Fréttablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 52
Skammur tími
og mikil keyrsla
með því erfiðasta
Margir fagurkerar fylgjast nú spenntir með þættinum Blokk 925
sem snýst um tvö vinapör að taka íbúð á Ásbrú í gegn frá a til ö á
afar skömmum tíma. Lífið í Fréttablaðinu fékk að yfirheyra þátt-
takendurna svo lesendur geti kynnst þeim aðeins betur.
Lárus Freyr
Lárusson
Hvernig myndir þú lýsa
þínum stíl? Það sem
heillar mig mest er
þegar hrár efniviður
fær að njóta sín eins
og steypa, stál og
timbur í bland við
hlýja hluti heim-
ilisins. Ég hef einnig
mikið dálæti á litlum
hlutum sem gefa
heimili svo mikið,
en þá er mikilvægt að
þeim sé fallega raðað
upp.
Hvernig er draumaheimilið
þitt? Það er opið og bjart með
miklu flæði þar sem alrými (eldhús,
borðstofa og stofa) er hjarta hússins.
Náttúruleg birta verður að spila stórt
hlutverk.
Hvað var það skemmtilegasta við
að taka þátt í Blokk 925? Að taka
allar ákvarðanirnar, hvort sem það
var hönnun grunnmyndar eða val á
eldhúsinnréttingu eða sturtuhaus.
Glíma við og leysa vandamálin sem
komu upp og sjá okkar hönnun
verða að veruleika á svona stuttum
tíma.
En það erfiðasta? Það var ekkert
eitthvað eitt sem var erfiðast, en
Óli Geir
Kristjánsson
Hvernig myndir þú lýsa þínum
stíl? Ég myndi segja að hann væri
frekar skandinavískur eins og er
mjög algengt í dag hér heima,
en mér finnst samt líka gaman
að gera eitthvað allt öðruvísi og
blanda því saman.
Hvernig er draumaheimilið þitt?
Draumaheimilið í dag væri lítil
íbúð, svona 40-60 fermetrar, sem
væri skipulögð.
Hvað var það skemmtilegasta
við að taka þátt í Blokk 925?
Ætli það hafi ekki aðallega verið
reynslan en svo kynntist maður
líka helling af frábæru fólki.
En það erfiðasta? Erfiðasta … ég
held ég verði að segja tíminn.
Hann var frekar stuttur.
Hvað kom helst á óvart eftir að
þið byrjuðuð að taka íbúðina í
gegn? Ég held að það hafi komið
mest á óvart hversu mikið er
hægt að gera á stuttum tíma.
Ýtti þátttakan í Blokk 925 undir
framkvæmdagleðina, eða ertu
kominn með nóg í bili? Já, ég
held hún hafi nú bara ýtt undir
framkvæmdagleðina.
Ertu með eitthvert skothelt ráð
fyrir það fólk sem er að fara út
í framkvæmdir? Búast við því
að þetta taki lengri tíma en það
heldur.
Hvað er fram undan hjá þér?
Fram undan er starfsnám á arki-
tektastofu í Danmörku.
Alexandra Hlíf
Jóelsdóttir
Hvernig myndir þú lýsa þínum
stíl? Ég myndi segja að ég sé með
mjög skandinavískan stíl en hef líka
gaman af því að blanda sterkum
litum við og lúmskt „furðulegum“
hlutum.
Hvernig er draumaheimilið þitt?
Mig dreymir um að búa einn
daginn í fallegu gömlu einbýli með
rósettum, stiga, svölum úr hjóna-
herberginu og fallegum garði.
Hvað var það skemmtilegasta við
að taka þátt í Blokk 925? Að fá
að takast á við eitthvað af þessari
stærðargráðu og fá að gera það
með bestu vinkonu minni.
En það erfiðasta? Mér fannst erf-
iðast hvað seinustu tvær vikurnar
voru rosaleg keyrsla, datt alveg í
daga þar sem ég vann stanslaust
í tuttugu og eina
klukkustund.
Hvað kom
helst á óvart
eftir að þið
byrjuðuð að
taka íbúðina
í gegn? Það
var ekki margt
sem kom á óvart
beint en það var oft
á tíðum sem manni
þótti hlutirnir ekki ganga
eins vel og maður hefði viljað.
Ýtti þátttakan í Blokk 925 undir
framkvæmdagleðina, eða ertu
komin með nóg í bili? Ég myndi
segja hvorugt, ég hef nokkurn
veginn haldið mínu striki en hef
byrjað á einu verkefni fyrir sjálfa
mig frá því að þættirnir kláruðust.
Ertu með eitthvert skothelt ráð
fyrir það fólk sem er að fara
út í framkvæmdir? Fá
góða hvíld inn á milli
og hafa góða mynd
af því hvað þú ert
að fara að gera.
Hvað er fram
undan hjá þér?
Ég er eins og er
að vinna hjá HBH
sem húsgagna-
smíðanemi, klára
svo mjög líklega
innanhússhönnunina
seint á þessu ári og svo
er flutningur til London
snemma næsta árs til að vinna sem
innanhússhönnuður og nemi í hús-
gagnasmíði, svo veit ég ekkert hvað
tekur við.
Draumaheimilið í
Dag væri lítil
íbúð, Svona 40-60 fer-
metrar, Sem væri Skipu-
lögð.
ég hef nokkurn
veginn halDið mínu
Striki en hef byrjað á einu
verkefni fyrir Sjálfa mig
frá því að þættirnir klár-
uðuSt.
ég hef einnig mikið
Dálæti á litlum
hlutum Sem gefa heimili Svo
mikið, en þá er mikilvægt að
þeim Sé fallega raðað upp.
Guðrún Bjarnadóttir
Hvernig myndir þú lýsa þínum
stíl? Ég heillast aðallega af skand-
inavískum stíl. Annars finnst mér
skipta miklu máli að heimilið sé
notalegt, persónulegt og heillandi.
Hvernig er draumaheimilið þitt?
Hátt til lofts, opið og hlýlegt rými.
Stór og flottur pallur þar sem
maður gæti notið sín á góðum
sumardögum.
Hvað var það skemmtilegasta
við að taka þátt í Blokk 925? Það
skemmtilegasta við þáttinn var
að fá að innrétta íbúð, við vinkon-
urnar saman. Svo var lokadagurinn
frábær þar sem öll vinnan varð að
veruleika.
En það erfiðasta? Mér fannst
erfiðast í lokavikunni þegar það var
svo mikið að gera að við vorum að
fara yfir um. Við Alexandra vorum
báðar í annarri vinnu á morgnana
og það var erfitt að vera ekki á
staðnum og þurfa að segja allt sem
vantaði í gegnum síma og redda
svo öllu eftir klukkan fimm.
Hvað kom helst á óvart eftir að þið
byrjuðuð að taka íbúðina í gegn?
Það þurfti að redda ýmsum hlutum
rétt í lokin, það tók smá á. Maður
hélt að allt hefði gengið 100% upp
en svo var ekki en það reddaðist
allt með smá stressi og maður lærir
af þessari reynslu.
Ýtti þátttakan í Blokk 925 undir
framkvæmdagleðina, eða ertu
komin með nóg í bili? Ég fékk
alls ekki nóg. Mér þætti gaman að
hanna og gera upp íbúð aftur en í
allt öðruvísi aðstæðum. Ég get til
dæmis ekki beðið eftir að innrétta
mína eigin íbúð.
Ertu með eitthvert skothelt ráð
fyrir það fólk sem er að fara út
í framkvæmdir? Ekki gera neitt í
flýti. Gefðu þér góðan tíma í að
hugsa hvað þú vilt og hafðu nægan
tíma til að framkvæma.
Hvað er fram undan hjá þér? Ég er
að vinna 100% vinnu og í innanhúss-
hönnunarnámi. Ætla að sinna því og
svo sé ég til hvað gerist eftir það.
ég viðurkenni að val á húsgögnum
tók alveg vel á, enda hefur IKEA
endalaust vöruúrval.
Hvað kom helst á óvart
eftir að þið byrjuðuð að
taka íbúðina í gegn?
Hverfið á Ásbrú kom
mér mest á óvart, hvað
það hefur mikla mögu-
leika til að verða flott
íbúðarhverfi.
Ýtti þátttakan í Blokk
925 undir fram-
kvæmdagleðina, eða
ertu kominn með nóg
í bili? Framkvæmdir af
einhverjum toga hafa alltaf
verið partur af mér. Svo ef
eitthvað er þá ýtti þetta ennþá
meira undir þá gleði.
Ertu með eitthvert skothelt ráð
fyrir það fólk sem er að fara út í
framkvæmdir? Átta sig á því hvað
það vill fá út úr framkvæmdinni.
Vanda hvar skal spara og hvar ekki.
Láta ekki lítil vandamál slá sig út af
laginu og hafa metnað fyrir því sem
þú ert að gera.
Hvað er fram undan hjá þér?
Sumrinu mun ég eyða í fæðingar-
orlofi með syni mínum og í vetur
verð ég að vinna á arkitektastofu.
6 . j ú l í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R40 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð
Lífið
0
6
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:5
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
4
3
-B
B
0
0
1
D
4
3
-B
9
C
4
1
D
4
3
-B
8
8
8
1
D
4
3
-B
7
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
5
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K