Víkurfréttir - 09.03.2006, Side 33
POST t= KASSINN
Aðsent efni: postur@vfis
Ragnar Örn Pétursson skrifar:
Pólskir starfsmenn í boði Flugleiða
Ql
Stefnumótun:
Vel heppnað Ibúaþing
í Grindavík
Icelandair hefur í hyggju
að ráða starfsmenn frá
Póllandi í hlaðdeild félags-
ins á Keflavík-
urflugvelli í
sumar. Þetta
kemur fram
í viðtali við
forstjóra fé-
lagsins Jón
Karl Ólafsson
í fréttabréfi
FÍA, félags íslenskra atvinnu-
flugmanna.
Jón Karl segir að ástæða þess að
félagið grípi til þessara aðgerða
sé sú að erfiðlega hefur gengið
að manna umræddar stöður
síðastliðin ár með þeim afleið-
ingum að brottförum hefur jafn-
vel seinkað vegna manneklu.
Og áfram heldur forstjórinn,
„væntingar fólks um kaup og
kjör hér á landi er með öðrum
hætti en áður. íslendingar fást
síður til að taka að sér ákveðin
störf eins og þekkist t.d. í sjáv-
arútvegi. Við verðum að mæta
þessum breytingum með ein-
hverjum hætti og tryggja það að
flugið sé á tíma”.
Þarna hittir forstjórinn naglann
á höfuðið, eitthvað þarf að gera.
En ekki datt forstjóranum það
í hug að kanna af hverju svona
erfiðlega gengur að fá fólk til
vinnu. Er það ekki vegna þess
að launin eru svo lág? Fyrir
nokkrum árum var biðröð
fólks að sækja um störf t.d. í
hlaðdeildinni og komust færri
að en vildu. Þá var atvinnu-
leysi nokkuð mikið hér á þessu
svæði og var það aðalástæðan
en ekki að fólk flykktist þangað
upp eftir vegna þess að launin
væru svo góð. Láglaunastefna
félagsins í hlaðdeild og hreinsun
hefur ekkert breyst hvort sem
um mikið eða lítið atvinnuleysi
er að ræða.
En forstjórinn segist þurfa að
mæta þessum breytingum með
einhverjum hætti. Hér er hug-
mynd handa honum. Hækkaðu
launin og þá ertu orðinn sam-
keppnisfær við atvinnumarkað-
inn á svæðinu. Byrjendalaunin
í hlaðdeildinni eru aðeins
20-30 þúsund krónum hærri
en atvinnuleysisbætur og það
eiga starfsmenn í hlaðdeild og
hreinsun ekki að sætta sig við.
Það getur verið að Pólverjarnir
geri það enda skilst mér að nú
þegar sé búið að ráða um 50
þeirra til vinnu í sumar og er
þegar verið að útbúa fyrir þá
húsnæði, hver greiðir kostnað-
inn við það?
í viðtalinu er Jón Karl spurður
um viðbrögð frá verkalýðsforyst-
unni á Suðurnesjum við þessu
og segist hann engin viðbrögð
hafa fengið. Hann leggur áherslu
á að ekki sé verið að taka neitt
frá föstum starfsmönnum.
Það vekur athygli ef ekkert
hefur heyrst frá Verkalýðs-og
sjómannafélagi Keflavíkur því
oft þarf nú minna til en svo að
eitthvað heyrist í Kristjáni Gunn-
arssyni formanni félagsins. Það
er ljóst að þessi ákvörðun flug-
félagsins að flytja inn erlent
vinnuafl til sumarstarfa mun
rýra möguleika t.d. framhald-
skólanema á aukavinnu með
námi. Þá er lag núna fyrir VSFK
að aðstoða forstjórann við að
mæta þessum breytingum.t.d.
með launahækkunum sem vænt-
anlega þýða fleiri umsóknir um
sumarstörf frá íbúum Suður-
nesja.
Ragnar Örn Pétursson
formaður Starfsmannafélags
Suðurnesja
Milli 60 og 70 manns
mættu í Grunnskóla
Grindavíkur s.l. laug-
ardag og tóku þátt í vel heppn-
uðu íbúaþingi, hinu fyrsta
sinnar tegundar í Grindavík.
Á dagskrá voru fimm mála-
flokkar, þar sem flutt voru fram-
söguerindi. Ólafur Ö. Ólafsson
bæjarstjóri fjallaði um fjármál
og rekstur bæjarins, Pétur Guð-
mundsson og Pálmi Ingólfsson
fjölluðu um íþrótta og æsku-
lýðsmál, Sigurður Ágústsson
og Pétur Bragason fjölluðu um
skipulags og byggingarmál,
Nökkvi Már Jónsson fjallaði um
öldrunar og hjúkrunarmál og
Guðmundur Pálsson fjallaði um
skólamál.
Að loknum léttum hádegisverði
var skipt í stofur þar sem hver
málaflokkur fyrir sig var til um-
fjöllunar í umræðuhópum. Fjöl-
margar tillögur og hugmyndir
komu fram og munu þær verða
lagðar fyrir bæjarstjórn til frek-
ari umfjöllunar.
Þetta fyrsta íbúaþing Grinda-
víkur tókst í alla staði mjög vel
og er það von bæjaryfirvalda að
íbúar Grindavíkur hafi kynnt
sér málefni líðandi stundar og
sett mark sitt á framtíðarstefnu
bæjarins.
REKSTRARSTJÓRI & RAFVIRKI ÓSKAST
Johan Rönning hf. óskar eftir
að ráða í tvö störf rafvirkja og
rekstrarstjóra fyrir væntanlega
verslun sína í Keflavík.
Umsóknir berist Johan Rönning hf. Sundaborg 15,104
Reykjavík fyrir 15.mars merkt „Starfsumsókn Suöurnes"
eða í netpósti á: ronning@ronning.is
Johar Rönning hf. er leiðandi þjónustufyrirtæki á sviði rafbúnaðar
og rekur jafnframt heimilistækjaverslun. Félagið rekur starfsstöðvar
iReykjavík, Akureyri og Fjarðabyggð. Fyrirtækið er framsækið og
í örum vexti. Johan Rönning hf. erþekktursem góðurog eftirsóttur
vinnustaður.
Rekstrarstjóri:
• sölu- og rekstrarstjórn
• stjórn og umsjón með
uppbyggingu starfsstöðvar
• sala og þjónusta við viðskiptavini
á sviði rafiðnar og heimilistækja
• tilboðsgerð
Hæfniskröfur:
• reynsla af stjórnunar- og
sölustörfum
• þjónustulund
• markaðshugsun
• frumkvæði
• samskiptahæfni
• reynsla af störfum í rafiðnaði
æskileg
Rafvirki:
• sala og þjónusta við viðskiptavini
á sviði rafiðnar og heimilistækja
• tilboðsgerð og tækniráðgjöf
Hæfniskröfur:
• reynsla af sölustörfum
• þjónustulund
• markaðshugsun
• frumkvæði
• samskiptahæfni
/M* johan
•/m7 RONNING
Sundaborg 15 • Reykjavík • Sími 5 200 800 • Óseyri 2 • Akureyri • Sími 4 600 800 • Nesbraut 9 • Reyðarfjörður • Sími 470 2020
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSiNGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 9. MARS 2006 33