Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.07.2006, Page 10

Víkurfréttir - 20.07.2006, Page 10
Sólveig Sigfúsdóttir er farin í fríið langa: '""‘VeigaiVar^s^^ciðu^igMjj^raiia^^^^r^morn^œ^l ingar í ráa«*p rjómatertu. f \ M| ” Wr' j ^ f "B' v m x ca " . '' T iM \ 3. ítp '5, ! ■ Æi, ekki vera ineð þetta vesen“, sagði hin eldhressa Sólveig Sigfúsdóttir þegar blaðamaður var mættur til að hitta hana í vinnunni í einn morguninn í Lyf og heilsu. Sem margir bæjarbúar kalla reyndar bara „Apótekið" með stóru A-i. Enda hefur lyfjaverslun verið rekin í þessu húsi við Tjarnar- götuna lengur en fólk á besta aldri man, lengst af undir merkjum Apóteks Keflavíkur. 44 ára starferli í Apótekinu lokið Sólveig hefur svo að segja verið hluti af sögu Apóteksins, búin að eyða megninu af starfsævinni þar innan veggja, fyrir utan þrjú ár sem hún vann í fiskvinnslu í Heimi forðum daga. Árin í Apótekinu fylla hins vegar fjóra áratugi og fjögur ár betur. En nú fær Apótekið ekki lengur að njóta starfskrafta Veigu, því hún er að láta af störfum, orðin 67 ára. Það var létt and- rúmsloftið á kaffistofunni í Lyf og heilsu á miðvikudaginn þegar Veiga og sam- starfsfólk hennar fagnaði þessum tíma- mótum með kaffi og rjómatertu. Ekki laust við að smá tregi lægi í loftinu líka, enda mikil eftirsjá í samstarfsfélaga eins og Veigu. Notalegt að finna traust fólks Að sögn Veigu hafa brottfluttir bæjar- búar, sem komið hafa heim eftir margra ára fjarveru, oft orðið nokkuð hvumsa þegar þeir hafa séð hana innan við búð- arborðið í Apótekinu. Veiga segir að sér fínnist það alltaf jafn skondið þegar fólk spyr með undrunarsvip: „Hva, er þú hérna ennþá?“ Hlutirnir í Apótekinu hafa mikið breyst á þeim árum sem Veiga hefur verið inn- anbúðar. Vöruúrvalið hefur aukist gríð ar lega í lyfjabúð- u n u m o g salan snýst ekki lengur eingöngu um magnýl, joð, bóm u 11 og annað í þeim dúr, „Umhverfið er allt miklu opnara og þjónustustan hefur aukist mikið. Við t.d. mælum blóð- þrýsting ef við- skiptavinurinn óskar. Kúnninn treystir okkur oft fyrir viðkvæmum málum og þagnarskyldan gagnvart honum er alltaf í heiðri höfð. Mér hefur alltaf fundist það notalegt að finna traust fólks og að geta aðstoðað það“, segir Veiga. Merkimiðar á safni Margir muna eftir virðulegu brúnu við- arinnréttingunni í Apóteki Keflavíkur. Hún er nú varðveitt á Lyfjafræðisafninu og fyrir nokkrum árum síðan fór Veiga ásamt Dísu, samstarfskonu sinni, að skoða hana. „Það var gaman að sjá innréttinguna aftur en á henni voru ennþá merkimiðar sem ég hafði skrifað fyrir löngu síðan. Það var dálítið skrýtin tilfinning að þekkja skriftina sína á safni“, segir Veiga og hlær. „Einhvern veginn hefur það verið þannig að ég hef á hverjum tíma verið elsti starfs- maðurinn í hópnum. Mér hefur alltaf fundist það ákveðin forréttindi að fá að starfa með mér yngra fólki. Mér hefur alltaf fundist gaman í vinnunni og ef það hefur einhvern tímann verið leiðinlegt, þá er ég fyrir löngu búinn að gleyma því“, bætir hún við. Hlakkar til áranna framundan Veiga var að fara í sumarfrí um helgina en fjölskyldan býr svo vel að eiga sinn sælureit í sumarbústað á Snæfellsnesinu. En hvernig finnst henni að vera að fara í fríið langa? „Ég kvíði því ekki,. Ég er við hestaheilsu, á yndislegan mann, börn og barnabörn og vanhagar því ekki um neitt. Nú hefst nýr og skemmtilegur kafli í lífinu og ég hlakka til áranna framundan,'1 sagði Veiga að lokum. Texti og myndir: Ellert Grétarsson VÍKURFRÉTTiR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJU-STU FRÉTTIR DAGLEGA! 10 | VÍKURFRÉTTIR I 29. TÖLUBLAÐ ; 27. ÁRGANGUR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.