Víkurfréttir - 24.08.2006, Síða 2
Alþingiskosningar:
^smntM
mMVtw
Netkosn-
ing hafín á
Ljósalaginu
Ljósanæturlögin 2006
eru nú aðgengileg
til hlustunar á vef
Ljósanætur, www.ljosanott.
is. Netkosning er einnig
hafin og stendur hún yfir
til 25. ágúst.
Auk þess að hlusta og kjósa
er hægt að lesa nánar um
flytjendur og höfunda og
hvað þeir hafa að segja um
lögin
Diskur með lögunum tíu
sem valin voru til úrslita er
væntanlegur í dreifingu á
næstu dögum. Það er Geim-
steinn sem annast fram-
leiðslu hans.
mmmm
SOLARHRINCSVAKT
8982222
□4104000
Landsbankinn
MUNDI
Kallastþettaaðhvalir
séu„uppstökkir“...?
Q
BÖÐVAR ÆTLAR EKKI í FRAMBOÐ
Böðvar Jónsson, for-
maður bæjarráðs
Reykjanesbæjar,
ætlar ekki að gefa kost á
sér á framboðslista Sjáif-
stæðisflokksins fyrir Al-
þingskosningarnar næsta
vor. Böðvar hefur að und-
anförnu verið orðaður
við hugsanlegt framboð en tekur af öll
tvímæli með orðsendingu sem hann sendi
frá sér í byrjun vikunnar.
Böðvar segir ástæðurnar vera nokkrar en
þyngst vegi þó þau verkefni og störf á vett-
vangi sveitarstjórnarmála sem hann hefur
í Reykjanesbæ. Þeim störfum telji hann sig
ekki geta sinnt af sömu alúð ef hann tæki
sæti á Alþingi.
„Ég er afar þakklátur fyrir þá hvatningu og
stuðningsyfirlýsingar sem ég hef fengið frá
flestum ykkar og met þær mikils.
Við skulum vinna saman að góðum fram-
gangi Sjálfstæðisflokksins í næstu kosn-
ingum. Niðurstaða okkar í Suðurkjördæmi
síðasta vor geíúr góða von um framhaldið.
Ég mun leggja mitt af mörkum í þeirri
baráttu þrátt fyrir að vera ekki í framboðs-
hópnum." segir Böðvar í orðsendingunni
sem hann sendi flokkssystkinum sínum á
mánudaginn.
Hrefna í loftköstum!
Að sjá stökkvandi hrefnur er nokkuð
óvenjulegt en þær hafa tekið nokkrar
stökksýningar fyrir yfir sig hrifna
ferðamenn á Moby Dick.
Ljósmynd: Trods Jacobsen
95
- og fleiri ferðamenn íferðir með Moby Dick
Að sögn Helgu Ingimundardóttur,
rekstraraðila bátsins, eykst ásókn
ferðamanna í hvalaskoðunarferðir
með ári hverju. Og það spillir ekki fyrir
að hvalir sjást nærfellt í hverri einustu
ferð, sem hlýtur jú að tcljast gott til af-
spurnar fyrir sívaxandi ferðaþjónustu-
grein.
„Það er alveg með ólíkindum hvað hvalirnir
halda sig alltaf nánast á sarna blettinum
þarna í Garðsjó. Það er nánast hægt að
ganga að því vísu að þeir séu á sínum stað,
enda hefur sést til þeirra í nánast hverri ein-
ustu ferð í allt sumar. I aðeins þremur eða
fjórum tilvikum sást illa til þeirra hvala sem
voru, segir Helga Ingimundardóttir.
Þær hvalategundir sem mest hafa sést í
sumar eru hrefna og hníðingur, sem er al-
gengasta höfrungategundin hér við land.
Einnig er hnúfubakur nokkuð algengur, að
sögn Helgu.
„Það sem kemur okkur á óvart núna er að
við höfum verið að sjá stökkvandi hrefnur,
sem er mjög óvenjulegt. Það er algengara
að sjá hnúfubakinn stökkva og við höfum
séð hann taka góðar syrpur,“ segir Helga.
Rekstur Moby Dick hefur notið góðs af veru
bandaríska hersins hér á landi því hvalaskoð-
unarferðir hafa verið afar vinsælar á meðal
Varnarliðsmanna. Helga segir að þrátt fyrir
rnikla fækkun þeirra haft reksturinn verið
svipaður á milli ára. Skýringuna megi leita
í fjölgun ferðamanna á svæðinu, sem eru
mjög jákvæðar fréttir.
„Við búum líka svo vel geta boðið áhuga-
verðan pakka sem samanstendur af hvala-
skoðunarferð og ferð í Bláa lónið en þær
ferðir hafa verið mjög vinsælar í sumar.
Þrátt fyrir að herinn sé að fara er framtíðin
björt og sóknarfærin mörg. í því sambandi
bind ég miklar vonir við orkuverið á Reykja-
nesi og Víkingaheiminn“, sagði Helga Ingi-
mundardóttir.
Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick hefur
haft heimahöfn í Keflavík síðan 1994 og
reksturinn gengið vel.
Islendingur vinsæll áningarstaður
Heimsóknir að víkinga-
skipinu fslendingi
sem stendur í túnfæti
Stekkjarkots, hefur farið fram
úr öllum væntingum í sumar.
Að meðaltali hafa komið níu-
tíu til eitt hundrað manns á
dag í sumar, eru það gestir
sem koina einungis á milli kl:
13:00 til 17:00, þegar starfs-
nienn eru til að taka á móti
ferðamönnum á staðnum.
Gunnar Marel Eggertsson,
skipstjóri fslendings, segir að
ef reiknað er með lágmarks að-
sókn er víst að yftr átta þúsund
manns hafi heimsótt Islend-
ing/Stekkjarkot undanfarna
þrjá mánuði á milli kl. 13:00
og 17:00.
Af þessu má ætla að töluvert
yfir tíu þúsund rnanns hafi
komið til að sjá og skoða Islend-
ing/Stekkjarkot frá vordögum.
Komið hefur í ljós að þetta er
rnjög vinsæll áningarstaður
fyrir ferðamanninn til að stansa
á og taka myndir áður en
haldið er í flug.
Einnig er mikið um að fólk
sem er á leið til landsins kemur
við á þessum stað. Staðan er
þannig í dag að það er stans-
laus straumur ferðamanna við
Islending/Stekkjarkot.
2 I VfKURFRÉTTIR I 34.TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
VlKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • IESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!