Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.2006, Side 46

Víkurfréttir - 09.03.2006, Side 46
KASSINN Aðsent efni: postur@vfis 1 Eysteinn Eyjólfsson skrifar: A fyrir aukna þjónustu og aukna ábyrgð Nýtt afl í bæjarmálum í Reykjanesbæ - A- listinn - hefur kveðið sér hljóðs í Reykjanesbæ. Að framboð- inu stendur fjölbreyttur hóp ur með ferskar hug- myndir um bæinn okkar. Við viljum horfa fram í tímann og móta nýjan Reykjanesbæ, nýta okkur hina fjölmörgu já- kvæðu þætti sem fyrirfinnast í bænum okkar en breyta öðru til betri vegar. Þú þarft ekki að vera inn- vígður eða innmúraður í stjórnmálaflokk Um er að ræða framboð sam- fylkingarfólks, framsóknar- manna og óflokksbundinna íbúa Reykjanesbæjar, framboð opið öllum bæjarbúum óháð því hvort viðkomandi sé inn- vígður eða innmúraður í ákveð- inn stjórnmálaflokk, framboð tilbúið að taka höndum saman nreð öllum þeim sem vilja breyta bænum okkar. Byggt á grunni félags- hyggju og jöfnuðar A-listinn er nýtt afl sem byggir á grunni jafnaðar og félagshyggju en sækir sér fordæmi og fyrir- myndir til sveitarfélaga þar sem félagshyggjuöfl ráða ríkjum. Við t.d. lítum til Reykjavíkur undir stjórn R-listans þar sem einstæðir foreldrar greiða um 110.000 kr. minna á ári í dagvist- unargjöld en einstæðir foreldrar í Reykjanesbæ og fólk í sambúð greiðir tæpum 60.000 kr. minna á ári í dagvistunargjöld í Reyka- vík en í Reykjanesbæ. Þessi munur á ekki að viðgangast í sveitarfélagi sem vil veita íbúum sínurn fullnægjandi þjónustu. Við lítum til Hafnarfjarðar þar sem Samfylkingin var brautryðj- andi í að jafna aðstöðu barna til íþróttaiðkunar með niður- greiðslum til barna. Sveitarfé- lag sem vill að fullu rísa undir sæmdarheitinu „Reykjanesbær - íþróttabær” verður að jafna aðstöðu allra barna í bænum til þátttöku í íþrótta-, menningar- og tómstundarstarfi. Við lítum til sveitarfélaga í örum vexti þar sem framsókn- armenn og samfylkingarfólk stjórna af ábyrgð eins og t.d. á Akranesi þar sem sveitarfélagið framkvæmir fyrir 500 milljónir króna á þessu ári án þess að taka ný lán (allt stefnir í að Reykja- nesbær greiði um 500 milljónir í leigu á þessu ári) og til Árborgar þar sem fjölgun íbúa hefur verið mjög rnikil síðustu ár, 7% á síð- asta ári samanborið við tæplega 4% í Reykjanesbæ. Jákvæð fyrirmynd fyrir sjálfstæðismenn Þegar að kosningar nálgast ger- ist það oft að Sjálfstæðisflokkur- inn mýkist og fer að hugsa um eitthvað annað en steinsteypu. Sjálfstæðismenn í Garðinum og Reykjavík eru farnir að tala um gjaldfrjálsar skólamáltíðir eins Samfylkingin í Reykjanesbæ hafði á stefnuskrá sinni árið 2002. Nú síðast ákvað bæjarráð Reykjanesbæjar að athuga með strætóferðir á milli Reykjanes- bæjar og Reykjavíkur en þessu komu félagshyggjumenn á Skag- anum á koppinn árið 2005 og félagshyggjumenn eins og Ey- steinn Jónsson hafa talað um lengi, nú síðast í Víkurfréttum þann 26. janúar s.l. Vissulega er jákvætt að meiri- hluti sjálfstæðismanna í bæjar- stjórn Reykjanesbæjar, eða hluti hans, virðist loksins vera að átta sig á sig að endurskoða þurfi verðskrá og tilhögun þjónustu við bæjarbúa Reykjanesbæjar og að þeir séu nú - á kosningaári - að leita til þeirra fyrirmynda sem sveitarfélög þar sem félags- hyggjuöflin ráða eru. Þolir bærinn fjögur ár í viðbót af stjórn sjálfstæð- ismanna? En þegar að til langs tíma er litið hræða sporin því að í þeim sveit- arfélögum þar sem Sjálfstæð- isflokkurinn hefur lengi verið einn við völd t.d. í Garðabæ og á Seltjarnarnesi er verð á þjón- ustu hátt, allaveganna þjónustu fyrir barnafólk. Það má því velta fyrir sér hvaða áhrif það hafi á þjónustu í Reykjanesbæ, ég segi ekki fjárhag bæjarins, ef sjálf- stæðismenn fá að ráða einir í fjögur ár í viðbót? Eysteinn Eyjólfsson formaöur Samfylkingar- itinar í Reykjatiesbœ WM RK Hafnargötu 54 - 230 Reykjanesbær - Simi 4200 800 Gunnar B. Björnsson Stcfán Páll Jónsson Sölufulltrúi S: 821 7337 stcfanp ©remax.is Sigurður Sigurbjörnsson Sölufulltrúi S: 693 2080 siggi@rcmax.is Stafnesvegur 12, Sandgerði I Laust fljótlega! Glæsilegt 220m2 steypt parhús þar af 50m2bílskúr. Vandaðar innréttingar, 4 stór svefiiherb, Baðherb. á báðum I hæðum m/baðkörum og flísalögð. Arin í stoíú. Mjög vönduð og falleg eign. Baldursgarður 1 - Keflavík Fallegt 178m2 einbýlishús með bílskúr á góðum stað í Keflavík. Mikið ótalið rými í kjallara. 1 — F ^ jt. | * ! [ — 29.900.000,- 1 22.300.000,- 24.000.000, Borgarvegur 22, Njarðvík 202m2 einbýli þar af 48m2 | bílskúr. Spmnguviðgert og málað I síðastliðið sumar, nýlegt gler og I gluggalistar, nýleg útihurð, nýlegt I þakjám, gólfefni, hurðar, lagnir, I ofriar og baðherb nýlega standsett. Hafnargata 77 - Keflavík 210m2 einbýlishús sem hægt er að skipta í tvær íbúðir ásamt bílskúr. Ránarvellir 9, Keflavík 117m2 raðhús þar af 24m2 inn- byggður bílskúr. Parket á gólfiim, mahony hurðar. 3 svefnherbergi m/parket á gólfum og skápum. Inngengt í bílskúr frá íbúð. Upphituð innkeyrsla og verönd. Heiðarhvammur 5 - Keflavík Góð 62m2,2 herbeigja íbúð á annarri hæð í góðu stigahúsi í Keflavík. Háseyla 26, Njarðvík Vel skipulagt 192m2 einbýh með innbyggðum bílskúr á einni hæð loft er upptekið. Húsið skilast fullfrágengið að utan og lóð frágengin. Að innan er það til- búið íyrir raflögn og pípulagnir. Mögul. að fa húsið lengra komið. I Hringbraut 81 - Keflavík 90m2 mikið endumýjuð 3-4 herbergja íbúð á e.h. í tvíbýli. Baðherb. nýlega standsett. Falleg ' og vel með farin íbúð. Anna Linda Bjarnadóttir hdl. lögg.faslcigna- fyrirtækja- & skipasali Sólvallagata 14, Keflavík Góð 89m2 4 herb íbúð á 2. hæð. Skiptist í anddyri, hol, eldhús, baðherb, 2-3 svefnherb, stofa tvískipt, inngengt um tvær hurðir, möguleiki á að loka vegg og fá 3ja herb. Baðherb nýlega standsett. Vallargata 15 - Sandgerði I Mikið endumýjað 206m2 einbýh, þar af 37m2 bílskúr. Baðherb., nýlega standsett. 3-4 svefnherb. Stór verönd m/heitum potti. 46 IVIKURFRÉTTIR 10.TÖLUBLAÐ I 27. ARGANGU VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.