Fréttablaðið - 26.06.2017, Síða 30
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi.
sr. Gísli H. Kolbeins
Strikinu 10, Garðabæ,
sem andaðist á Vífilsstöðum
laugardaginn 10. júní verður jarðsunginn
frá Háteigskirkju í dag, mánudag 26. júní,
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Umhyggju,
félag langveikra barna.
Sigríður B. Kolbeins
Bjarnþór G. Kolbeins
Anna Lára Kolbeins Halldór Bergmann
Ragnheiður G. Kolbeins Haraldur Stefánsson
Halldór Kolbeins
Eyþór Ingi G. Kolbeins Dagný Marinósdóttir
barnabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður,
faðir, tengdafaðir og afi,
Þórir Þórðarson
leigubílstjóri,
Kópavogstúni 5,
áður til heimilis að Safamýri 83,
lést á Landspítalanum Fossvogi 11. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 28. júní kl. 15.00.
Ingibjörg Einarsdóttir
Þórður Þórisson Unnur Jónsdóttir
Einar Þórisson Ólafía Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
1823 - Kötlugos hófst með stórhlaupi
úr Mýrdalsjökli
1921 - Kristján X, konungur Íslands og
Danmerkur, kom í heimsókn til Íslands.
1928 - Boranir hófust eftir heitu vatni í
Laugardal í Reykjavík.
1930 - Alþingishátíðin var sett á
Þingvöllum. Þangað komu um 30.000
manns.
1944 Svavar Gestsson, fyrrverandi ráð-
herra, fæddist.
1960 - Madagaskar fékk sjálfstæði frá
Frakklandi.
1979 - Járnblendiverksmiðjan á
Grundartanga hóf starfsemi sína.
2004 - Ólafur Ragnar Grímsson var
endurkjörinn forseti Íslands.
2015 - Pétur Blöndal þingmaður lést.
Merkisatburðir
Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir er 19 ára gömul og fæst nú við öðruvísi sumarstarf en flestir. Á vegum Skapandi sumarstarfa í Garðabæ er hún að sauma veggteppi byggt á hinu fræga Riddarateppi sem
er til sýnis í Þjóðminjasafninu.
„Ég var að vinna í Skapandi sumar-
störfum í fyrra og mér fannst það mjög
skemmtilegt þannig að ég ákvað að
sækja um aftur í ár en með öðruvísi
verkefni. Mér hefur alltaf fundist mjög
gaman að gera eitthvað í höndunum. Í
fyrra fór ég að pæla í útsaumi og viðhorfi
til útsaums. Svo sótti ég um með það í
huga að gera útsaumsverk og mér fannst
spennandi hugmynd að ætla bara að
gera eitt verk yfir sumarið,“ segir Sólveig.
„Það hljómar eins og lítið þegar
maður segist ætla að gera eitt verk en
þegar maður sér það skilur maður af
hverju var bara hægt að gera eitt verk.“
Sólveig hefur verið að rannsaka sögu
handverks íslenskra kvenna og lýtur
verk hennar meðal annars að nafnleysi
saumakvenna fyrri alda og tímanum að
baki útsaumsverkum.
Sólveig veit ekki enn þá hversu stórt
verk hennar verður. „Riddarateppið
sjálft er held ég 130 x 160 cm. Ég ætla að
byrja á að gera myndirnar sex sem eru í
miðjunni og í kringum þær eru drekar
sem mig langar að gera líka. Þannig að í
rauninni er erfitt að segja til um hversu
stórt þetta verður."
Útsaumsverk hafa varðveist illa og eru
að jafnaði höfundarlaus. Það einskorðast
ekki við Ísland en saumur, vefnaður og
aðrar hannyrðir þóttu einungis kvenlegar
greinar og voru flokkaðar sem nytjalist en
ekki alvöru listgreinar. Með verkefninu
langar Sólveigu að sýna hversu mörg spor
felast í einu dagsverki og efla vitund um
gildi handverks og þá vinnu sem liggur
að baki.
Skapandi sumarstörf vara í átta vikur.
Sólveig segir verkefnið fara vel af stað hjá
sér og mun hún sýna það í lok júlí.
Sólveig er nýútskrifuð af fornmála-
deild í Menntaskólanum í Reykjavík.
Hún hyggur á að hefja háskólanám í
fornfræði í vetur. „Það mætti kannski
segja að ég sé áhugasöm um gamla tíma,"
segir hún. saeunn@frettabladid.is
Saumar veggteppi
byggt á Riddarateppinu
Nítján ára stelpa vill efla vitund um gildi handverks og þá vinnu sem liggur að baki. Hún
saumar veggteppi byggt á Riddarateppi Þjóðminjasafnsins í Skapandi sumarstörfum.
Útsaumsverk hafa varðveist illa og oft veit enginn hver höfundur þeirra er.
Sólveig Hrönn er nýútskrifuð af fornmáladeild í Menntaskólanum í Reykjavík og stefnir á nám í fornfræði í vetur. FRéttablaðið/EyþóR
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fæddist í Reykja-vík 26. júní árið 1968 og er því 49 ára í dag. Hann er sonur hjónanna Margrétar Thorlacius, kennara og
blaðamanns, og Jóhannesar Sæmundssonar, íþróttakennara
og landsliðsþjálfara, sem lést árið 1983. Guðni ólst upp í Garða-
bæ og á tvo bræður, Patrek, íþróttafræðing og handboltaþjálf-
ara, og Jóhannes kerfisfræðing.
Á vef embættis forseta Íslands kemur fram að Guðni
útskrifaðist árið 1987 með stúdentspróf frá Menntaskólanum
í Reykjavík. Hann stundaði nám í sögu og stjórnmálafræði við
Warwick-háskóla á Englandi og útskrifaðist þaðan með BA-
gráðu árið 1991. Eftir það lærði hann þýsku við háskólann í
Bonn í Þýskalandi. Hann nam rússnesku á árunum 1993-1994
við Háskóla Íslands. Guðni útskrifaðist með meistaragráðu
í sagnfræði frá HÍ árið 1997. Hann nam sagnfræði á árunum
1998-1999 við Oxfordháskóla á Englandi og útskrifaðist þaðan
árið 1999 með MSt-gráðu í sögu. Árið 2003 lauk hann doktors-
prófi í sagnfræði frá Queen Mary, University of London.
Um starfsferil Guðna segir á vef forsetaembættisins að árin
2013-2016 var Guðni kennari í sagnfræði við Háskóla Íslands,
lektor, dósent og síðast prófessor. Áður var hann lektor við
Háskólann í Reykjavík og stundakennari við Háskóla Íslands,
Háskólann á Bifröst og University of London. Jafnframt vann
hann um árabil við afleysingar á fréttastofu Ríkisútvarpsins.
2 6 . J Ú n Í 1 9 6 8
Guðni Jóhannesson fæddist
2 6 . j ú n í 2 0 1 7 M Á n U D A G U R14 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð
tímamót
2
6
-0
6
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
D
-7
4
3
0
1
D
2
D
-7
2
F
4
1
D
2
D
-7
1
B
8
1
D
2
D
-7
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K