Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.01.2004, Blaðsíða 26

Víkurfréttir - 22.01.2004, Blaðsíða 26
Atvinna Aðstoðarleikskólastjóra vantar við Leikskólann Sólborgu hið fyrsta, með leikskólakennararéttindi í 100% stöðu. Húsaleiga verður niðurgreidd, veittur verður flutningsstyrkur. Upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri í síma 423 7620 eða í gegnum netfang solborg@sandgerdi.is. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sandgerðisbæjar Tjarnargötu 4, fýrir 5. febrúar n.k. Einnig eru umsóknareyðublöð á netinu www.sandgerdi.is. Leikskólastjóri SANDGERÐISBÆR ■ Bikarkeppni KKI Kariar: SNÆFELL-NJARÐVÍK 69-74 Njarðvíkingar voru ekki líklegir til að tryggja sér áframhaldandi þátttöku í keppninni framan af leiknum í Stykkishólmi. Heima- menn í Snæfelli leiddu allan leik- inn allt þar til Njarðvíkingar hrukku loks í gírinn undir lokin og snéru stöðunni sér í hag. Njarðvíkingar fóru þá að pressa út um allan völl og taka áhættu í leik sínum sem skilaði sér svo sannarlega því bikarhetjan Guð- mundur Jónsson skoraði tvær 3ja stiga körfiir og Halldór Karlsson, sem leikur sjaldnast betur en undir pressu, bætti þeirri þriðju við. Þegar Njarðvíkingar höfðu stimplað sig svo rækilega inn í leikinn var eins og heimamenn misstu flugið og Njarðvíkingar kláruðu þennan leik með því að skora 19 stig gegn 4 á síðustu sjö mínútum leiksins. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Eldri borgarar athugið! pFEB f/ FÉLAG ELDRIBORGARA ÁSUÐURNESJUM ÁÆSHÁTÍi Árshátíð félagsins verður haldin í Stapa sunnudaginn 1. febrúar 2004 kl. 18.00. Veislustjóri: Hjálmar Árnason alþingismaður. Einsöngur: Bergþór Pálsson söngvari. Gamanmál: Árni Tryggvason leikar. Hrókur alls fagnaðar leikur fyrir dansi o.fl. Forsala aðgöngumiða í Selinu frá miðvikudeginum 21. janúar kl. 13.00. Vegna veitinganna þarf að kaupa eða panta aðgöngumiða fyrir 28. janúar hjá eftirtöldum aðilum: Selið - Jóhanna sími 421 6272 /861 2085 Hvammur sími 421 4322 • Vogar - Elsa sími 424 6533 Garður - Kristín sími 422 7091 • Grindavík - Bogi sími 426 8119 Sandgerði - Miðhús sími 423 7949 Miðaverð kr. 3000,- Mætum vel og skemmtum okkur saman! Nefndin. Njarðvíkinga, var ánægður með lok leiksins og hlakkar til að mæta Keflvíkingum á ný í úrslit- um, en eins og flestir vita hafði Njarðvík betur gegn nágrönnum sínum í úrslitum Hópbílabikars- ins í nóvember síðastliðnum. „Þetta var bara ströggl í gegn, en svo fórum við að taka sénsa og það gekk upp, sem betur fer. Leikurinn gegn Keflavík verður örugglega flottur, en við ætlum okkur að taka þennan titil líka!“ Páll Kristinsson átti flnan leik fyrir þá grænu og skoraði 18 stig ásamt því að taka 12 fráköst. Þá setti Brandon Woudstra 16 stig og Brenton Birmingham 14. Dondrell Whitmore var stiga- hæstur Snæfellinga með 16 stig, Lýður Vignisson skoraði 13 og Hlynur Bæringsson skoraði 10 og tók 11 fráköst. DRINDA VÍK-KEFLA VIK 97-107 Keflvíkingar lögðu Grindvíkinga í Röstinni í Grindavík eftir spennandi lokakafla og mikla baráttu. Keflvíkingar höfðu for- ystu lengst af, en í þriðja leik- hluta komust heimamenn aftur inn í leikinn og voru með fimm stiga forskot fýrir síðasta flórð- ung, 83-78. Darrel Lewis átti stórleik í liði Grindvikinga, en það sama var ekki uppi á tengignum hjá flestum félögum hans. Keflvíkingar sýndu og sönnuðu hversu breiðan mannskap þeir hafa og má segja að það hafi skipt sköpum undir lokin þegar Keflvíkingar náðu undirtökunum á nýjan leik. Gestirnir komu feikilega sterkir inn á lokametr- unurn, sérstaklega Nick Bradford og Derrick Allen sem tryggðu sigur Keflvíkinga með frækilegri ffammistöðu. Guðjón Skúlason hjá Keflavik var hæstánægður með sigurinn eins og gefur að skilja og sagði leikinn hafa unnist undir köfunni að þessu sinni. „Eg er bara í sjö- unda hirnni. Þetta verður frábær úrslitaleikur þar sem það er fátt sem toppar leikina milli Kefla- vikur og Njarðvíkur." Aðspurður um hvort hann hafi orðið hrædd- ur um að illa færi eftir að Grind- víkingar náðu forystunni í leikn- um sagðist hann hafa haft fulla trú á sínum mönnum. „Við erum með það góðan hóp að við áttum nóg eftir í restina, auk þess sem stóru mennirnir hjá okkur áttu rnjög góðan leik og bættu fyrir það hvað okkur gekk illa að hitta íýrir utan“, en Keflvíkingar skor- uðu einungis þijár 3ja stiga körf- ur í öllum leiknum. Nick Bradford skoraði 35 stig í leiknum og landi hans Derrick Allen gerði 33 þrátt íýrir að spila nánast á öðrum fæti eftir að hafa snúið sig á ökkla í upphafi seinni hálfleiks. Þá átti fýrirliðinn Gunnar Einarsson ágætan dag þar sem hann skoraði 22 stig og var að venju dijúgur í vöminni. Darrel Lewis var allt í öllu hjá Grindavík þar sem hann skoraði 40 stig, en Timothy Szatko skor- aði 15 stig í sínum fýrsta og eina leik fýrir Grindavík. ■ Konur: KEFLAVÍK-ÍS 76-38 Keflavikurstúlkur tryggðu sér sæti í úrslitum bikarkeppni KKI með öruggum sigri á IS á sunnu- daginn. Eins og tölurnar gefa til kynna var leikurinn í öruggum höndum Keflavíkur, sem var á heimavelli, og er óhætt að segja að Stúdínur hafi aldrei átt möguleika í þessari viðureign þrátt fýrir að þær hafi sigrað í báðum deildarleikjum liðanna í vetur. Heimaliðið byrj- aði með látum og skoraði fýrstu 11 stig leiksins og kafsigldi gest- ina. Staðan í leikhléi var 36-12 og seinni hálfleikur bauð upp á sömu dagskrá. Ekkert gekk né rak í sóknartilburðum IS þar sem hættulegasti sóknarmaður þeirra, Alda Leif Jónsdóttir, var tekin kyrfilega úr umferð. Það skilaði sér m.a. 1 því að þær hittu ein- ungis úr um 20% skota sinna og Keflavík vann, eins og fýrr sagði, öruggan sigur og munu mæta KR í úrslitaleiknum sem mun fara fram 7. febrúar. Stigahæst í Keflavíkurliðinu var hin unga og bráðefnilega María Ben Erlingsdóttir sem skoraði 16 stig þrátt fýrir að hafa einungis leikið hálfan leikinn, en Erla Þor- steinsdóttir kom henni næst með 14 stig. Þrátt fýrir gæsluna sem hún var í FANNAR OLAFSSON FINGURBROTINN Fannar Ólafsson, miðherji Keflavíkur og landsliðsins í körfuknattleik, varð fyrir því óláni að fingurbrotna í leiknum gegn IR í síðustu viku. Hann brotnaði á þum- alfingri hægri handar er leikmaður IR braut á honum á lokasekúndum leiksins. í samtali við Víkurfréttir sagði Fannar að líklega yrði hann frá í 4- 6 vikur, en slíkt kæmi endanlega í ljós á næstu dögum. „Þetta er náttúrulega agalega svekkjandi. Fyrir utan allt annað er það tíma- setningin sem er slæm. Ég missi ekki bara af Evrópukeppninni, heldur missi ég líka af leikjunum gegn Njarðvík í deildinni og bikamum. Sport á netinu • vf.is 26 VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.