Víkurfréttir - 22.01.2004, Side 25
Orgryte, KR,
ÍA og Keflavík
á stórmóti
✓
Ilok janúar fer Iceland Express-mótið fram í EgiIshöII í Reykjavík, en
það er íjögurra liða mót í knattspyrnu þar sem þáttökulið verða KR,
IA og Keflavík auk sænska úrvalsdeildarliðsins Örgryte IS.
Knattspymudeild Keflavíkur hefur haft veg og vanda af framkvæmd og
skipulagningu mótsins, en samstarfaðilar þeirra eru Radisson hótelakeðjan
og ferðaskrifstofan Iceland Excursions/Allrahanda, auk Iceland Express.
I samtali við Víkuríréttir sagði Jón Pétur Róbertsson, framkvæmdastjóri
knattspymudeildarinnar, að Keflavík væm mjög spenntir fyrir mótinu og
vonuðust svo sannarlega til þess að keflvískir fótboltaáhugamenn mættu á
völlinn til að styðja við bakið á sínum mönnum.
Fyrri umferðin verður leikin fostudaginn 30. janúar og úrslitaleikimir daginn
eftir, laugardaginn 31. janúar.
HITAVEITUMÓTIÐ í KNATTSPYRIMU
Markaregn gegn Keflavíkurstúlkum
Isíðustu viku hófst Hita-
veitumótið í knattspyrnu
sem Hitaveita Suðurnesja
hefur staðið fyrir undanfarin
ár. í karlaflokki kepptu Fylkir,
FH og Stjarnan ásamt gestgjöf-
unum í Keflavík. I kvenna-
flokki mættu KR, ÍBV og
Stjarnan til leiks auk Keflvík-
inga.
Mótið hófst á miðvikudaginn í
síðustu viku með tveimur leikj-
um í karlaflokki. Keflavík vann
þá stórsigur á Stjömunni, 8-0 þar
sem Hörður Sveinsson skoraði
þrjú mörk i leiknum, Hólmar
Öm Rúnarsson og Magnús Þor-
steinsson skoruðu báðir tvö og
Stefán Gíslason eitt mark. Fylk-
ismenn sigruðu FH í hinum
leiknum, 5-2.
Keflavík og Fylkir léku þvi til úr-
slita á sunnudaginn. Leikurinn
var æsispennandi, en Fylkir hafði
betur eftir vítaspyrnukeppni þar
sem venjulegum leiktíma lauk
með jafhtefli 2-2.
Fyrsta mark leiksins skoraði
Fylkismaðurinn Ólafur Páll
Snorrason, en Hörður Sveinsson
jafnaði fyrir Keflavík og stóðu
leikar því jafnir í hálfleik. I þeim
seinni kom Helgi Valur Daníels-
son Fylkismönnum yfir á ný
með marki úr vítaspymu og virt-
ist sem það ætluðu að verða úrslit
leiksins þar til að Keflvíkingar
fengu hornspyrnu á síðustu
stundu. Stefán Gíslason átti góð-
an skalla sem hafnaði í netinu
eftir að vamarmanni Fylkis hafði
ekki tekist að veija á línunni.
I vítakeppninni varði nýr mark-
maðurFylkis, hinn 17 ára Jóhann
Ólafur Sigurðsson, þijár spymur
Keflvíkinga og tryggði sínum
mönnum sigur.
Stjaman vann FH í leik um þrið-
ja sætið, 6-4, þar sem Guðjón
Baldvinsson skoraði þrennu fýrir
sigurliðið.
Milan Stefán Jankovic var
ánægður með margt sem hann sá
til Keflvíkinganna í mótinu. „Við
emm að leika af meiri krafti og
hraða en á sama tíma og í fyrra
og baráttan var líka góð hjá okk-
ur. Stemmningin er líka frábær í
hópnum þar sem allir leggja sitt
fram til liðsins. Það sem þarf
helst að bæta hjá okkur er úthald-
ið en þegar það kemur og ef við
höldum okkar striki ættum við að
geta staðið okkur vel gegn úr-
valsdeildarliðum."
A laugardag hófst keppni í
kvennaflokki þar sem IBV vann
góðan sigur á KR með þremur
mörkum gegn tveimur. í hinum
leiknum tapaði Keflavík illa fyrir
Stjömunni, 5-0, og var því Ijóst
að þær myndu mæta IBV í úrslit-
um. Sá leikur fór fram á sunnu-
dag og lauk með vítaspyrnu-
keppni eins og í karlaleiknum,
þar sem ÍBV hafði betur. í leiks-
lok var staðan 2-2.
í leik um þriðja sæti mótsins
vann KR stórsigur á Keflavík,
13-0. Ásdís Þorgilsdóttir, þjálfari
Keflavíkur, var ekki nógu sátt við
útkomu liðsins, en að vísu vant-
aði margar stelpur sem eru fasta-
menn í byrjunarliðinu. „Þetta
gekk bara ekki neitt, en þegar
hópurinn er eins lítill og hann er
hjá okkur munar mikið um þijár
eða fjórar stelpur úr byrjunarlið-
inu. Þess vegna er erfiðara að sjá
hvemig liðið stendur, en maður
hlýtur samt að geta byggt eitt-
hvað á því sem maður sá um
helgina."
Meðal verkefna kvennaliðsins
framundan er æfingarferð í mars,
en svo hefst Deildarbikarinn í
april. Ásdís vil síðan benda fólki
á að stelpurnar munu standa fyrir
kökubasar í Sparisjóð Keflavíkur
á morgun frá 15.00 til 17.00 til
fjáröflunar fyrri deildina. Þar
verður einnig hægt að kaupa
blóm í tilefni bóndadagsins, en
áhugasamir geta einnig haft sam-
band við Ásdísi í síma 6960980.
GÓÐ FRAMMISTAÐA ÍRB
Sundfólk ÍRB var á réttu róli á Stórmóti SH sem fram
fór í Sundhöll Hafnarfjarðar um helgina.Tæplega 250
sundmenn tóku þátt í mótinu, en margir úr ÍRB komust
í úrslit eða unnu sínar greinar. Öm Arnarson setti nýtt ís-
Iandsmet í lOOm flugsundi og ætlar greinilega að byrja
Ólympíuárið með stæl. Þá náði Erla Dögg Haraldsdóttir lág-
mörkum fyrir EM 25 sem fram fer í Austurríki í desember.
Ungir og efnilegir sundmenn létu einnig að sér kveða og náði
Marín Hrund Jónsdóttir lágmörkum inn í Framtíðarhóp Sundsam-
bandsins þegar hún synti mjög gott 200m baksund.
Lið ÍRB átti þijá fulltrúa meðal stigahæstu sundmönnum í móts-
lok, en það voru þau Helena Ósk Ivarsdóttir, Þórður Ásþórsson og
Erla Dögg Haraldsdóttir. Synda varð þijú úrslitasund til stiga þan-
nig að Öm Amarson, sem var aðeins skráður í tvö sund, gat ekki
tekið þátt í stigakeppninni.
FIMLEIKADEILD KEFLAVÍKUR FÆR STYRK
Fimleikadcild Keflavíkur hlaut á dögunum styrk að upphæð
250.000 úr íþróttasjóði til að bæta aðstöðu til fimleikaiðk-
unar hér í bæ. Alls bárust 99 umsóknir um styrki úr sjóðn-
um, en menntamálaráðherra samþykkti tillögur Iþróttanefndar
um styrkveitingar, alls að upphæð kr. 18.020.000 til 70 verkefna. í
fjárlögum ársins 2004 eru sjóðnum ætlaðar 18,3 milljónir króna.
STELPUSLAGUR 2004
SUDURNES UNNU
Úrvalslið Suðurliðanna
svokölluðu, liðanna af Suður-
nesjum og Hauka, bar sigurorð
af úrvalsliði Reykjavíkurliða,
99-78, í stjörnuleik kvenna í
körfuknattleik, Stelpuslag
2004, en leikurinn fór fram í
Seljaskóla í síðustu viku.
Reykjavíkurliðið hafði yfir í
hálfleik, 47-45, en Suðurstúlk-
ur komu sterkar til leiks í sein-
ni hálfleik og tryggðu sér verð-
skuldaöan sigur að lokum.
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík,
var valinn maöur leiksins, en
auk hennar léku fimm Kefla-
víkurstúlkur, þrír Grindvíking-
ar og einn Njarðvíkingur,Auð-
ur Jónsdóttir, með liðinu. Þá
voru Haukastúlkumar Helena
Sverrisdóttir og Pálína Gunn-
laugsdóttir einnig í sigurliðinu.
Birna Valgarðsdóttir var stiga-
hæst Suðurliðsins með 17 stig
en Erla Þorsteins kom henni
næst með 14 stig og tók auk
þess 10 fráköst. Eplunus
Brooks, ÍR, var stigahæst
Reykjavíkurliðsins með 16 stig,
en KR-ingurinn KatieWolfe
skoraði 12 stig.Anna María
Sveinsdóttir úr Keflavík vann
þriggja stiga skotkeppnina eftir
æsispcnnandi lokarimmu við
hina 16 ára Pálínu Gunnlaugs-
dóttur. Þá unnu Katie Wolfe og
Erla Reynisdóttir hvor í sínum
riðlinum í vítaskotakeppninni.
ALLT HREINT EHF.
ATVINNAI BQÐI
Bíó þrif:
Laus eru nokkur störf vió bíó þrif,
vinnutíminn er fró 07:30 til 16:30, virka daga
en fró 07:30 til 12:00 um helgar.
Unnió er aöra vikuna mónud, þriðjud, og
föstud, laugard sunnud.
Hina vikuna er unniö miövikud og fimmtud.
Helgarvinna við bíó þrif:
Laus eru nokkur störf í bíó þrifum um
helgar, laugard og sunnud.
Vinnutími er fró 07:30 til 12:00.
í ofantöld störf er lógmarksaldur 20 ór,
íslenskukunnótta og almenn ökuréttindi skilyröi.
Útkallsvinna ó bónstöð:
Erum aö leita að óbyrgum og
röskum starfskrafti í útköll
Ef þú ert röskur eSa rösk meS bílpróf
og vantar aukavinnu (t.d. með skóla)
þó endilega hafóu samband.
Umsóknir sendist ó netfang hgg@simnet.is
eöa í pósthólf 30, 230 Keflavík.
Minnum á netpóst íþrótta
sport@vf.is
VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ2004 I FIMMTUDAGURINN 22.JANÚAR 2004 125