Víkurfréttir - 29.01.2004, Síða 14
UTSALA
Allar útsöluvörur
á 990,-
Nýju vörurnar komnar
mangó
K E F L A V I K
netþjónatilboð
Netþjónn
HP tc2120 netþjónn
Intel Pentium 4 • 256MB vinnsluminni
36,4GB SCSI harður diskur
48x Geisladrif / Disklingadrif
10/100/1000 WOL netkort
verð kr. 89.900,-
jJv
Uj 7
Microsoft"
Windows
Small Business Server2003
fyrir 5 notendur Verð kr. 75.900,-
*ATH! 5 auka notendaleyfi frítt með til 5.febrúar
Small Business Server 2003 gerir meira fyrir minni fyrirtæki!
Windows Server 2003 • Windows SharePoint Services
Exchange Server 2003 technology (Vefaðgangur að tölvupósti)
Microsoft Office Outlook 2003 • Microsoft Shared Fax Service S A H XE F N 11
Routing and Remote Access Services (RRAS) □EaasoQEXQEcnn
Hringbraut 96 • 230 Keflavík • Sími 421 7755 • www.samhaefni.is
Birgitta komin á Flughótel
Svæðameðferð á fótum,
eyrum, handleggjum. Á
námskeiðinu lærir þú
grunn og aðferðafræði i
svæðameðferð.
Námskeiðið hefst
Flughótelinu í Keflavíi
Konur: 23. febrúar
til 10. maí.
Karlmenn: 24. febrúar
til 11. maí.
Skráning á námskeið í síma 421 6158 eftir kl.19.
Birgitta Jónsdóttir Klasen, náttúrulæknir.
stuttar
f r é t t i r
Guðrún hjá
S.R.F.S
Guðrún Hjörleifsdótt-
ir miðiil mun starfa
hjá Sálarrannsókn-
arféiaginu 29. janúar og
Skúli Lórentsson miðill
mun einnig starfa hjá félag-
inu 4. febrúar. Tímapantan-
ir hjá félaginu í síma 421
3348.
Lið FS sigraði lið
Bændaskólans í
Gettu Betur
Lið Fjölbrautaskóla
Suðurnesja komst
áfram í spurninga-
keppni framhaldsskólanna,
Gettu Betur þegar lið FS
sigraði Landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri með
18 stigum gegn 17. Keppnin
fór fram á Rás 2 sl. þriðju-
dag, en lið FS skipa þeir Ari
Lár Valsson, Bragi Jónsson
og Gunnar Þór Asgeirsson.
Þeim til aðstoðar er Ami Jó-
hannsson en umsjón með
liðinu hefur Magnús Ó.
Ingvarsson, stærðfræði-
kennari.
Keppnin á Rás tvö er útslátt-
arkeppni. Lið frá 28 skólum
taka þátt í keppninni að þessu
sinni og hefur þátttaka aldrei
verið meiri.
Keppnin í Sjónvarpinu hefst
fimmtudag 19. febrúar og
lýkur 2. apríl. Atta lið keppa í
Sjónvarpinu.
> MÁLEFNI LEIKSKÓLANNA
■ Garðar Ketill Vilhjálmsson skrifar:
Hér á ég heima
Hækkun Ieikskóiagjaida
Reykjancsbæjar nú um
áramótin hefur fallið í
grýttan jarðveg
meðal foreldra
Ieikskólabarna.
Finnst sumum
freklega að sér
vegið, tala um
svívirðu, og það-
an af verri hluti.
Við hjónin höfum verið við-
skiptavinir leikskóia í Reykja-
nesbæ sl. 10 ár og verðum
væntanlega enn um sinn. Börn-
in okkar þrjú hafa öll notið þar
vistunar frá tveggja ára aldri,
en það er sá aldur sem flest
sveitarfélög hafa reynt að miða
þjónustuna við. Flestum hefur
reyndar tekist það illa og víðast
hvar eru biðlistar eftir leik-
skólaplássum, ckki í Reykja-
nesbæ. Hér er þjónustustigiö
einfaldlega hærra en í flestum
öðrum sveitarfélögum. Það á
reyndar cinnig við um flest
annað sem lýtur aö þjónustu
við börnin okkar. Nægir þar að
nefna frístundaskóla fyrir börn
í 1.-4. bekk, og mötuneyti með
heitar máltíöir í hádcginu í iill-
um skóium, svo ekki sé minnst
á gjaldfríu strætisvagnaþjón-
ustuna. Reykjanesbær er ein-
mana í hópi þeirra sveitarfé-
laga sem bjóöa þessa þjónustu,
því hann er einn í þeim hópi!
Það skýtur því frekar skökku við
þegar hlutirnir eru skoðaðir í
samhengi hver við annan, að íbú-
um í Reykjanesbæ þyki freklega
á sér brotið þegar gjaldskrá fyrir
þjónustu leikskóla er leiðrétt til
samræmis við það sem gerist í
flestum öðrum sveitarfélögum.
Yfirleitt hefði það talist eðlilegt
að þar sem þjónustustigið er hæst
væri líka greitt hæsta verðið. Það
er þó ekki reyndin, við búum við
hæsta þjónustustig sem þekkist
en greiðum lægra verð en víða
annars staðar, og örugglega það
lægsta ef borið er sarnan heild-
stætt, verð og þjónusta. Við hljót-
um að þurfa að horfa á þjónust-
una við börnin okkar i heild
sinni. Ekki einblína bara á það 4
ára tímabil sem þau ganga í leik-
skóla. Lögum samkvæmt er það
18 ára tímabil sem bömin eru á
okkar framfæri og því eðlilegt að
horfa á þjónustuna í því sam-
hengi.
Sumir hafa gagnrýnt það að bera
Reykjanesbæ saman við Reykja-
víkurborg. Hvað er að því? Þar
býr um þriðjungur landsmanna
og þar er þjónustustigið næst því
að vera samanburðarhæft við
Reykjanesbæ. Er þá óeðlilegt að
bera saman verð á þjónustunni
þar og hér?
Það vill svo til að samanburður
sá sem birtur var í auglýsingunni
um gjaldskrá Reykjanesbæjar gat
auðveldlega átt við um mína fjöl-
skyldu. Ég sá ekkert sorglegt við
þennan samanburð. Þvert á móti
fannst mér hann ánægjuleg stað-
festing á því sem ég hef alltaf
haldið fram, að hér er ekki bara
gott að búa, hér er hagstætt að
búa - liér á ég heima!
Garðar K. Vilhjálmsson
B.B.A. og stud. jur
Rs. Svo vill svo skemmtilega til
að bænum er stjórnað af fólki
sem hlustar á gagnrýnisraddir
og tekur tillit til þeirra. I okkar
tilfelli (faðir i fullu námi) verða
endanlegar gjaldskrárbreytingar
leikskólaima til þess að okkar
kostnaður lœkkar um liðlega
2000 ki: á mánuði. Fjölskyldu-
vœnt? Dœmi hverfyrir sig.
■ Skarphéðinn Njálsson skrifar:
Gott að búa í Reykjanesbæ
Að undanfornu hefur ver-
ið hávær umræða um
Ieikskólagjöld. Það eru
ekki mörg ár síð-
an við stóðum í
þeim sporum að
sækja um leik-
skólavist fyrir
barn okkar.
Þá var langur
biðlisti og þá
greiddu foreldrar helming af
kostnaði við leikskólavistina. Nú
er enginn biðlisti og þrátt fyrir
hækkanir greiða foreldrar aðeins
þriðjung af kostnaði.
Ég sé ekki betur en flest sveitar-
félög séu að taka á sig 2/3 af
þessum kostnaði og foreldrar að
greiða 1/3. Með nýsamþykktum
breytingum á gjaldskrá sýnist
mér Reykjanesbær alveg i sömu
stöðu. Nema þá að hér eru ekki
biðlistar og þjónusta til mikillar
tyrinnyndar. Flóknara er þetta nú
ekki! Svo er það undarlegt að
ekki megi ræða heildarmyndina í
þessu samhengi s.s.
um ókeypis strætisvagna, ferða-
kostnað námsmanna, heitan mat
íyrir öll böm í grunnskólum, ffá-
bæran frístundaskóla, og menn-
ingarhús fýrir unga fólkið.
Þetta allt gerir mann stoltan yfir
að búa í Reykjanesbæ. Hafa bæj-
arbúar áður séð eins miklar og já-
kvæðar breytingar í umhverfis-
málum og fjölskyldumálum?
Hér finnst mér gott að búa og ég
vona að þið séuð mér sammála.
Með vinsemd,
Skarphéðinn Njálsson
Jólaluhha 2003
zh, i- 'i .'iiim i n.i it \ n,i'iti ki 11 \ 1
<KI\ tatM.ANA A {SI'IMtKNIiFII'M
Ertu með vinning í vasanum?
kAinnum á að vinningar gilda út febrúar 2004
14
VfKURFRÉTTlRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!