Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.01.2004, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 22.01.2004, Blaðsíða 10
stuttar f r é t t i r AAorfíni ogfleiri lyfj- um stolið úr skipi Tilkynnt var í hádeginu á Iaugardaginn um innbrot í Arnar RE 400 í Sandgeröishöfn. Þar var farið í lyfjakassa og stolið morfíni, sterkum verkjalytjum og sprautum. Ekki er vitað hver þarna var að verki. Velti bíl undir áhrifum áfengis Sncmma á sunnudags- morgun var tilkynnt til lögreglunnar að bifreið væri á hvolfi utan vegar á Garðvegi móts við Golfskálann. í ljós kom að ökumaöur bifreiðarinn hafði farið af vettvangi, en hann fannst og þá kom í ljós að hann var undir áhrifum áfengis. Bifreiðin var tekin af staðnum mcð kranabifreið. Ökumaður- inn slapp við meiðsl. 30 ára fermingaraf- mæli árgangs 1960 Laugardaginn 8. maí verður lialdið 30 ára fermingarafmæli ár- gangs 1960 úr Keflavík og Njarðvík og verður skemmtunin haldin í KK salnum. f auglýsingu frá undirbúningsnefndinni er fólk úr árganginum hvatt tii að taka laugardaginn frá, en skemmtunin verður auglýst nánar síðar. Guðný Hjörleifs hjá Sálarrann- sóknarfélaginu Guðný Hjörleifsdóttir miðill mun starfa hjá Sálarrannsókn- arfclaginu 29. janúar og Skúli Lórcntsson miðill mun einnig starfa hjá félag- inu 4. febrúar. Tímapantan- ir hjá félaginu í síma 421 3348. VF.IS 14. MEST SÓTII VEFURLANDSINS Auglýsingasími 4210000 > LEIGUBÍLASTÖÐIN AÐALBÍLAR VF-MYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON VÍKURFRETTIR ÁNETINUVORU fyrstrr NIEÐ pessrfrett'. Aðalbílar fagna eins árs afmæli Bifreiðastöðin Aöalbílar fagnaði eins árs af- mæli sl. föstudag. Bílstjórum fyrirtækisins var boðið upp á rjómatertu og kaffi í til- efni dagsins. Leigubílstjórar Aðalbíla voru áður á Aðalstöðinni en fluttu starfsemina á nýjan stað við Hafnargötu 12 fyrir réttu ári og tóku þá upp nafnið Aðalbílar. í gömlu þvottastöð SBK hefur bílstjórunum verið búin myndarleg aðstaða til hvíldar og eins til að taka inn bíla og þrífa, svo eitthvað sé nefnt. VÍKURFRÉTTIR ÁNETINU UORU fyrstrrni® þESSR FRETT'. Við höldum áfram að benda á nokkrar fréttir, greinar og myndirsemvf.is birti fyrst allra fjölmiðla! í kjölfar kynningar- átaksávf.is hérí blaðinu ogvíðar tryggðumvið okkur 14. sætiðyfir mest sóttu vefi landsins. Takkfyrir það! ■ Kristján Vilhelmsson og Baldur Konráðsson leigubílstjórar hjá Aðalbílum í áratugi: í hádegismat með DeNiro á Hótel Borg „Ja, ég hef nú verið leigubíl- stjóri í 25 ár,“ segir ein af per- sónum Spaugstofunnar sem Karl Agúst Ulfsson leikur i þcssum vinsælustu þáttum landsmanna. Kristján Vil- helmsson og Baldur Konráðs- son leigubílstjórar gætu svo sannariega slegið um sig með þcssum orðum en þeir hafa stundað leigubílaakstur um langt skeið hér á Suðumesjum. Víkurfréttir litu við hjá þeim þar sem þeir sátu í bíl Krist- jáns við Flugstöð Leifs Eiríks- sonar, komumegin auðvitað. „Fyrsti dagurinn minn sem leigubílstjóri var þann 4. júlí árið 1960. Ég skildi ekkert í því hvað það var mikið að gerast í kringum völlinn og það var ekki fyrr en ég var búinn að keyra í smá tima sem ég áttaði mig á því að þetta væri þjóðhá- tíöardagur þeirra," segir Krist- ján og hlær, en í gegnum tiðina hefur hann einnig hlaupið i önnur störf. Baldur hóf sinn Icigubílaakstur seinni partinn í ágúst árið 1968. „Ég hef ekki unnið stans- laust við þetta frá því 68. Skeiiti mér á sjóinn í nokkur ár, en síðustu árin hef ég einungis starfað við þetta,“ segir Baldur brosandi en hann kemur einn- ig að rekstri tveggja hópbíla og reksturs hvalaskoðunarskips- ins Moby Dick. Kristján eða Diddi á Brekku eins og hann er oft kallaður og Baldur eru miklir félagar og þegar blaða- mann bar að garði sátu þeir sam- an í bílnum hjá Didda, en bíllinn ber einkanúmerið 29. Þegar þeir eru spurðir út í biðina sem fylgir leigubílaakstrinum segjast þeir orðnir vanir henni og að hún taki yfirleitt enda. „Við skellum okk- ur í bridds inn í flugstöð, enda erum við miklir briddsspilarar,“ segja þeir hlæjandi en í flugstöð- inni hafa leigubílstjórarnir her- bergi til afnota þegar þeir bíða eftir farþegum. Leigubílstjórar hjá Aðalbílum hafa í gegnum tíðina sinnt far- þegum sem koma úr Flugstöð Leifs Eirikssonar. „Og að sjálf- sögðu höfum við í gegnum tíðina sinnt Suðurnesjamönnum með leigubílaakstri," segir Baldur. I hádegismat með DeNiro Leigubílstjórar fá misfrægt fólk upp í bílana til sín og hefur Bald- ur fundið smjörþefinn af því, en hann var með hinn heimskunna leikara Robert DeNiro hálfan dag í leigubílnum hjá sér. „Nú, ég var bara fyrstur í röðinni og hann kom í bílinn hjá mér, en ég áttaði mig ekki á því hver maður- inn var fyrr en ég kom til Reykja- víkur. Ég er svo lítið inn í þess- um stjörnumálum," segir Baldur með bros á vör, en DeNiro bauð Baldri í hádegismat á Hótel Borg. „Það var mjög skemmti- legt og maðurinn virkaði mjög vel á mig. Bæði viðmótsþýður og skemmtilegur." Baldur segir að DeNiro hafi sagt sér að hann liafi flogið mikið með Loftleiðum á milli Banda- ríkjanna og Evrópu áður en hann varð ffægur. „Hann bað mig um að sýna sér Loftleiðamerkið og ég keyrði hann út á Loftleiðir til að liann fengi að sjá merkið sem hann og sá,“ segir Baldur en DeNiro var að koma frá kvik- myndahátiðinni í Cannes í Frakk- landi. „Hann var með kærustuna sína með sér og sagðist hafa keypt veitingahús handa henni á bökkum Hudson ár í New York. En ég las það nú fyrir stuttu að þau væru skilin," segir Baldur. Ferðin með stórleikarann gekk vel að sögn Baldurs og slapp leikarinn að mestu við blaða- menn þó þeir settu undir lokin mark sitt á ferðalag Baldurs með leikarann. „Hann ætlaði að fara í Bláa lónið en þegar við komumst að því að það væru blaðamenn á eftir honum þá hætti hann við. Nennti ekki að lenda í blaða- mönnum þannig að ég keyrði hann beint upp i Flugstöð," segir Baldur hlæjandi og bætir því við að hann hafi beðið DeNiro að senda sér jólakort. „Ég hef nú ekki enn fengið jólakort frá hon- um blessuðum, þannig að hann hlýtur að hafa gleymt því.“ Kristján Vilhelmsson (við stýrið) og Baldur Konráðsson leigubílstjórar í bíl Kristjáns á bílastæðinu við Leifsstöð.umsíðustu helgi. VF-MVND:JÓHANNES KR. KRISTJANSS0N 10 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! VF-MYND: JÓHANNES KR. KRISTJÁNSS0N

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.