Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.01.2004, Síða 10

Víkurfréttir - 29.01.2004, Síða 10
moma Víkurbraut 62 - sími 426 8711 Lindon Hörbuxur og jakkar Ef svo er þá erum við að leita að þér. Okkur vantar blaðbera á Suðurnesjum til þess að bera út Fréttablaðið og DV: Virka daga: 240 Blómsturvellir, Efstahraun og fl. 250 Garðbraut og fl. Um helgar: 230 Heiðarholt, Hafnargata, Austurgata, Brekkubraut Eyjavellir, Garðavegur, Baldursgata 240 Austurvegur, Blómsturvellir, Arnarhraun, Dalbraut 240 Maragata 250 Garðbraut og fl. Einnig vantar okkur fólk á biðlista. Hringdu í síma 515 7520 og athugaðu hvort þín gata er laus. Frétt ehf. Skaftahlíð 24, dreifingarsími 515 7520 > BÍLAUMBOÐUM FJÖLGAR Á SUÐURNESJUM Glæsilegt utibu Brimborgar Brimborg opnaði form- lega á fostudag útibú að Njarðarbraut 3 í Reykjanesbæ og var fjöldi Suð- urncsjamanna viðstaddur opn- unina, en Brimborg var með sýningu á bifreiðum sínum um siðustu helgi. Egill Jóhannsson framkvæmdastjóri Brimborg- ar er bjartsýnn á framtíð Brimborgar á Suðurnesjum og sagði að Suðurnesjamönnum yrði veitt mjög góð þjónusta. Suðurnesjamönnum gefst nú kostur á því að nýta sér bestu kjörin í stórmarkaði bilanna við húsgaflinn. Brimborg fagnar nú mestu vinsældaraukningunni meðal bílaumboða en Brimborg jók sölu sína mest meðal fimm stærstu bílaumboða á íslandi eða um 93,4%, á siðasta ári. Brim- borg er umboðsaðili fyrir, Citroén, Daihatsu, Ford og Lincoln og Volvo ásamt því að vera umboðsaðili íyrir öflug at- vinnutæki frá Volvo Truck, Volvo Penta, Volvo Bus og Volvo vinnuvélar. Brimborg er einnig stór innflutningsaðili á dekkjum frá Pirelli og Nokian. Piero Segatta, sölustjóri sagði að viðtökumar hafi verið góðar frá því Brimborg opnaði sl. laug- ardag og sala góð. Opið verður hjá Brimborg Reykjanesbæ alla virka daga ffá kl. 10 til 18. Alla laugardaga ffá kl. 12 til 16. »00 fermetra salinn. ítrekuð skemmdarverk við göngustíg í Njarðvík Eins og sjá má hafa Ijósin verið brotin við göngustíginn. VF-MYND: JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON Utiljós við göngustíg sem liggur við Kjarrmóa 10 í Njarðvík hafa margoft verið skemmd og nú síðast var eitt ljósanna sprengt með flug- eldum um áramótin. Að sögn Unnars Más Magnússonar íbúa í Kjarrmóa 10 og eiganda ljósanna hafa Ijós við göngu- stíginn verið skemmd margoft á síðustu 2 árum. „A ljósunum eru lítil gler sem krakkar virðast hafa gaman af að bijóta, en ég hef 20 sinnum skipt um glerið í ljósunum,“ segir Unnar Már, en sést hefur til ung- linga rífa upp ljós og taka mér sér undir hendinni. „Aðalmálið hjá okkur er að fá foreldra til að lesa yfir bömunum og laga virðingar- leysið því það virðist algert". Unnar segir að hann sé að gefast upp á að hafa ljósin við göngu- stíginn. „Ég ætla að gera eina til- raun enn og ef hún misheppnast þá tek ég ljósin í burtu." >STÓR TfSKUVERSLUN Á LEIÐ TIL REYKJANESBÆJAR Eigendur Sautján opna Gallerí Keflavík Ný tískuvöruvcTslun, Gallerí Keflavík mun opna á Hafnargötunni í apríl, en verslun- in er á vegum fyrirtækisins NTC sem m.a. rekur verslanirnar 17. Rekstraraðili Gallerí Keflavík er Guðrún Reynisdóttir. „Við viljum efla verslun á Suðumesjum og við vilj- um taka þátt í því, en á síðustu mánuðum hefur Hafnargatan tekið stakkaskiptum og það teljum við mjög jákvætt. En það þarf að gera meira og allt nýtt sem kemur hlýtur að teljast jákvætt," sagði Guðrún í samtali við Víkurfféttir. Að sögn Ásgeirs Bolla Kristinssonar forstjóra NTC er verið að skcða 4-5 húsnæði sem koma til greina undir verslunina. „Við höfum nú þegar pantað inn vörar í verslunina og smíði innréttinga er hafin," segir Ásgeir Bolli. Verslunin sem opnuð verður við Hafnargötuna verður svipuð og verslunin Gallerí Akureyri sem staðsett er við Strandgötuna á Akureyri, en verslun- in var opnuð í april á síðasta ári. Að sögn Ásgeirs Bolla verður mikið vöruúrval í Gallerí Keflavík þar sem boðið er upp á vörur úr verslununum NTC. 10 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! VF-MYNDIR: PÁLL KETILSSON

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.