Víkurfréttir - 24.08.2006, Qupperneq 6
Tvöföldun Reykjanesbrautar:
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri Fríhafn-
arinnar ehf.
Hlynur Sigurðsson
hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri
Fríhafnarinnar ehf. og tekur
við starfinu
1. september
næstkomandi.
Hann lauk
meistaraprófi
í rekstrar-
verkfræði frá
Háskólanum
í Álaborg á árinu 2002 og
hefur verið innkaupastjóri
Fríhafnarinnar frá 2003.
Hlynur hefur jafnframt
starfað sem afleysingakenn-
ari i stjórnun og rekstri
fyrirtækja við Meistaraskól-
ann í Reykjavík. Hann er
kvæntur Helgu Volu Gunn-
arsdóttur félagsfræðingi og
eiga þau þrjú börn.
Sturla Eðvarðsson, sem verið
hefur framkvæmdastjóri
Fríhafnarinnar undanfarin
fjögur ár, hefur ráðið sig
til starfa sem framkvæmda-
stjóri Samkaupa. Honum
eru þökkuð vel unnin störf
með óskum um gott gengi á
nýjum vettvangi.
Fögnum
Ljósanótt
30% afsláttur
af öllum vörum frá 31. ágúst - 2. se
Sjónmælingar - Tímapantanir 421 3
Optical Studio
KEFLAVÍK I SÍMI 421 3811
STEFNA Á AD UÚKA FRAM-
KVÆMDUM Á UNDAN ÁÆTLUN
Seinni áfangi við tvöföldun Reykjanes-
brautar gengur vel og bendir allt til
þess að framkvæmdum muni ljúka
mun fyrr heldur en áætluð verklok segja
til um. Þetta segir Ólafur Þór Kjartans-
son, framkvæmdastjóri Jarðvéla ehf, sem
er verktaki framkvæmdanna, ásamt Eykt.
Hjá Jarðvélum eru menn ekki alls óvanir
þegar Reykjanesbrautin er annars vegar, því
fyrirtækið sá einnig um tvöföldun hennar í
fyrri áfanga, ásamt Háfelli og Eykt.
Að sögn Ólafs Þórs mega vegfarendur búast
við að sjá meiri kraft í framkvæmdunum
þegar nær dregur næsta vori en þá er ráð-
gert að setja aukin tækjakost í verkið þegar
losnar um hann úr öðrum verkefnum sem
klárast og segir Ólafur að stærsti hluti tækja-
kosts og mannafla fyrirtækisins verði þá
kominn á Suðurnesin.
Ólafur segir verkið á áætlun og að menn
hafi fullan hug á að ljúka framkvæmdunum
við tvöfölduna mun fyrr en áætluð verklok
gera ráð fyrir, sem er 1. júní 2008. Ólafur
vildi ekki gefa upp neinar tímasetningar þar
að lútandi en gat þess að ljúki framkvæmd-
unum innan ákveðins tímaramma, fái verk-
takinn auka þóknun eða flýtifé og að því
væri stefnt.
Tvöföldunin í seinni áfanga nær yfir tæplega
13 km langan vegarkafla frá Strandarheiði
að Njarðvík. Samhliða tvöfölduninni er gert
ráð fyrir átta brúm á þessum kafla.
VÍKURFRÉTTIR I 34. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á IMETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!