Víkurfréttir - 22.01.2004, Blaðsíða 18
> NÝ BÍLASALA VIÐ NJARÐARBRAUTINA
Þau fundu týnda álfinn!
í síðasta tölublaði Víkurfrétta fyrir jól
földum við lítinn álf á bls. 51 og báðum
lesendur um að finna hann og senda
rétt svar til okkar fyrir 6. janúar.
Búið er að draga úr innsendum seðlum
og hlutu eftirtaldir aðilar vinning:
1. vinningur, Nóa konfekt 1,5 kg. frá Kaskó
og 5 stk. Jólalukkuskafmiðar:
Viktoría Kristinsdóttir, Garðbraut 54, Garði.
2. vinningur, gjafabréf að upphæð 2.500 kr.
frá Pizza 67 og 2 stk. Jólalukkuskafmiðar:
Ingibjörg Jónsdóttir, Faxabraut 32c, Keflavík.
3. vinningur, Nóa konfekt 1,5 kg. frá Kaskó
og 2 stk. Jólalukkuskafmiðar:
Emma Gísladóttir, Hjallavegur 1, Njarðvík.
Vinninga má vitja á skrifstofu Víkurfrétta
að Grundarvegi 23, Njarðvík,
frá og með mánudeginum 26. janúar.
Brimborg opnar í Reykjanesbæ
Brimborg hefur ákveðið
að fara að óskum bíleig-
enda á Suðurnesjum um
nýja °g betri þjónustu frá
Brimborg. Nýtt húsnæði Brim-
borgar er við Njarðarbraut 3,
Reykjanesbæ. Suðurnesja-
mönnum gefst nú kostur á því
að nýta sér bestu kjörin í stór-
markaði bílanna við húsgafl-
inn. Brimborg fagnar nú
mestu vinsældaraukningunni
meðal bílaumboða en Brim-
borg jók sölu sina mest meðal
fimm stærstu bílaumboða á Is-
landi eða um 93,4%, á síðasta
ári. Með opnun Brimborgar í
Reykjanesbæ er verið að bæta
þjónustu við íbúa á Suðurnesj-
um og vonast Brimborg til að
eiga gott samstarf við Suður-
nesjamenn i framtíðinni. Brim-
borg er umboðsaðili fyrir,
Citroen, Daihatsu, Ford og
Lincoln og Volvo ásamt því að
vera umboðsaðili fyrir öflug at-
vinnutæki frá Volvo Truck, Vol-
vo Penta, Volvo Bus og Volvo
vinnuvélar. Brimborg er einnig
stór innflutningsaðili á dekkj-
um frá Pirelli og Nokian.
Opið verður hjá Brimborg
Reykjanesbæ alla virka daga frá
kl. 10 til 18. Alla laugardaga frá
kl. 12 til 16. Allar upplýsingar
eru veittar í síma 422 7500.
Einnig er hægt að fara á vefsíðu
Brimborgar: www.brimborg.is
>• VETUR KONUNGUR MINNIR Á SIG - ÞÓ STUTT SÉ!
Handsömuðu illvígan snjódreka
VF-MYND: HILMAR BRAGIBÁRDARSON
míruríréttj
ÁNETINUVORU
FYRSTftR
ÞESSAFRETT!
Krakkarnir í 5. bekk C í Holtaskóla sáu eitthvað hreyfast í snjónum neðan við sundmiðstöðina í Keflavík í hádeginu á
mánudag. Eftir að hafa kastað snjóboltum í fyrirbærið stukku börnin á það og héldu föstu. Þá kom í Ijós að þarna var
snjódreki einn illvígur mjög. Hann var yfirbugaður fljótt og að lokum stillt upp fyrir myndatöku. Meðfylgjandi mynd er
af snjódrekanum ógurlega og börnunum í 5. C ásamt kennara sínum.
Getum bætt við í eftirtalin námskeið á vorönn 2004:
Öll námskeiðin eru haldinn í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2 í Reykjanesbæ.
Félagsmenn í Félagi myndlistamanna fá 15% afslátt af uppgefnu verði.
Lágmarksþátttaka á námskeið er 10 manns, að öðrum kosti fellur auglýst
námskeið niður.
Blönduð tækni
29. janúar til 13. maí, 14 vikur, fimmtudaga kl. 20:00 til 22:30.
Kennari Hermann Árnason, alþýðulistamaður. Verð kr. 16.800,-
Listsköpun og form - unnið með mósaeik
29. mars til 24. maí, 8 vikur, mánudaga kl. 20:00 til 22:30.
Kennari Svana Daðadóttir, myndlistakennari. Verð kr. 15.000.-
með efniskostnaði.
Málun framhaldsnámskeið
24. mars til 26. maí, 10 vikna námskeið, miðvikudaga frá kl. 20:00
til 22:30.
Kennari Þuríður Sigurðardóttir, myndlistamaður. Verð kr. 12.000.-
Innritun fer fram frá 23. til og með 27. janúar hjá Hjördísi Árnadóttur
eftir kl. 16:00 á daginn í síma 421 3389 og 862 5299.
Myndlistaskóli Reykjaness.
Lengi tekur sjórinn við!
Það hefur oft verið sagt að lengi taki sjórinn við. Það átti sannarlega við um
helgina. Þá var snjó ekið í bílförmum niður á Keflavíkurhöfn þar sem snjónum
var síðan sturtað í sjóinn. Blái herinn hans Tomma Knúts hefur hingað til gert
athugasemd við það að losað sé í sjóinn, en það er vart hægt að fá hreinna
„rusl“ en nýfallinn snjó af bílastæðum bæjarins.
VF-MYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
18
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLECA!