Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Side 7
Vikublað 3.–4. ágúst 2016 Fréttir 7 … komdu þá við hjá okkur Ertu á leið í flug? Hafnargötu 62, KEflavíK / pöntunarsími 421 4457 Hádegis-tilboð alla daga Lamdi sig í andlitið með lyklum Þetta rifrildi átti eftir að enda á óhugnanlegan hátt. „Hann tók allt í einu upp lykla á borðinu og byrjaði að berja sig í andlitið. Síðan hringdi hann í lögregluna og tilkynnti að hann hefði orðið fórnarlamb heimilis ofbeldis,“ segir Björg Amalía og hristir höfuðið. Hún segir til- vist myndbandsins vera sára. „Þetta er afar niðurlægjandi enda er ég ekki beint upp á mitt besta í mynd- bandinu og það er svo gjörsamlega tekið úr samhengi,“ segir Björg Amalía. Þessi uppákoma var kornið sem fyllti mælinn og í kjölfarið tókst henni að koma Ara út af heimili sínu. Síðar kom í ljós að hann hafði stundað það að taka af henni mynd- ir, myndbönd og hljóðupptökur sem hann hefur síðan notað sem vopn gegn henni. „Ég held að hann sé bara búinn að birta brot af því sem er í hans fórum. En ég óttast ekki frekari birtingar, hann getur ekki meitt mig lengur,“ segir Björg Amalía. Nektarmyndir til nágranna Þetta var ekki eina opinberlega niðurlægingin sem Björg Amalía mátti þola. Skömmu eftir sambands- slitin fengu íbúar í stigaganginum, sem Björg Amalía býr í, senda nekt- armynd af henni og á hana var skrif- að að hún væri að selja sig fyrir dóp. Ef leitað er eftir nafni hennar á leitar- vélum sést líka ógrynni af Facebook- síðum, færslum á samfélagsmiðlum og myndum af henni í miður „Þeir hringja og ég segi þeim að halda kjafti“ Ari hafnar öllum ásökunum Ari Sigurðsson segir frásögn Bjargar Amalíu fráleita og gagnrýnir störf lögreglunnar harðlega. Hann segir að Björg beri ábyrgð á ofbeldinu og segist sjálfur vera fórnarlamb. „Hún er búin að níðast á mér ansi lengi. Hún beitti mig heimilisofbeldi og það hefur rignt yfir mig hótunum um líkamsmeiðingar frá kunningjum hennar og vinum,“ segir Ari. Hann harmar viðbrögð lögreglu og telur þau óásættanleg. „Ég sendi öll gögnin á lögreglu en hún fór í sumarfrí og ekkert gerðist. Á meðan var mér hótað og hótað af hinum og þessum gaurum sem ég þekkti ekki neitt. Sífelldar símahótanir og smáskilaboð. Ég reyndi þá að semja við Björgu um að við myndum hvorugt kæra og þannig gæti ég kúplað mig út úr þessum vinskap og far- ið að vinna. Það gekk hins vegar ekki eftir,“ segir Ari. Þetta er áreiti Eins og áður segir er Ari mjög gagnrýninn á störf lögreglu. „Mín upplifun er sú að konur komast upp með að segja ansi mikið. Þær geta öskrað að verið sé að kyrkja sig og lögreglan handtekur manninn, án þess að spyrja hvað kom fyrir hann,“ segir Ari. Hann nefnir sem dæmi að hann hafi verið handtekinn eftir að til handalögmála kom milli þeirra í fyrsta sinn. Þá hafi hann einnig verið færður af vettvangi eftir hnífaárásina en bendir á að Björg Amalía hafi síðan farið upp á lögreglustöð og afsakað sig með þeim orðum að hún hafi farið með rangt mál. Eins og fram kemur í viðtali við Björgu Amalíu hefur Ari birt myndir og myndbönd af samskiptum þeirra. Að hans mati er það hans eina vörn til þess að fólk trúi því hvað hann hafi gengið í gegnum. „Mér finnst skrítið að fólk haldi að ég, sem karlmaður sem lendi í þessu, eigi ekki að skipta mér af hlutunum. Sumir virðast telja að ég eigi að halda kjafti og gleyma þessu. Það er ekki jafnrétti. Lögreglan hefur sinnt henni miklu betur og tekur mál- stað hennar. Lögreglan er búin að hringja í mig, angra mig og ónáða mig. Þetta er áreiti,“ segir Ari sem getur ekki ímyndað sér hvaða ástæða sé fyrir því að lögreglan gangi svo hart fram. Hafa engan rétt „Þeir hafa engan rétt til þess að hringja í mig fyrir hönd Bjargar og spyrja mig hvað ég sé að gera á netinu. Þeir hringja og ég segi þeim að halda kjafti,“ segir Ari. Hann nefnir sem dæmi að lögreglukona hafi hringt í hann og hótað honum undir rós að hann yrði að breyta efni á netinu annars yrði hann settur í nálgunarbann. „Ég sagði við hana að hún réði ekki hvort að ég yrði settur í slíkt bann út af einhverju sem Björg Amalía segði. Það gengur ekki og þú veist það jafnvel og ég, þú hótar mér ekkert nálgunarbanni,“ segir Ari. Að hans sögn hafi lögreglan síðar hringt í hann og beðist afsökunar. Ari telur sig ekki hafa gengið of langt með myndbandsbirtingum af Björgu Amalíu og aðstandendum hennar og að það komi ekki til greina að taka myndböndin niður til þess að fá frið. „Ég sé enga ástæðu til þess. Þetta eru myndbönd sem ég hef fullt leyfi til þess að birta. Ég hef yfirleitt lent í því að enginn trúir því að ég hafi lent í þessu ofbeldi. Þetta er að mínu mati myndband á móti orði,“ segir Ari. Sér enga ástæðu til þess Aðspurður um aðgerðir sínar gegn vinkonu Bjargar Amalíu sem flúin er norður í land segir Ari. „Hún er skemmdari manneskja en nokkur maður getur gert sér grein fyrir. Hún sendi mér myndband þar sem tæknilega kemur fram heimilisofbeldi. Hún hringdi síðar og bað mig um að taka það myndband niður en ég sé enga ástæðu til þess. Hún gerði grín að mér og heimilisofbeldi og ég ætla að halda þessu myndbandi á lofti sem karaktervitnis- burði,“ segir Ari. Hann segist hafa frétt fyrir tilviljun að vinkonan væri flutt norður og fengið vinnu. Hann hafi í framhaldinu haft samband við yfirmann hennar með þau gögn sem hann hafi undir höndum. „Hún stökk í einhverja vörn og lok- aði Facebook-síðu fyrirtækisins. Ég er gapandi yfir því að hún hafi kosið að þagga málið niður með þessum hætti,“ segir Ari. Hann segist ekki hafa hugmynd um hver braut rúðurnar á heimili Bjargar Amalíu. „Hún hefur ásakað mig um að drepa kettina sína og sagt að ég hafi nauðgað henni. Þannig er það ekki,“ segir Ari. Hann segir að baráttan hafi ekki reynst honum erfið en að undarlegt sé að upplifa viðbrögð þeirra sem koma að málinu. „Karlmönnum er ekki trúað,“ segir Ari að lokum. Björg Amalía hundelt af eltihrelli MyNdir Sigtryggur Ari skemmtilegu ástandi. Yfirleitt fylgja svívirðileg textaskilaboð með. „Það viðbjóðslega er að þetta gerðist sama dag og amma mín dó. Það vissi hann vel,“ segir Björg Amalía. Hún segir erfitt að upplifa varnarleysi gegn slíkum árásum á mannorð sitt og æru. Lögreglan geti ekkert gert og óratíma taki að fá síðum með slíku efni lokað. Takist það sprettur ný upp með sama efni og ferlið hefst aftur. „Það var hræðilegt að sjá þetta fyrst og að einhverju leyti þá verður þetta alltaf sárt. Ég ætla aftur á móti ekki að láta þetta brjóta mig niður,“ segir Björg Amalía. Samkvæmt upplýsing- um DV hefur málið verið í ferli inn- an lögreglunnar og eru um þrjár vik- ur síðan það var síðast til afgreiðslu. Þá var Ara gerð grein fyrir því að ef hann héldi áfram ofsóknum sínum yrði farið fram á nálgunarbann. Brotnar rúður Áreitið hefur ekki stoppað síðan og meðal annars vaknaði Björg við það að báðar rúðurnar í stofuglugganum hennar molbrotnuðu um miðja nótt. Skuggavera sást hlaupa á brott og Björg Amalía er sannfærð um hver var þar að verki. Áreitið hefur þó ekki aðeins beinst gegn henni heldur einnig flestum sem tengjast henni. „Pabbi hefur orðið mest fyrir barðinu á honum. Ég veit í raun ekki af hverju, þeir rifust einu sinni og það virðist hafa ver- ið nóg. Ari veit hversu vænt mér þykir um föður minn og það er kannski ástæðan,“ segir Björg. Meðal annars hefur faðir hennar fengið ógrynn- in öll af skila- boðum, bæði rafrænum sem og í bréfa- pósti, oftar en ekki fylgja hótanir með. Sömu sögu er að segja af öðrum fjöl- skyldumeð- limum. Vinkonan flúði út á land Þá hafa verið stofnaðar fjöl- margar síður til höfuðs vin- konu Bjargar Amalíu auk þess sem hún hefur verið áreitt með ískyggi- legum hætti. Hún brá á það ráð að flytja út á land og varð Árneshreppur fyrir valinu þar sem hún fékk vinnu í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar. Áreitið stoppaði ekki þar og hefur Ari reynt að grafa undan starfi hennar með því að hafa samband við kaupfélagsstjór- ann og segja ljótar sögur. Þegar ekki var tekið mark á þeim hefur áreitið beinst að kaupfélagsstjóranum sjálf- um og öðru starfsfólki kaupfélagsins. Stofnaðar hafa verið Facebook-síður í nafni kaupfélagsins þar sem mynd- bönd af Björgu Amalíu og vinkon- unni eru birt. Þá hefur Ari birt myndir af kaupfélagsstjóranum og segir hann styðja heimilisofbeldi en kaupfélags- stjórinn Viktoría Rán vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Þetta áreiti hefur verið formlega kært til lögreglu. Hefur kaupfélagsstjórinn brugðið á það ráð að loka Facebook- síðu kaupfélagsins. Hefur Ari einnig stofnað Facebook-síðu fyrir Kaupfé- lag Norðfjarðar í Árneshreppi. Þá var meðlimur í hljómsveit Bjargar Amalíu fyrir því að nafni hans og mynd af honum var skeytt við nafnlausan dóm um barnaníðing sem fór síðan í dreifingu á netinu. Ill- mögulegt er að verjast slíkum árásum á mannorð fólks. Fá úrræði lögreglu Björg Amalía hefur ítrekað verið í sambandi við lögreglu út af áreiti Ara en lögreglan hefur lítið getað gert til þess að aðstoða hana. „Mér hefur verið tekið mjög fálega og lögreglan virðist ekki hafa nein úrræði til þess að stöðva áreiti sem þetta. Ég vona að með lagabreytingum verði hægt að gefa lögreglunni frekari tæki til þess að berjast gegn eltihrellum og hefndarklámi og þess vegna fannst mér mikilvægt að stíga fram. Þeir sem eru fórnarlömb slíks þurfa að segja sögu sína svo eitthvað verði gert,“ segir Björg Amalía. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.