Fréttablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 26
Magnea Einarsdóttir fata-hönnuður opnaði nýlega verslunina A.M. Concept
Space í Garðastræti 2 ásamt Anítu
Hirlekar sem einnig er fatahönn-
uður. „Við kynntumst í námi
okkar í London í lista háskólanum
Central St. Martins þar sem ég
lagði áherslu á prjón en hún á
prent. Við seljum vörur okkar
beggja ásamt því að fá til liðs
við okkur nýjan listamann eða
hönnuð reglulega með kynningu
og eins konar „popup“ á sinni
vöru,“ segir Magnea. „Í vikunni
fékk ég fyrstu sendingu af nýrri
línu, dásamlegum peysum og
húfum úr móher- og merínóull,“
segir hún.
Magnea var beðin um að gefa
konum ráð um viðeigandi klæðn-
að í brúðkaupi. Hún segist sjálf
hafa verið í brúðkaupi nýlega þar
sem hún valdi að klæðast eigin
hönnun. „Ég var í ermalausum
silkikjól úr nýjustu línunni minni,
MAGNEA, sem kemur á markað í
haust. „Valið stóð milli þessa kjóls
og víðra, síðra buxna og silki-
topps frá Anítu Hirlekar en ég
reyni að klæðast íslenskri hönnun
við hvert tækifæri. Við kjólinn
klæddist ég leðurjakka og hvítum,
reimuðum, flatbotna skóm sem
mér fannst búa til góðan balans
við síðan silkikjól og gera lúkkið
um leið afslappaðra. Ef ég hefði
valið buxurnar hefði ég hins vegar
verið í hælum við,“ útskýrir hún.
En hvað á maður helst að
hafa í huga þegar maður velur
föt í brúðkaup? „Það eru auð-
vitað ákveðnar rótgrónar „reglur“
þegar kemur að brúðkaupsgesta-
klæðnaði og þá sérstaklega hjá
okkur kvenfólkinu. Við megum
ekki klæðast hvítu og helst ekki
svörtu og svo megum við heldur
ekki skyggja á brúðina. Ég held
að svona reglur eins og aðrar sem
varða klæðaburð kvenna séu
deyjandi fyrirbæri. Við eigum
að klæðast því sem okkur líður
best í, burtséð frá tískutrendum
og ævafornum reglum. Ef ég væri
beðin um ráð, myndi ég skoða
týpuna sem um ræðir. „Ég ráðlegg
auðvitað öllum að kynna sér hvað
íslenskir fatahönnuðir hafa upp
á að bjóða. Einnig er gott ráð að
máta klassískar flíkur úr skápnum
heima, flíkur sem manni líður
vel í og veit að fara manni vel. Þó
maður hafi kannski notað flík oft
áður býður hún kannski upp á
nýja stílíseringu, til dæmis með
„statement“ belti, hálsmeni eða
eyrnalokkum, skóm eða sokka-
buxum,“ segir Magnea.
Þegar hún er spurð hvort skipti
máli hvort brúðkaupið sé að vetri
eða sumri, svarar hún: „Ekki endi-
lega. Maður færi kannski síður
berleggja í ermalausan blómakjól
að vetri til en sami kjóllinn gæti
virkað með fallegum sokka-
buxum, rúllukragabol innanundir
og pels eða ullarkápu yfir.“
Magnea bætir við að það geti
skipt máli hvar brúðkaupið sé
haldið, hvort það sé sveitabrúð-
kaup, í fallegum sal eða í tjaldi.
„Oft má lesa stemminguna út
úr boðskortinu. Oftast nær eru
brúðkaup þó af þeim toga að
fólk klæðir sig upp í sitt fínasta,
nema annað sé tekið fram. Það
eru þá oftast sveitabrúðkaupin,
þar sem hlý peysa og góðir skór
eru staðalbúnaður, sem skera sig
úr en þá er nú alltaf hægt að finna
smekklegar ullarpeysur og vera í
fallegum kjól eða dressi innan-
undir.“
Óskrifuð regla hefur verið að
koma ekki í hvítum kjól í brúð-
kaup. Magnea segir að sér finnist
það í lagi svo lengi sem kjóllinn sé
ekki bókstaflega eins og brúðar-
kjóll. „Sömuleiðis er hvít buxna-
dragt í lagi svo framarlega sem
maður forðast brúðarlúkkið.
„Maður þarf að gæta að því að
poppa dressið upp með töffara-
legum topp eða blússu, skóm og
skarti. Gallabuxur eru hins vegar
ekki leyfilegar nema kannski í
mjög sérstöku sveitabrúðkaupi en
það færi algjörlega eftir stílíser-
ingunni en þá þarf að gæta mjög
vel að öllum smáatriðum.“
Hvað með mjög stutt pils eða
kjól? „Ég held reyndar að það sé
ekki langt í að við förum að sjá
mínípilsin aftur en það má deila
um hversu stutt er of stutt. Þetta
snýst fyrst og fremst alltaf um það
sem hverri konu finnst fara sér
best. Ég hef komist að því gegnum
tíðina að ég vil að pilsin nái mér
niður fyrir hné svo ég mundi ekki
velja það fyrir mig. Mér finnst fal-
legast þegar konur klæða sig eftir
sínum vexti, hvort sem þær vilja
leggja áherslu á mitti, ökkla, axlir
eða leggi.“
Hvað með leðurjakka? „Leður-
jakki við fínan kjól getur komið
mjög skemmtilega út og því finnst
mér það í góðu lagi en ég sé fyrir
mér að því síðari og léttari sem
kjóllinn er því betur passi það
saman,“ segir Magnea.
Best klædd í
brúðkaupinu
Það er mikið um brúðkaup þessa dagana. Sumir
verða ráðvilltir þegar þeir fá boðskort og vita ekkert
hvernig þeir eiga að fara klæddir í slíka veislu.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Magnea Einarsdóttir fatahönnuður veit hvernig best er að klæða sig þegar
farið er í brúðkaup. fréttaBlaðið/vilHElM
Fa
rv
i.i
s
//
0
51
7
KRINGLUNNI | 588 2300
espadrillur
2.995
Margir litir
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
ÚTSALAN
Í FULLUM
GANGI
40-50%
afsláttur
Str. 36-56
SKRÁÐU ÞIG
Á 365.IS
SUMARLEIÐIN
4 KYNNiNGarBlað fÓlK 6 . j ú l í 2 0 1 7 f i M Mt U DaG U r
0
6
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:5
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
4
3
-C
4
E
0
1
D
4
3
-C
3
A
4
1
D
4
3
-C
2
6
8
1
D
4
3
-C
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
5
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K