Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.08.2006, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 24.08.2006, Blaðsíða 20
Knattspyrnudeild UMFN auglýsir eftir þjálfurum fyrir yngri flokka Þjálfaramenntun og reynsla er æskileg Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar UMFN auglýsir eftir þjálfurum fyrir 3.til 7.flokk pilta. Knattspyrnudeild UMFN er með metnaðarfullt starf þar sem fagmennska og forvarnir eru höfð að leiðarljósi. Boðið er uppá góða æfingaaðstöðu og gott vinnuumhverfi. Áhugasamir eru beðnir að senda inn umsóknir fyrir 31.ágúst á netfang deildarinnar njardvikfc@umfn.is. Upplýsingar veitir Leifur Gunnlaugsson framkvæmdastjóri deildarinnar í síma 862 6905. VEFGALLERY lil.LKRT GRÉTARSSON www. eldho rn. is/elg a Aðsent: mWm Þjálfaramál íVogum ogfleira: Enginn vest hvað átt hefur fýrr en misst hefur Itölublaði Víkurfrétta þann 10. ágúst síðastliðinn birt- ist góð grein, eftir Lúðvík Bárðarson f.v. formann UMFÞ í Vogum, um okkar frábæra sundþjálfara Maríu Jónu og um mál sem henni tengjast. Að mörgu leiti tökum við undir það sem þar kemur fram, við eigum tvær dætur sem báðar hafa æft sund hjá Maríu Jónu, sú eldri æfði í eitt og hálft ár en sú yngri hefur æft í fimm ár og er enn að. Við urðum strax vör við það, að María jóna var að gera góða hluti, og árangurinn lét ekki á sér standa eins tókuni við eftir samheldninni sem virtist ríkja innan sunddeildar- innar og voru foreldrar mjög Tjarnargötu 12* Póstfang 230 • S: 42 X 6700 • Fax:421 4667 • reykjanesbaer@reykjancsbaer.is LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJANESBÆ Reykjanesbær auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar: Starfsmaður í mötuneyti kennara og fleiri verkefni í Njarðvíkurskóla, 70% staða. Þroskaþjálfi og stuðningur í Akurskóla, 100% og 75% stöður. Ef ekki fæst þroskaþjálfi til starfa verða ráðnir starfsmenn í stuðning. Starfsfólk skóla í grunnskólum á vegum Frístundaskóla, 50% stöður. Sérkennari (mið- og unglingastig) í Holtaskóla, 100% staða. Leikskólakennarar og leiðbeinendur. í boði eru bæði hluta- og heilsdagsstöður í leikskólum Reykjanesbæjar. Starfsmaður við íþróttamiðstöðina í Njarðvík, um 50% staða við baðvörslu kvenna ofl. verkefni. Fáist ekki leik- eða grunnskólakennarar til starfa í leik- og grunnskólum verða ráðnir leiðbeinendur. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru skv. kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 7. september nk. og skulu umsóknir sendar starfsmannaþjónustu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, merktar viðkomandi starfi. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is og hjá forstöðumönnum viðkomandi stofnana. Starfsþróunarstjóri. virkir frá byrjun. Árangurinn sem hún hefur náð með þessa krakka er frábær, og ekki hefur fallið skuggi á okkar samstarf eða kynni sem við höfum átt, síðustu árin. Því kom það okkur mjög á óvart, þegar við fréttum það að hún hyggðist hætta þjálfun og leiðinlegt hvernig það allt saman þróaðist. En svo virð- ist sem að einhver ágreiningur hafi orðið um hennar störf, og að ákveðnir aðilar hafi viljað hana út úr þessu starfi. Það sem við sem foreldrar erum helst að gagnrýna, er það hvernig var staðið að þessum málurn öllum saman. Að okkar mati stóð (og stendur) okkar sund- deild í flokki með 10-15 bestu sunddeilda á landinu á þessum tíma og það er okkur óskiljan- legt að þegar sem best gengur, skuli öfund og miður leiðinleg atburðarrás fara af stað,(þeir taka það til sín sem eiga það.) Þá má ekki heldur gleyma því að María Jóna reif upp allt upp- byggingarstarf í Þrótti og sinnti á stundum mun meiru en flestir hefðu látið bjóða sér. Við viljum einnig minnast á frábært for- eldrastarf sem með elju og dugnaði, hefur haldið vel utan um öli mál, þ.m.t. fjáröflun og öllu sem því tengist með von um að það haldi áfram með nýjum þjálfara.Að lokum viljum við bjóða nýjan þjálfara velkom- inn til starfa, til þess að taka við því góða búi sem eru þessir frábæru krakkar sem hafa náð svona langt. Elsku Mæja okkar takk fyrir frábært starf og góð kynni, og vegni þér sem best í framtíðinni. Kærar þakkir fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Virðingarfyllst, Kári Asgrímsson og Helga Rut Guðnadóttir, Vogum. VIKURFRETTIR i 33.TOLUBLAÐ I 27. ARGANGUR VÍKURFRETTiR Á NETÍNU vww.vf.is • LESTU NVJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.