Víkurfréttir - 09.03.2006, Side 18
Kolbiiuiiu ©uíiimQrsd&ffrírrí
ini . miii«iiiliiiiiii>^——wr - nw—imJmm
Su&urnesiQlt^M
1 > ":W
c>-
1
Arið 1986 var fyrsta árið sem
formleg Fegurðarsamkeppni
Suðurnesja var haldin og
hrósaði Kolbrún Gunnarsdóttir þar
sigri. Hún var hlutskörpust í hópi sjö
stúlkna og fór í kjölfarið í Ungfrú Is-
land og síðar Ungfrú Skandinavía. Kol-
brún býr nú í Mosfellsbæ ásamt eigin-
manni sínum Björgvini Filippussyni
og þremur börnum þeirra. Þessi fyrsta
fegurðardrottning Suðurnesja sér ekki
eftir neinu og á ekkert nema hlýjar
minningar frá þessum tíma.
Hvernig atvikaðist það að þti ákvaðst
að taka þátt í Fegurðarsamkeppni Suð-
urnesja?
Ágústa kom einfaldlega að máli við mig
og ég ákvað að slá til. Ég var orðin 22 ára
á þeim tíma og fannst ég vera tilbúin til
að taka þátt í svona keppni. Það er enn
mín skoðun að stelpur eigi helst ekki að
fara í svona keppni fyrr en um og eftir
tvítugt því þá eru þær búnar að taka út
ákveðinn þroska.
Kom sigurinn þér á óvart?
Nei, í rauninni ekki. Ég leit á það þannig
að ég hefði jafnan möguleika og allar
hinar.
Var mikið annríki i kringum keppnina?
Já, en það var voðalega gaman. Við
upplifðum okkur að vissu leyti eins og
prinsessur. Við vorum í snyrtingu, hár-
greiðslu, líkamsrækt og ljósum þannig að
það var bara gaman og frábær upplifun
fyrir stelpur að fara í svona keppni.
Er erfitt að horfa til baka og sjá tískuna
sem var þarna tgangi?
Nei, það er alltaf jafn gaman að skoða
gömlu blaðaúrklippurnar og horfa á
keppnina á myndbandi og ég skelli alltaf
FEGURÐARSAMKEPPNI SUÐURNESJA 2006 • BLAÐAUKI VlKURFRÉTTA UM FEGURÐARSAMKEPPNINA I 20 ÁR
jafnmikið uppúr í hvert skipti.
Voruð þið margar í keppninni?
Við vorum sennilega ekki nema sex eða
sjö þannig að þetta var lítill en góður
hópur.
Var kvöldið eftirminnilegt?
Já, ég man þetta ennþá eins og það hafi
gerst í gær. Annað væri skrítið og ég
mun lifa á þessu alla tíð.
Hvað tók við eftir sigurinn í Fegurðar-
samkeppni Suðumesjaí
Ég og Hlín fórum í Ungfrú ísland þar
sem ég vann titilinn Ljósmyndafyrirsæta
ársins og var þess vegna boðið að taka
þátt í Ungfrú Skandinavía í Helsinki.
Það var líka æðisleg lífsreynsla þar sem
við ferðuðumst út um allt Finnland og
skemmtum okkur mjög vel.
Þú hefur ekki snúið þér að fyrirsœtu-
störfum í kjölfarið?
Nei, þetta var orðið gott eftir keppnirnar,
en er ekki líka best að hætta á toppnum?
Ég var að vinna hjá Arnarflugi á þessum
tíma og hélt því áfram. Svo leið tíminn
og ég vann í fataverslun og apóteki og
sneri mér svo loks að námi. Ég kláraði
stúdent árið 1993 og er að klára Kennara-
háskólann í vor auk þess sem ég er þegar
byrjuð að kenna.
Hvernig myndirþú lýsa reynslu þinni af
fegurðarsamkeppnumi
Þessi reynsla var ekkert nema jákvæð. Ég
myndi hikJaust styðja dóttur mína ef hún
færi út í fegurðarsamkeppni, því þetta
er ekkert til að skammast sín yfir. Það
er svo margt sem stúlkur fá að reyna í
svona sem þeim býðst ekki öðruvísi.