Víkurfréttir - 24.08.2006, Side 14
Viðskipti og atvinnulíf:
Og Vodafone eflir CSM
kerfið fyrir Ljósanótt
Og Vodafone hefur stækkað GSM kerfi sitt fyrir Ljósanótt.
Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá
GSM notendum þar sem gera má ráð fyrir fjölda gesta
í Reykjanesbæ þá daga sem hátíðin stendur yfir. Og Vodafone
hefur lagt mikla áherslu á bætt GSM samband víða um land
í sumar, einkum í kringum stórviðburði, svo sem tónleika og
útihátíðir.
Skipstjóri óskast
Skipstjóra vatnar á nýja
Kleópötru frá Suðurnesjum.
Upplýsingar í síma 861 2319.
Atvinna
Óskum eftir að ráða sölumann til starfa
frá kl. 13 -18 og annan hvern laugardag.
Upplýsingar í síma 421 8585
eða ó staðnum
SKÖBÚÐIN
Hafnargötu 35-s. 421 8585
Methagnaður Sparisjóðsins
H
agnaður Sparisjóðs-
ins í Keflavík á fyrstu
sex mánuðum ársins
nam tæpum 1.219 m. kr. fyrir
skatta. Hagnaður eftir skatta
var tæplega 1.036 m.kr. sem
er aukning upp á 106,6% frá
sama tímabili árið áður. Þetta
er mesti hagnaður Sparisjóðs-
ins í Keflavík á einum árshelm-
ingi og er arðsemi eiginfjár
55% sem er ein sú mesta frá
stofnun sjóðsins.
Helstu niðurstöður úr rekstri og
efnahag:
Hagnaður Sparisjóðsins í Kefla-
vík fyrir fyrstu sex mánuði
ársins 2006 nam 1.218,8 m.kr.
króna fyrir skatta samanborið
við 610,1 m. kr. á sama tímabili
2005. Hagnaður eftir skatta nam
1.035,8 m. kr. samanborið við
501,4 m. kr. á sama tímabili árið
Grunnskolinn i Sandgerði
TÁKNMÁLSTÚLKUR
áður. Þá var arðsemi eigin fjár
55% en var 37,4% fyrir sama
tímabil 2005.
Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu
á tímabilinu 2.772,6 m.kr. en
það er 124% hækkun frá sama
tímabili árið áður. Vaxtagjöld
hækkuðu um 214% á tímabil-
inu og námu 2.379,2 m.kr en
hreinar vaxtatekjur námu 393,4
m.kr. samanborið við 480,0
m.kr. á sama tímabili árið áður.
Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxta-
tekjur í hlutfalli af meðalstöðu
fjármagns var 2,3% á tímabil-
inu en 3,52% á sama tímabili
árið áður. Aðrar rekstrartekjur
jukust um 749,7 m. kr. og voru
1.467,5 m.kr. á tímabilinu.
Munar þar mest um tekjur af
hlutabréfum og öðrum eignar-
hlutum en aukningin þar er upp
á 430,9 m.kr. frá sama tímabili
árið áður.
Önnur rekstrargjöld námu alls
520,0 m.kr. og jukust um 19,3%
frá sama tímabili árið áður.
Laun og launatengd gjöld jukust
um 15,6% og annar almennur
rekstrarkostnaður jókst um
24,8%. Kostnaðarhlutfall á tíma-
bilinu var 27,9% á móti 36,4%
á sama tíma árið áður. Framlag
í afskriftareikning útlána var
122,1 m.kr. en var 151,7 m.kr.
á sama tímabili árið áður. Sem
hlutfall af niðurstöðu efnahags-
reiknings var framlagið 0,32%
en var 0,48% á sama tímabili
árið áður.
Heildarinnlán í Sparisjóðnum
ásamt lántöku námu í lok júní
29.415,8 m.kr. og er aukningin
því 18,0% á tímabilinu. Útlán
Sparisjóðsins ásamt markaðs-
skuldabréfum námu 30.353
m.kr. í lok júní 2006 og höfðu
aukist um 4.736,0 m.kr. eða um
18,5% á fyrstu 6 mánuðum árs-
ins.
í lok tímabilsins var niðurstöðu-
tala efnahagsreiknings 37.963
m.kr. og hafði hún hækkað um
6.186 m.kr. eða 19,5% á tímabil-
inu. Eigið fé Sparisjóðsins í lok
júní nam 4.662 m.kr. og hefur
eigið fé aukist um 898,6 m.kr.
eða 23,9%. Eiginfjárhlutfall
Sparisjóðsins samkvæmt CAD-
reglum er 10,45% en var 11,97%
á sama tima árið áður.
Áætlanir benda til að afkoman
verði góð á árinu 2006. I lok
tímabilsins var stofnfé 600 millj-
ónir og voru stofnfjáraðilar 556
talsins.
Þann 5. mars keypti Sparisjóð-
urinn rekstur og eignir Lands-
banka Islands í Sandgerði og
skuldir sem voru yfirteknar
við kaupin eru hluti af árshluta-
uppgjöri 30. júní 2006. Með
kaupunum er Sparisjóðurinn
kominn með afgreiðslur í alla
þéttbýliskjarna á Suðurnesjum.
Afgreiðslurnar eru því orðnar 6
talsins og eru staðsettar í Kefla-
vík, Njarðvík, Garði, Grindavík,
Vogum og Sandgerði. Höfuð-
stöðvar Sparisjóðsins eru í Kefla-
vík og þar er Viðskiptastofa
SPKEF einnig til húsa og eru
starfsmenn Sparisjóðsins um
91 talsins.
Sandgerðisbær óskar eftir táknmálstúlki til starfa
við Grunnskólann í Sandgerði. Um er að ræða hvort
sem er fullt starf eða hlutastarf.
• •
IAMS
COMPANY
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Þ. Kristjánsson skólafulltrúi,
Vörðunni, Miðnestorgi I, Sandgerði, sími 420 7555 og 899 2739.
SANDGERÐISBÆR
Hef hafið sölu á IAMS
HÁGÆÐA KATTAFÓÐRI
Gott verð
Nafnamerki á dýr
- Áletrað báðum megin og sent heim -
Staðarhraun 30a,Grindavík 846-3968
Vl'KURFRÉTTiR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
14 IVÍKURFRÉTTIR ; 34. TÖLUBLAÐ : 27. ÁRGANGUR