Víkurfréttir - 09.03.2006, Side 20
Sólveig Lilja Guðmundsdóttir sigraði í Fegurðarsamkeppni Suð-
urnesja órið 1996 og fylgdi því eftir með því að vera kjörin feg-
ursta stúlka landsins ó Broadway.
Sólveig segir að reynslan hafi verið öll hin ónægjulegasta.
Hvernig kom til að þii ákvaðst
aðfara íþessa keppni?
Systir min haffii farið í keppnina
nokkrum árum áður og vann
þar titilinn ljósmyndafyrirsæta
ársins, svo ég vissi hvað þetta
snerist um þannig að ég ákvað
bara að skella mér í þetta án
þess að hugsa mikið út í það.
Þegar Berta systir mín tók þátt
var ég of ung til að fá að fara á
keppnina, en ég og vinkona mín
lágum á glugganum og fylgd-
umst með.
Kom það þér á óvart þegar þú
sigraðir?
Svona bæði og. Ég fór auðvitað
í keppnina til að reyna að ná
langt og vonaðist til að komast í
Fegurðarsamkeppni íslands.
Var ekki mikil vinna að baki
keppninnar?
Maður má ekki taka þessu of
alvarlega en frekar einbeita sér
að því að hafa gaman af, þannig
nær maður betri árangri. Ég
segi það ekki að það var svolítil
vinna að velja kjóla og fleira, en
mér tókst að fmna þennan milli-
veg og mér fannst þetta mjög
skemmtilegt. Ég mun aldrei sjá
eftir að taka þátt í keppninni.
Hvernig var svo framlialdið hjá
þér eftir Ungfrú ísland?
Ég fór í Ungfrú Alheim og Ung-
frú Evrópu árið 1997 og það var
frábær lífsreynsla. Ég fór til Al-
baníu til að keppa í Ungfrú Evr-
ópu og það var svolítið öðruvísi.
Ég var í herbergi með spænskri
stelpu sem talaði ekki neina
ensku þannig að við gátum ekki
talast við nema með táknmáli.
Svo fór ég til Miami í keppnina
um Ungfrú Alheim sem Don-
ald Trump átti og það var rosa-
lega flott keppni og rosalega
gaman. Við fengum að spjalla
við Trump og hann var hress
og mikill sjarmör, en ég hefði
viljað bjóða honurn upp á klipp-
ingu ef ég hefði mátt það.
Hvernig varþessi upplifun?
Þetta var frábært. Eftir keppn-
irnar opnuðust ýmsar dyr fyrir
mér og ég fékk að vinna svolítið
að fyrirsætustörfum sem var
mjög gaman.
Hvað ertu að gera þessa dag-
ana?
Ég er nýflutt út til Danmerkur
með manninum mínum og
þremur börnum okkar. Þar
erurn við að gera upp hús rétt
fyrir utan Kaupmannahöfn og
erum að fara að gifta okkur
í sumar. Ég er ekki alveg viss
um hvað ég fer að gera í fram-
haldinu, en er að velta því fyrir
mér að fara í viðskiptafræði í
háskóla, en svo er ég með próf
í snyrtifræði sem ég gæti unnið
við. Það kernur því bara í ljós
hvað ég geri.
Hvað finnst þér um fegurðar-
samkeppnir?
Mér finnst að ef stelpum fmnst
þær hafa eitthvað fram að færa
sé það bara frábært að fara í
svona keppnir. Mér finnst ekk-
ert að þessurn keppnum, það
eru miklu verri hlutir í gangi
sem mætti finna að. Það er
draumur margra stúlkna að
vera drottning einn dag og það
er bara gaman að þessu.
Ætlum oð hafa
gaman í StQpQ
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir var kjörin Fegurðardrottning Suður-
nesja órið 2003 og skömmu síðar varð hún Ungfrú ísland. Ragn-
hildur starfar nú hjó RÚV við Kastljósið og ó laugardagskvöld
verður hún kynnir með samkeppnisaðila sínum, Sveppa í Strók-
unum.
Hvernig líst þér á að fara að
kynna með Sveppa?
Það er æðislegt að vera í
kringum hann, við unnum
saman í Farne og Kalla á þakinu
og hann er ótrúlega fyndinn en
það skemmtilega við þetta er
að honum finnst ég vera pínu-
lítið fyndin. Við höfurn rætt það
áður að gera eitthvað saman og
nú er komið að því.
Verða þetta ekki eintóm ftfla-
lœti efSveppi verðurað kynna?
Við munum láta keppnina ganga
hratt og vel fyrir sig og okkar
hlutverk verður fyrst og fremst
að kynna keppnina. Sveppi á ör-
ugglega ekki erfitt með að troða
inn nokkrum bröndurum svo
er aldrei að vita nema mér takist
að brydda upp á einum góðum.
Það er lykilatriði að við höfum
gaman af því sem við erum að
gera og þá held ég að salurinn
eigi eftir að skemmta sér vel“,
sagði Ragnhildur.
FEGURÐARSAWIKEPPNI SUÐURNESJA 2006 • BLAÐAUKI VÍKURFRÉTTA UM FEGURÐARSAMKEPPNINA í 20 ÁR