Víkurfréttir - 24.08.2006, Blaðsíða 22
Mannlíf:
Jóga og Fit-pilates
Jóganámskeiðin byrja 4. sept. n.k.
Nýtt!
Fit-pilates byrjar 12. sept. n.k.
Kennarar í vetur:
Eygló Alexandersdóttir
og Guðrún Gunnarsdóttir.
Nánari upplýsingar og innritun hjá Eygló í síma 864 1124.
Ath. Ljósanótt.
Laugardaginn 2. sept. opinn jógatími kl. 9.
Kl. 10-12 opið hús og kynning á jóga og Fit-pilates.
Eygló Alexandersdóttir, jógakennari,
Iðavöilum 9, 864 1124.
Fimleikadeild
Keflavíkur
Sími á innritunartíma
421 3044.
Stjórnin
Innritun í dag kl. 17:00 -
Eldri iðkendur
Nýir iðkendur
Krakkahópar
Strákahópar
20:00 í K-húsinu.
a
20 ára afmælisfagn-
aður Glaumbergs
Til stendur að fagna
þeim tímamótum að á
þessu ári eru liðin 20 ár
frá því að veitinga- og skemmti-
staðurinn Glaumberg opnaði
að Vesturbraut 17 í Keflavík.
Glaumberg opnaði 14. mars
1986 og var einn aðal veitinga-
og skemmtistaðurinn á Suður-
nesjum á þessum tíma. Glaum-
berg var rekið af sömu eig-
endum í rúm fimm ár og á þeim
tíma komu fram í húsinu fjöl-
margar hljómsveitir og skemmti-
kraftar og m.a. voru settar upp
tvær stórsýningar. Sú fyrri hét
„Tekið á loft“ þar sem fram
komu helstu skemmtikraftar
frá Suðurnesjum og seinni sýn-
ingin var til minningar um Vil-
hjálm Vilhjálmsson en þar söng
m.a. Ellý Vilhjálms og Björgvin
Halldórsson. Á þriðja þúsund
gestir sóttu hvora sýningu.
Undirritaður, ásamt Val Ár-
manni Gunnarssyni hefur
tekið saman lista yflr alla starfs-
menn sem unnu í Glaumbergi
á þessum tíma og er fjöldi
þeirra um 110 manns. Til að
fagna þessum tímamótum og
að gamlir samstarfsmenn og
makar hittist þá ætlum við að
mæla okkur mót í Stapanum
laugardaginn 30. september kl.
18.00. Þar verður boðið upp á
fordrykk og kvöldverð og er
miðaverð kr. 3.000 pr. mann.
Seinna um kvöldið munum við
fá í heimsókn nokkra af þeim
söngvurum og hljómsveitum
sem skemmtu í Glaumbergi.
Síðan verður dansleikur fram
á rauða nótt, þar sem hljóm-
sveitin Sambandið/Saga Klass
leikur fyrir dansi.
Þeir sem hyggjast koma eru vin-
samlega beðnir um að tilkynna
þátttöku á eftirfarandi netföng:
ragnar.petursson@reykjanes-
baer.is eða valarm@its.is
sem fyrst, eða í síðasta lagi fyrir
8. september.
Með Glaumbergskveðju,
Ragnar Orn Pétursson
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Virðing, samvinna, árangur
Áfangar í boði í Öldungadeild og meistaraskóla,
haustönn 2006 - ný önn, ný tækifæri
kl. 18:00-20:00 Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur
STÆ 193 - stærðfræði ENS 102 - enska DAN 102 - danska ISL 102 - íslenska
STÆ 202 - stærðfræði ENS 202-enska MHL 103 - myndvinnsla ÍSL 202 - íslenska
STÆ 363 - stærðfræði ENS 303 - enska SAG 423 - galdrasaga (SL 212 - íslenska
STÆ 413 - tölfræði ENS 503 - enska UPP 103- uppeldisfræði ÍSL 403 - íslenska
MTB 103* MSV 102 / MÞF 101* SPÆ 103 - spænska
kl. 20:00-22:00 Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur
SPÆ 303 - spænska UTN 103 - uppl. - tölvur DAN 202 - danska ÞÝS 103 - þýska
SÁL 103 - sálfræði SAG 103 - saga FÉL 203 - félagsfræði NÁT 103 - líffræði
NÆR 103 - næringarfræði BÓK 103 - bókfærsa NÁT 123 - eðlis- og efnafr.
TEH 103/GRT 102-203 MGV 102 /MVB 101*
‘Meistaraskóli - faggreinar húsasmíða
Innritun í Öldungadeild og meistaraskóla verður í anddyri skólans dagana 24. og 25. ágúst kl. 16-19, og verður þá hægt að ræða við námsráðgjafa og fulltrúa nemenda úr öldungaráði.
Nú er einnig mögulegt að innrita sig með tölvupósti en þá fylla nemendur út innritunareyðublað öldungadeildar og senda það á elsak@fss.is og verður umsóknin tekin gild um leið og
greiðsla berst á reikning skólans nr. 1109-26-6612 kt. 661176 0169.
Á heimasíðu skólans www.fss.is er hægt að skoða áfangalýsingar og ná í umsóknareyðublað.
Innritunargjald í Öldungadeild er 15 þúsund fyrir eitt fag og 21 þúsund fyrir tvö fög og fleiri. Umsækjendur fá endurgreitt aðeins ef áfangi fellur niður.
Sunnudaginn 27. ágúst kl. 18:00 verður fundur á sal skólans þar sem tilkynnt verður hvaða áfangar verða kenndir en það fer eftir aðsókn, því er um að gera að skrá sig tímanlega.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 28. ágúst.
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
22 IVÍKURFRÉTTIR : 33.TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR