Fréttablaðið - 26.06.2017, Qupperneq 6
Skemmtanir
Árshátíðir
Grímuböll
Dimmisjón
ofl. & ofl.
Ykkar skemmtun....
....okkar fókus
Full búð af
nýjum vörum!
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
þjóðkirkjan „Það er algerlega með
ólíkindum hvernig kirkjuráð hefur
hagað sér í þessu máli,“ segir séra
Halldór Gunnarsson, formaður
byggingarnefndar Stórólfshvol-
sóknar á Hvolsvelli, um málaferli
sóknarinnar gegn þjóðkirkjunni.
Halldór segir að kirkjuráð hafi á
árinu 2010 samþykkt fjárveitingu
til nýrrar kirkju á Hvolsvelli. Greiða
átti tíu milljónir króna vegna undir-
búnings og síðan 20 milljónir á ári í
fjögur ár á framkvæmdatímanum,
samtals 90 milljónir króna. Þegar
þetta hafi brugðist hafi sóknin kært
málið til úrskurðarnefndar þjóð-
kirkjunnar sem úrskurðað hafi
sókninni í vil. Kirkjuráð hafi hins
vegar vísað málinu til áfrýjunar-
nefndar innan kirkjunnar og haft
sigur þar.
„Það var á þeim forsendum að
kirkjuráð gæti gert það sem því
sýndist,“ segir Halldór um niður-
stöðu áfrýjunarnefndar. Sóknar-
nefnd og byggingarnefnd Stórólfs-
hvolssóknar hafi nú hins vegar
stefnt þjóðkirkjunni fyrir Héraðs-
dóm Reykjavíkur á þeim grundvelli
að úrskurður áfrýjunarnefndarinnar
sé ógildur því nefndin hafi aðeins
verið skipuð þremur mönnum en
ekki fimm eins og lög mæli fyrir um.
„Það nýjasta er að lögfræðingur
biskupsstofu hefur, að því er mér
skilst, sagt að málið væri tapað fyrir
kirkjuráð,“ upplýsir Halldór. Fari
dómsmálið þannig gæti kirkjuráð
þó óskað eftir nýrri áfrýjunarnefnd.
„Eins og kirkjuráð hefur látið mætti
alveg eins búast við því,“ segir Hall-
dór. Reyndar mun lögmaður kirkju-
ráðs þegar hafa óskað eftir því við
áfrýjunarnefndina að taka málið
upp að nýju.
Jens Sigurðsson, formaður sókn-
arnefndar Stórólfshvolssóknar, segir
að þegar liggi fyrir lóð frá Rangár-
þingi eystra fyrir nýja kirkju sem
jafnframt yrði menningarhús. Það
Útfarir á bílastæði
og kirkjunni stefnt
Sóknarnefndin á Hvolsvelli hefur stefnt þjóðkirkjunni vegna meintra vanefnda
á framlögum til byggingar nýrrar kirkju. Gamla kirkjan tekur innan við 100
manns í sæti. Í jarðarförum situr fólk í bílum og hlustar á athöfnina í útvarpinu.
Gestir í jarðarförum frá Stórólfshvolskirkju rúmast oft ekki innandyra og hlusta
á athöfnina í bílaútvörpum. Það var einmitt raunin í fjölmennri útför Sveins
Sigurðssonar byggingameistara á föstudaginn var. Fréttablaðið/anton brink
eigi að rúma allt að 450 manns og
kosta á 200 til 300 milljónir króna.
Málið gagnvart kirkjuráði sé svo
flókið að hann botni eiginlega ekk-
ert í því sjálfur. Borist hafi 4,5 millj-
ónir króna af umræddum tíu millj-
ónum en síðan ekki söguna meir.
Vilyrði annarra aðila, eins og sveit-
arfélagsins og héraðsnefndar Rang-
æinga, fyrir framlagi til byggingar
nýju kirkjunnar séu bundin því að
peningarnir skili sér frá kirkjuráði.
Í þessari stöðu er málið því enn
nánast á byrjunarreit. Þar til það
breytist þurfa sóknarbörnin að láta
gömlu kirkjuna frá árinu 1930 duga.
Sem kirkjan gerir reyndar alls ekki
ef marka má þá Halldór og Jens enda
taki hún aðeins um 80 manns í sæti.
Það dugi auðvitað ekki fyrir fjögur
til fimm hundruð manna jarðarfarir
sem fara þar iðulega fram.
„Þá er bara setið út í bíl og útvarp-
að þangað. Svo er til að fólk vill
þetta ekki og fer þá í kirkjuna á Sel-
fossi til að geta setið inni,“ segir Jens
og vísar þá til þeirra aðferðar sem
mun vera beitt í fleiri litlum kirkjum
úti á landi að útvarpa fjölmennum
athöfnum svo þeir sem ekki rúmast
innanhúss geti setið prúðbúnir úti í
bíl og heyrt það sem fram fer.
„Auðvitað vill söfnuðurinn því
reisa stærri kirkju. Það er skrítið
að koma okkur af stað og klippa
svo bara á,“ segir formaður sóknar-
nefndarinnar. gar@frettabladid.is
Tyrkland Múslimar um gjörvallan
heim fögnuðu í gær hátíðardeg-
inum Eid al-Fitr. Dagurinn markar
lok föstumánaðarins Ramadan og
var bænahald sem og átveislur af
því tilefni víða um heim.
Á Ramadan neyta múslimar
meðal annars hvorki matar né
drykkjar frá sólarupprás til sólar-
lags. Ramadan hefst og lýkur á nýju
tungli og er mánuðurinn sá níundi í
tímatali íslam. Þar sem tímatalið er
frábrugðið tímatali Vesturlandabúa
færist hátíðin til ár frá ári.
Nýtt tungl sést hins vegar á
mismunandi tíma í mismunandi
heimhlutum. Þannig fögnuðu Sádi-
Arabar, Katarar, Tyrkir og fleiri Eid
al-Fitr í gær en Indverjar, Pakistanar
og fleiri fagna föstulokum í dag.
Sadiq Khan, fyrsti músliminn
sem varð borgarstjóri Lundúna á
Bretlandi, óskaði múslimum um
heim allan gleðilegrar hátíðar í
gær. „Við höfum gengið í gegnum
afar erfiða tíma hér í Lundúnum
á meðan Ramadan hefur staðið.
Á þeim erfiðu tímum hefur verið
magnað að sjá hversu vel sam-
félagið hefur unnið saman,“ sagði
Khan. – þea
Múslimar fagna föstulokum
bænahald múslima í tyrknesku borginni adana. nordicphotoS/aFp
Það er algerlega með
ólíkindum hvernig
kirkjuráð hefur hagað sér í
þessu máli,
Halldór Gunnars-
son, formaður
byggingarnefndar
Stórólfshvols-
sóknar
ViðskipTi Plastdúkkan Ken sem
hefur fylgt Barbie í yfir fimmtíu
ár hefur fengið yfirhalningu, en
Mattel, framleiðandi dúkkunnar,
kynnti nýjar tegundir af Ken á
þriðjudag.
Nú er hægt að kaupa Ken í þrem-
ur mismunandi líkamsstærðum
og og velja á milli sjö hörundslita.
Einnig má velja úr átta mismunandi
litum á hári, níu hárstílum og augn-
litum. Fatnaður Kens er nú mun
fjölbreyttari.
Tíu nýjar Ken dúkkur eru komnar
í verslanir vestanhafs og fimm nýjar
koma í næstu mánuðum. Á síðasta
ári fékk Barbie einnig yfirhalningu
en þá komu fjórar mismunandi
líkamsgerðir út og einnig sjö hör-
undslitir.
CNN greinir frá því að síðan fyrsta
Ken dúkkan kom út árið 1961 hefur
dúkkan þróast verulega. Barbie og
Ken hættu saman árið 2004. – sg
Plastdúkkan Ken fær yfirhalningu
2 6 . j ú n í 2 0 1 7 M Á n U d a G U r6 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
2
6
-0
6
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
D
-9
6
C
0
1
D
2
D
-9
5
8
4
1
D
2
D
-9
4
4
8
1
D
2
D
-9
3
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K