Víkurfréttir - 09.03.2006, Síða 4
Geirmundur Kristinsson, sparisjóösstjóri, færði nokknum
félögum i Sandgeröisbæ peningagjafir. Björgvunarsveitin
Sigurvon, Fræðasetrið og íþróttafélagið Reynir fengu hvert
kr. 250.000 til styrktar þeirra starfsemi.
SpKef gefur góðar gjafir við
opnun Sandgerðisútibús
Sparisjóðurinn í Keflavík tók við afgreiðslu
Landsbankans í Sandgerði á mánudags-
morgun og er nú ineð afgreiðslur í öllum
sveitarfélögum á Suðurnesjum. Opnunartími
afgreiðslunnar hefur verið Iengdur og er nú frá
kl. 9:15 - 16:00. Afgreiðsla Sparisjóðsins í Garði
var einnig opnuð á nýjum stað og með nýjum
opnunartíma. Hún er nú á Heiðartúni 2 og opið
erfrá 9:15-16:00.
Hrafnhildur Sigurðardóttir, þjónustustjóri í Sand-
gerði, tók vel á móti fyrsta viðskiptavininum sem
reyndist vera Jónatan Jóhann Stefánsson og fékk
hann af því tilefni innstæðu á bankareikning og
veski að gjöf. Einnig færði Geirmundur Kristins-
son, sparisjóðsstjóri, nokkrum félögum í Sand-
gerðisbæ peningagjafir. Björgvunarsveitin Sigur-
von, Fræðasetrið og íþróttafélagið Reynir fengu
hvert kr. 250.000 til styrktar þeirra starfsemi.
Geirmundur sagðist við opnunina vonast til þess
að yfirtakan myndi takast vel og að viðskiptavinir
yrðu fyrir sem minnstum óþægindum. Einhverjir
tæknilegir örðugleikar hafi komið upp um helgina
en þau vandamál væru leyst núna. Viðskiptavinir
eru hvattir til að hafa samband við Sparisjóðinn
og fara yfir sín mál. Starfsfólk Sparisjóðsins verður
boðið og búið að greiða úr öllum málum sem upp
kunni að koma.
Mistök voru gerð í úthlutun símanúmera en
númer afgreiðslunnar í Sandgerði verður 423-
8190 og fax-númer 423-8199.
Samfylkingin
Samfylkingarfólk athugið!
Félagsfundur í Samfylkingunni í Reykjanesbæ
verður haldinn sunnudaginn 12. mars kl. 15:00 á
Glóðinni við Hafnargötu í Reykjanesbæ.
Dagskrá
1. Tillaga uppstiilingarnefndar um skipan framboðslista
A-Iistans í bæjarstjórnarkosningunum 27. maí 2006.
2. Önnur mál
Stjórnin
Hrafnhildur SÍalJfð'aMlðttTrrbiónustusti'oriili
möti fyrsta viðskiptagjnmum sem revndistl
Stefánsson og fékk hanmaf þvi tilefniinnfÍ
og veski að gjöf. \
itmnkareikning
Breyting a eignarhaldi
á afgreiðslu Lands-
bankans í Sandgerði
Landsbankinn og Spari-
sjóðurinn í Keflavík
undirrituðu í síðasta
mánuði samkomulag um
að Sparisjóðurinn tæki við
rekstri afgreiðslu Lands-
bankans í Sandgerði. Spari-
sjóðurinn tók formlega við
öllum eignum og skulduin
bankaafgreiðslunnar sunnu-
daginn 5. mars sl. Um leið
tók Sparisjóðurinn við samn-
ingi við íslandspóst hf. um
póstafgreiðslu.
I ljós hefur komið að nokkrir
hnökrar urðu við flutning
viðskiptareikninga frá Lands-
bankanum til Sparisjóðsins.
„Við biðjumst velvirðingar
á þeim óþægindum sem við-
skiptavinir hafa orðið fyrir,"
segir Friðgeir M. Baldursson,
útibússtjóri Landsbankans í
Keflavík. „Ástæðurnar voru
fyrst og fremst tæknilegar. Til
þess að hægt væri að flytja
viðskiptareikninga á milli
fjármálafyrirtækjanna fór
fram víðtæk tölvukeyrsla í
Reiknistofu bankanna. Slíkar
keyrslur hafa undantekninga-
lítið verið unnar án vankanta
og komu þessi vandkvæði
því verulega á óvart, en hluti
debetkorta varð óvirkur tíma-
bundið við keyrslu kortanna,“
segir Friðgeir.
Friðgeir bendir á að sameigin-
leg yfirlýsing Landsbankans
og Sparisjóðsins hafi verið
send staðarblöðum og öðrum
fjölmiðlum um eignarhalds-
breytinguna á afgreiðslunni í
Sandgerði. „Það varð að sam-
komulagi milli kaupanda og
seljanda að Sparisjóðurinn
sendi viðskiptavinum nánari
upplýsingar um framkvæmd-
ina og það bréf hafa við-
skiptavinir fengið,“ útskýrir
Friðgeir. „Við vildum hins
vegar einnig fá tækifæri til að
ávarpa viðskiptavini okkar í
Sandgerði og sendum því bréf
í vikunni til að þakka fyrir
ánægjuleg viðskipti á liðnum
árum. Nú hafa viðskiptin
gengið í gegn og við þökkum
viðskiptavinum okkar í Sand-
gerði ánægjuleg viðkynni og
óskum þeim farsældar í fram-
tíðinni.“
Landsbankinn hafði starfrækt
bankaafgreiðslu í Sandgerði
frá því í janúar 1964 eða rúm-
lega 42 ár. I upphafi var af-
greiðslan starfrækt sem hluti
af útibúinu í Grindavík en
síðar sem sjálfstæð eining.
Landsbankinn mun sem
fyrr veita öfluga alhliða fjár-
málaþjónustu frá útibúi sínu
í Reykjanesbæ. Friðgeir M.
Baldursson, útibússtjóri,
hvetur viðskiptavini að hafa
samband við útibúið í síma
410-4142 ef einhverjar spurn-
ingar vakna varðandi sölu
á afgreiðslu bankans í Sand-
gerði.
Þjónustuver Landsbankans
veitir einnig upplýsingar í
síma 410-4000 alla virka daga
milli kl. 8:00 og 21:00 og á
laugardögum frá kl. 11:00-
16:00.
VfKURFRÉTTÍR ! 10. TÖLUBLAÐ ! 27.ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!