Víkurfréttir - 29.01.2004, Blaðsíða 12
Fjölskylda okkar hefur
stundað náttúru-
lækningar í 4 kynslóðir.
Pantanasimi 421 8858.
Tólalukka 2003 te* 9003 *«*
Eríu með ^Si^Í^íum?
Minnum á að vinningar gilda út febrúar 2004
Skógarhlíð 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700
Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is
Hafnargötu 58 - sími 421 8858
Fyrirtæki í flugrekstri óskar að ráða starfs-
mann í fraktafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli.
Starfssvið:
Umsjón með frakt
Sala og kynning á þjónustu fyrirtækisins
Hæfniskröfur:
Við leitum að vandvirkum starfsmanni með
söluhæfileika og löngun og hæfileika til að veita
góða þjónustu.
Reynsla á framangreindu starfssviði er áskilin.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða og geta hafið
störf sem fyrst.
Vinnutími er frá kl. 6-14 virka daga.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir
5. febrúar nk. Númer starfs er 3615.
Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson
Netfang: thorir@hagvangur.is
d"
HAGVANGUR
Beitum
aldargömlum
kínverskum
aðferðum við
að halda
niðri gigt.
Ertu... með vöðvabólgu? ...með verki íöxlum eða
baki? ...með stirða liði?... að reyna að hætta að
reykja eða drekka áfengi? ...með siæma húð?
...oft þreyttur /þreytt? Þá getum við aðstoðað!
Bátasafn Gríms Karlssonar fær
gamla handfærarúllu að gjöf
Ein fyrsta handfærarúlla
sem smíðuð var á íslandi
var gefin á Bátasafn
Gríms Karlssonar í Duus hús-
um, en það var Garðar Magn-
ússon frá Höskuldarkoti í
Njarðvík sem gaf rúlluna.
Oddgeir Pétursson uppfinn-
ingamaður úr Keflavík smíðaði
rúlluna árið 1952 og var hann
viðstaddur afhendinguna í
bátasafni Gríms, en Oddgeir
verður níræður í sumar.
Það var Magnús Olafsson, faðir
Garðars sem keypti ijórar hand-
færarúllur af Oddgeiri árið 1952
en rúllurnar voru notaðar um
borð í Gylfa GK-522 sem Magn-
ús var útgerðarmaður að.
„Ja, nú er ég hissa. Þetta er frum-
gerðin. Þetta hélt ég að væri ekki
til,“ sagði Oddgeir þegar hann sá
rúlluna við afhendinguna. Að
sögn Garðars og Oddgeirs gjör-
breyttu þessar rúllur handfæra-
veiðum á Islandi. „Aður en rúll-
urnar komu þurfti maður að
draga girnið inn á höndum og
það lá flækt um allt dekksegir
Garðar.
Þegar Oddgeir er spurður að því
hvernig honum hafi dottið í hug
að smíða handfærarúlluna svarar
á hógværan hátt. „Ja, öllum dett-
ur nú allskyns vitleysa í hug.“
Lestrarerfíðleikar hjá fullorðnum
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
ásamt Verkalýðs- og sjómannafélagi
Keilavíkur og nágrennis, Iðnsveinafélagi
Suðurnesja, Verslunarmannafélagi Suðurnesja
og Starfsmannafélagi Suðurncsja standa fyrir
átaki í málcfnum fullorðinna með lestrar- og
stafsetningarerfiðleika. Boðið verður upp á
greiningu og ráðgjöf fyrir einstaklinga sem vilja
ná betri tökum á því að lesa og stafsetja. Rann-
veig G. Lund cr sérfræðingur á þessu sviði og
mun hún annast þessa þjónustu fyrir Miðstöð si-
menntunar á Suðurnesjum. Rannveig mun meta
stöðuna einstaklingslega hjá þeim sem þess óska
og tekur athugun og viðtal um 40 mínútur.
Stuttu síðar á hún fund með hverjum og einum
og gefur ráð út frá niðurstöðum.
Einstaklingar sem eiga í erfiðleikum með eftirfar-
andi, eiga erindi í greininguna:
■ að lesa upphátt
■ að lesa hratt
■ að lesa langar bækur eða langar greinar í blaði
■ að halda athyglinni við lesefnið og muna það
■ að stafsetja
Greiningin mun fara frarn 14. febrúar hjá Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum. Nánari upplýsingar og
skráning er í síma 421 7500.
> REYKJANESBÆR
Breytingar á gjaldskrá leik-
skóla samþykktar í bæjarráði
Bæjarráð Reykjanesbæj-
ar samþykkti á fundi
sínum í morgun breyt-
ingar á gjaldskrá leikskóla sem
taka gildi 1. febrúar n.k. Tíma-
gjald vegna eins barns á leik-
skóla verður áfram það sama
eftir gjaldskrárhækkun um
áramótin.
Breytingarnar sem samþykktar
voru í bæjarráði í morgun fela í
sér eftirfarandi:
1. Systkinaafsláttur af tímagjaldi
vegna annars bams verði 40% í
stað 25% áður.
2. Afsláttur með þriðja systkini á
leikskóla verði 75% í stað 50%.
3. Systkinaafsláttur gildir um
barn í leikskóla ef systkini, 18
mánaða eða eldra, er í vistun hjá
dagforeldri.
4. Gefinn er 25% afsláttur af
tímagjaldi ef annað greiðandi
foreldra er í fúllu námi.
Atram er hægt að sækja um sér-
stakan afslátt ef böm búa við fé-
lagslega erfiðleika eða erfiðar
heimilisaðstæður.
Breytingar á systkinaafslætti
þýða að gjald vegna annars bams
foreldra fyrir 8 tíma vistun, með
mat og hressingu, fer úr 21.800 í
18.680
Gjald fyrir þriðja barn fer úr
13.500 í 6.750 kr.
Sé bam á leikskóla og 18 mán-
aða eða eldra systkini hjá dag-
móður, er veittur sami afsláttur
og að ofan greinir.
Sé annað foreldra í fullu námi er
gjald vegna 1. bams, m.v. 8 tíma
vistun og fullt fæði, 21.800 í
stað 27.000 króna áður, en frá
þessu var greint á vef Reykjanes-
bæjar.
12
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!