fyr- ir afskriftir, fjármagnsgjöld og skatta – og nam samtals 667 milljónum en heildarvelta fyrirtækisins var um 8.500 milljónir króna á árinu 2014. Að því gefnu að EBITDA-afkoma lyf- jakeðjunnar hafi aukist enn frekar á árinu 2015, en ársreikningur félagsins fyrir síðasta ár hefur ekki verið gerð- ur opinber, þá má varlega áætla að allt hlutafé Lyfju sé metið á bilinu 4 til 6 milljarða króna. Gert er ráð fyrir því að niðurstaða fáist í söluferli Lyfju ekki síðar en á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Ríkið stærsti hluthafinn Fljótlega eftir að Lyfja komst í hend- ur ríkisins tóku Steinar Þór Guðgeirs- son, hæstaréttarlögmaður og ráð- gjafi Seðlabanka Íslands, og Haukur C. Benediktsson, forstöðumaður Eignasafns Seðlabanka Ísands (ESÍ), sæti sem fulltrúar stjórnvalda í stjórn fyrirtækisins. Haukur og Steinar sitja í stjórnum fjölmargra óskráðra félaga sem ríkið á hagsmuna að gæta í vegna stöðugleikaframlags gömlu bank- anna og þá er Haukur einnig í þriggja manna stjórn Lindarhvols. Verðmætustu eignarhlutir rík- isins í skráðum félögum á markaði eru í Sjóvá og Reitum en í tilfelli Eim- skips og Símans er um að ræða hluti sem eru undir 1% af öllu hlutafé fyr- irtækjanna. Ríkissjóður er sem stend- ur stærsti einstaki hluthafi Sjóvár með tæplega 14% eignarhlut og nem- ur markaðsvirði þess hlutar um 2,55 milljörðum króna. Ríflega 6% hlutur ríkisins í Reitum, stærsta fasteignafé- lagi landsins, er hins vegar enn verð- mætari en sé litið til núverandi gengi bréfa fyrirtækisins þá ætti sala á þeim hlut að skila ríkinu um 3,9 milljörð- um króna. Landsbankinn verður sem fyrr segir milligönguaðili fyrir hönd Lindarhvols við sölu á eignarhlutum í þessum fjórum félögum og ætti það að geta gengið hratt fyrir sig þar sem verið er að selja hlutabréf í félögum sem eru skráð á markað. 60 milljarða eignir Félagið Lindarhvoll var sett á stofn í apríl síðastliðnum en hlutverk þess er að annast umsýslu með og fulln- usta þær eignir – að undanskildum 95% eignarhlut í Íslandsbanka sem færðist yfir til Bankasýslunnar – sem ríkissjóður fékk við stöðugleikafram- lag föllnu bankanna. Verðmæti eigna í umsýslu félagsins er yfir 60 milljarð- ar króna miðað við bókfært virði en nafnvirði eignanna nemur hins vegar hundruðum milljarða króna. Auk Hauks er stjórn félagsins skipuð þeim Þórhalli Arasyni, skrifstofustjóra í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og jafnframt stjórnarformaður félagsins, og Ásu Ólafsdóttur, dósents við lög- fræðideild Háskóla Íslands. n Aðrar hlutafjáreignir í umsýslu Lindarhvols ALMC eignarhaldsfélag Auður I fagfjárfestasjóður Brú II Venture Capital Fund Dohop Eyrir Invest Internet á Íslandi Klakki Nýi Norðurturninn S Holding SCM 13,93% 2.560 milljónir 6,38% 3.930 milljónir 0,89% 275 milljónir 0,71% 395 milljónir 100% 4.000 til 6.000 milljónir Hörður Ægisson hordur@dv.is Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson skipaði stjórn eignaumsýslufélagsins í apríl síðastliðnum. Mynd SigtRygguR ARi L E D L Ý S I N G I n n f e l l d L e d l j ó s , u t a n á l y g g j a n d i L e d . LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS www.ledljos.com * www.ledljós.is S; 565 8911 - 867 8911 ludviksson@ludviksson.com LEDLJÓS SPARA ALLT AÐ 80 - 92% ORKU Gæði - ábyrgð og brautryðjendur í betri verðum... V IÐ ERUM ÓDÝRARI EN Þ IG GRUNAR JU-5049-15W Kr. 4.520.- JU-5049-15W Kr. 4.520.- JU-5049-10W Kr. 3.920.- JU-5050- 7 W Kr. 2.157.- JU-5089-20W Kr. 9.360.- JU-5048-10W Kr. 3.520.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.