Víkurfréttir - 24.08.2006, Side 25
nýjustu fréttir
alla daga avf.is
'rLAVÍK figl
MAGNAÐURIVIÝVETNINGUR
Mý vetn ing ur inn
Baldur Sigurðsson af-
greiddi topplið FH sl.
sunnudag þegar Keflvíkingar
höfðu 2-1 sigur í viðureign
liðanna. Baldur gerði bæði
mörk Keflavíkur í leiknum
og sigurmarkið á lokamínútu
leiksins og ætlaði allt um koll
að keyra í fagnaðarlátunum.
Framundan eru tveir erfiðir
leikir hjá Keflvíkingum, fyrst
í kvöld er útileikur gegn Skaga-
mönnum í Landsbankadeild-
inni kl. 18:00 og á sunnudag
mætast Keflavík og Víkingur
í undanúrslitum VISA bikar-
keppninnar á Laugardalsvelli.
„Það verður mikil barátta í
kvöld og má jafnvel búast við
meiri baráttu en þegar liðin
mættust síðast á Skaganum,"
sagði Baldur en þegar liðin
mættust í VISA bikarnum
á Skipaskaga dró sá leikur
nokkurn dilk á eftir sér þar sem
leikmenn úr báðum liðum voru
úrskurðaðir í bann. „Ef ég fæ
eitt gult spjald í viðbót þýðir
það tveggja leikja bann því ég
er nú þegar með tvö gul spjöld.
Við hugsum samt lítið um það
sem hefur gerst heldur spilum
bara okkar leik,“ sagði Baldur
en leikmannahópur Keflavíkur
er fremur lítill og má ekki við
miklum skakkaföllum. „Við
spilum mikið á sömum mönn-
unum en það verður bara að
taka einn leik í einu. Mér finnst
raunhæfara að stefna að því að
verða Bikarmeistarar heldur en
íslandsmeistarar en það er allt
hægt í þessu og vonandi missa
FH-ingar bara flugið í deildinni
eftir ósigurinn gegn okkur,“
sagði Baldur en hann segir að
sigurmarkið gegn FH á sunnu-
dag sé eitt sætasta markið sem
hann hefur gert. „Markið var
kannski ekki það glæsilegasta
en það var í mikilvægari kant-
inum,“ sagði Baldur sem verður
í eldlínunni í kvöld með Keflvík-
ingum á Akranesi.
Irmritun verðurt K-husinu
mánudaginn 28. ágúst frá 17:00 - 21:00.
m m ^
IMimmmæakélIn
Körfuboltaskóli verður i Heiðarskóla fyrir alta í
minnibolta laugardaginn 26. ágúst.
■í*wp ájggfiSyfeþ,
Dagskránni ásamt stundatöflum verður
dreift ískólana.
Barna- og unglingaráð
Körfuknattleiksdeilda Keflavíkur
Ósigur gegn botnliðinu
Grindvíkingar eru
komnir á hættusvæði
í Landsbankadeild
karla í knattspyrnu eftir 2-1
ósigurgegnÍBV íVestmanna-
eyjum síðasta sunnudag. Ey-
steinn Hauksson gerði mark
Grindvíkinga sem hafa nú
17 stig í 7. sæti deildarinnar.
Grindvíkingar taka á móti
Víkingum á Grindavíkurvelli
í kvöld og hefst Ieikurinn kl.
18:00.
Guðmundur Andri Bjarna-
son, leikmaður Grindavíkur,
segir að drápseðlið vanti
í liðið og það sé hlutur sem
verði að laga núna á lokasprett-
inum. „Við þekkjum þetta
alveg," svaraði Guðmundur
aðspurður um stöðu liðsins
í deildinni. „Leikurinn gegn
Víking í kvöld er einn mikil-
vægasti leikurinn okkar í
sumar og við verðum að ná
sigri og koma okkur í þolan-
lega stöðu í deildinni," sagði
Guðmundur sem sagði að alla
baráttu og allan vilja hefði
vantað í Grindavíkurliðið í
Vestmannaeyjum. „Við erum
með lið sem á heima í þess-
ari deild og við verðum að
klára okkar leiki betur. Það
verða allir okkar menn klárir
í slaginn í kvöld,“ sagði Guð-
mundur að lokum.
www. vf. is/ithrottir
jbo@vf.is
ÍÞRÓTTASÍÐUR VlKURFRÉTTA ERU í BOÐ! LANDSBANKANS
Sandgerðingar berjast um 3. sæti
eynismenn taka á móti Selfyssingum
í 2. deild karla í knattspyrnu karla
i lcvöld. Leikurinn hefst kl. 18:30 á
Sandgerðisvelli en liðin tvö berjast hart um
sæti í 1. deild að ári og þurfa bæði nauð-
synlega á sigri að halda. Reynismenn eru í
3. sæti deildarinnar með 29 stig en Selfyss-
ingar eru í 4. sæti með 26 stig þegar níu stig
eru eftir í pottinum.
„Við leggjum vitaskuld upp með sigur í
leiknum og þetta verður mikil barátta,“ sagði
varnarmaðurinn Hjörtur Fjeldsted í sam-
tali við Víkurfréttir. Liðin skildu jöfn, 0-0,
á Selfossi fyrr í sumar þar sem þremur leik-
mönnum var vísað af leikvelli í baráttuslag.
„Þetta er mikilvægur leikur fyrir bæði lið og
Selfyssingar eru fastir fyrir. Við þurfum að
spila okkar bolta og vera með einbeitninguna
í lag. Við erum með betra fótboltalið en þeir
og það er mikill hugur í mönnum til þess
að komast í 1. deildina," sagði Hjörtur en
þrjú lið úr 2. deild komast í 1. deild að ári.
„Okkur var spáð 8. sæti í deildinni en við
höfum blásið þeirri spá á brott,“ sagði Hjörtur
að lokum. Njarðvík og Fjarðarbyggð hafa
þegar tryggt sér sæti í 1. deild og því verður
spennandi að sjá hvaða lið nær síðasta sætinu.
Fyrirtækið Sjávarmál í Sandgerði býður öllum
frítt á leik Reynis og Selfyssinga í dag svo
Suðurnesjamenn ættu að Qölmenna á völlinn.
Á laugardag mæta Njarðvíkingar svo Sindra á
Sindravelli kl. 14:00.
M![<»j:ia;«iii:iii3;{nifcwi>m«
25