Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.01.2004, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 29.01.2004, Blaðsíða 22
> METHAGNAÐUR SPARISJÓÐSINS í KEFLAVÍK Hagnaður eftir skatta rúmar 600 milljónir kr. Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík fyrir árið 2003 nam 738,2 m.kr. króna fyrir skatta samanborið við 140,7 m. kr. árið áður, en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sparisjóðnum. Hagnaður eftir skatta nam 604,1 m. kr. samanborið við 117,6 m. kr. árið áður. Arðsemi eigin fjár var 33,3‘/o. Þessa hagnaðaraukningu milli ára má að mestu rekja til gengis- hagnaðar af annarri íjármála- starfsemi. Aðalfundur Spari- sjóðsins í Keflavík verður hald- inn föstudaginn 12. mars n.k. Stjórn sjóðsins leggur til að greiddur verði 8,5% arður á upp- reiknað stofnfé. Auk þess sem nýttar verði heimildir laga um endurmat og viðbótarendurmat þannig að nafiiávöxtun stofhfjár verði 19,17%. Helstu niðurstöður úr rekstriogefnahag * Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík árið 2003 nam 738,2 m.kr. króna fyrir skatta saman- borið við 140,7 m. kr. árið 2002. * Hagnaður eftir skatta nam 604,1 m. kr. samanborið við 117,6 m.kr.árið 2002. * Arðsemi eigin fjár var 33,3%. * Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu 1.819,5 m.kr. en það er 1,4% hækkun frá árinu 2002. * Vaxtagjöld hækkuðu einnig, eða um 3,3% og námu 1.074,9 m.kr. árið 2003 * Hreinar vaxtatekjur námu því 744,6 m.kr. samanborið við 754,4 m.kr. árið 2002 sem er lækkun um 1,3%. * Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxta- tekjur í hlutfalli af meðalstöðu ljármagns var 3,77% árið 2003 en 3,83% árið 2002. * Aðrar rekstrartekjur jukust um 811 m. kr. og voru 1.089 m.kr. árið 2003. * Önnur rekstrargjöld námu alls 805,7 m.kr. og jukust um 7,1% frá árinu áður. Laun og launa- tengd gjöld jukust um 11% og þar af voru bein laun 7,06%. Annar almennur rekstrarkostnað- ur jókst um 4,6%. Rekstrarkostn- aður sem hlutfall af niðurstöðu efhahagsreiknings var 4% sem er það sama og árið 2002. * Kostnaðarhlutfall árið 2003 var 43,9% á móti 72,9% árið 2002. Hagnaðureftirskatta nam 604,1 m. kr. saman- borið við 117,6 m. kr. árið áður. Arðsemi eigin ffjár var 33,3%. Þessa hagnaðar- aukningu miili ára má að mestu rekja til gengishagn- aðar af annarri fjármála- starfsemi. * Framlag í afskriftareikning út- lána var 290 m.kr. en var 138,9 m.kr. árið 2002. Sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var framlagið 1,45% en var 0,73% árið 2002. * Afskriflareikningur útlána nam í árslok 2,04% af útlánum en var l, 82% árið áður. * Heildarinnlán í Sparisjóðnum ásamt lántöku námu í lok árins 2003 15.599 m.kr. og er aukning- in 8,6% á milli ára. * Útlán Sparisjóðsins ásamt markaðsskuldabréfum námu 16.451,2 m.kr. í lok ársins 2003 og höfðu aukist um 563,9 m.kr. eða um 3,5%. * I lok ársins var niðurstöðutala efhahagsreiknings 19.992,8 m.kr. og hafði hún hækkað um 1.082 m. kr. eða 5,7%. Eigið fé Spari- sjóðsins í lok ársins 2003 nam 2.358,8 m.kr. og hefur eigið fé aukist um 545,6 m.kr. eða 30,1%. Eiginfjárhlutfall Spari- sjóðsins samkvæmt CAD-regl- um er 14,95% en var 10,54% á sama tíma árið áður. * Áætlanir fyrir árið 2004 gera ekki ráð fyrir eins góðri afkomu og árið 2003 og skýrist það eink- um af þeim gengishagnaði sem varð af annarri fjármálastarfsemi árið 2003. * í lok árins 2003 var stofnfé 600 milljónir og voru stofhfjáraðilar 560 talsins. * Við gerð þessa ársreiknings er í meginatriðum fylgt sömu reikn- ingsskilaaðferðum og árið áður. Sparisjóðurinn í Keflavík var stofnaður 1907 og hefur því þjónað Suðumesjamönnum í 96 ár. Sparisjóðurinn rekur fimm af- greiðslur sem starfræktar eru i Keflavík, Njarðvík, Garði, Grindavík og Vogum. Höfuð- stöðvar Sparisjóðsins eru í Kefla- vík og þar er Viðskiptastofa SPKEF einnig til húsa. Starfs- menn Sparisjóðsins eru um 73 talsins og bjóða þeir víðtæka fjár- málaþjónustu fyrir viðskiptavini á öllum aldri. Árgangiir 1980 í Keflavíl<. Fermingarafmæli verður haldið 13. mars nk. Nánari upplýsingar síðar. Kveðja, stjómin. > BJÖRGUNARSVEITIN SUÐURNES Björgunarsveitin Suður- nes fékk fyrir helgina afhentan nýjan björg- unarbát. Báturinn, harðbotna slöngubátur upp á 6,5 metra að lengd, er keyptur notaður frá konunglega breska björg- unarvélaginu, RNLI. Báturinn hefur reynst breska félaginu vel en báturinn er sérstaklega hannaður til björgunaraðgerða við erfiðar aðstæður. Björgunarbáturinn verður búinn tveimur vélum og verður því mjög öruggur við björgunarað- gerðir. Hann leysir af hólmi mun minni bát. Báturinn er keyptur án véla en þegar hann hefur verið standsettur verður kostnaður við hann kominn hátt í þijár milljónir króna, að sögn Gunnars Stefáns- sonar, formanns Björgunarsveit- arinnar Suðurnes. Báturinn er fjármagnaður með tekjum af flugeldasölu og með styrkjum velunnara sveitarinnar. Það eru Eimskip sem standa straum af kostnaði við flutning á björgunarbátnum til Reykjanes- bæjar. Eimskip keyptu á síðasta ári Skipaafgreiðslu Suðurnesja og að sögn Jóns Norðfjörð ffam- kvæmdastjóra er ætlunin hjá Eimskip að efla starfsemi sína á Suðumesjum á þessu ári. Senn byrja Eimskip flutninga fyrir Vamarliðið og verður Helguvík- urhöfh viðkomustaður skipa fé- lagsins. Þá er Björgunarsveitin Suðurnes 10 ára á árinu og því var ákveðið að flytja björgunar- bátinn frá Bretlandi án endur- gjalds. 22 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.