Víkurfréttir - 09.03.2006, Síða 37
Fisfélagið
Sléttan 10 ára
Fisfélagið Sléttan fagn-
aði 10 ára afmæli sínu
um síðustu helgi en fé-
lagið hefur aðsetur á Njarð-
víkurheiði millum Bláa Lóns-
ins og Stapafells. Frábært
veður var fyrir fisflug og
mættu m.a. meðlimir úr Fisfé-
lagi Reykjavíkur í afmælið og
gaf að líta fjöldann allan af
myndarlegum loftförum.
Fisvélar eru eins til tveggja
manna loftför sem geta farið
upp í 12 - 14 þúsund feta hæð
en eru yfirleitt notaðar í lágflug
þar sem flugmennirnir njóta
útsýnisins. „Þetta eru svona
góðviðrisloftför,” sagði Jóhann
Gestur Jóhannsson, formaður
Fisfélagsins Sléttunnar, í sam-
tali við Víkurfréttir. „Við í félag-
inu höfum ræktað upp landið
hér í kringum okkur síðustu
10 ár til þess að koma í veg
fyrir uppblástur en hér voru
rofin börð sem stoppað var
í með grjóti og ræktuð upp,”
sagði Jóhann en Landgræðslan
hefur stutt dyggilega við bakið
á Sléttunni í uppgræðsluum-
svifum félagsins.
Verslunin Bling Bling í Reykjanesbœ opnaði í glœsilegu nýju hústiœði að Hafnargötu
26 síðasta föstudag. í opnutiarhófinu sýndu listakonurnar og mœðgurnar Ingveldur
Bjarnadóttir ogíris Þrastardóttir verk sín.
Bílaleiga kynnir
SENDIBÍL í FULLRI STÆRÐ TIL LEIGU
HÖFUM ALLAR STÆRÐIR AF BÍLUM
Lítil ábending vegna
leitar að E/S Goðafossi
Eftir að hafa hlustað á við-
töl við þá menn sem komið
hafa að leit að E/S Goðafossi
mundi ég eftir því að í Morg-
unblaðinu fann ég einu sinni
staðarákvörðun upp gefna
sem tengdist slysstaðnum.
Ekki man ég nú hvaða ár
þetta birtist í blaðinu en tel
þó öruggt að það hafi verið á
árunum 1950 - 1960. Þegar ég
fann þetta flaug mér að koma
staðarákvörðuninni í blöð í
Keflavík þótt ekki yrði af því.
Einnig man ég eftir stuttri
grein í blaðinu, þar sem skýrt
var frá amerískum manni sem
missti eiginkonu sína í slysinu
en hann hugðist reyna að hafa
upp á foringja kafbátsins sem
skaut Goðafoss niður.
Ef menn vilja skoða þetta
nánar geta þeir nú farið inn á
netið hjá Morgunblaðinu frá
1950 - 60.
Skúli Magnússon
Sjúkraflutningamaður
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir sjúkraflutningamanni til starfa
við bakvaktir í Grindavík.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Framhaldsnám-ðOeiningar.
• Meirapróf.
Upplýsingar um starfið veitir Gunnar M. Baldursson umsjónarmaður í síma 897-9583.
Umsóknir skulu sendar á skrifstofu stofnunarinnar að Mánagötu 9,230 Reykjanesbæ.
Laun eru samkvæmt samkomulagi ríkisins og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Einnig er hægt að sækja um starfið á heimasíðu stofnunarinnar www.hss.is eða með tölvupósti til
Hlyns Jóhannssonar starfsmannastjóra, hlynurj@hss.is.
Ixl
HEILBRIGÐISSTOFNUN
SUÐURNESJA
Umsóknarfrestur er til 25.mars 2006
SKÓLAVEGI 6 • 230 REYKJANESBÆ • WWW.HSS.IS • HSS@HSS.IS
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VÍKURFRÉTTIR . FIMMTUDAGURINN 9. MARS 2006