Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.10.2006, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 12.10.2006, Blaðsíða 24
Óvenju mikið líf hlaupið í Gunnuhver Miklar breytingar hafa orðið á hverasvæði á Reykjanesi síðustu mánuði. Líklega eru það framkvæmdir við Reykjanes- virkjun sem valda því. Gufuvirkni í Gunnuhver er til að mynda meiri en verið hefur í um fjóra áratugi. Hverinn er meðal vinsælustu ferða- mannastaða á Reykjanesi. Ríkisút- varpið greinir frá þcssu. Jarðfræðingar íslenskra orkurann- sókna tóku fyrst eftir þessum breyt- ingum í júní í sumar og hafa fylgst með hvernum síðan. í mati á umhverf- isáhrifum jarðhitanýtingar á Reykja- nesi sem gerð var fyrir Hitaveitu Suð- urnesja sumarið 2002 segir að fram- kvæmdin á svæðinu hafi ekki sjáanleg áhrif á Gunnuhver en að óljóst sé hvort dæling jarðhita úr jörðu breyti virkni hveranna. 1 sömu skýrslu segir að á bilinu 120-140.000 ferðamenn komi á Reykjanes árlega og að mikil- vægustu staðirnir á svæðinu séu Vala- hnúkar, Valbjargagjá og Gunnuhver. REYKJANESBÆR Fræðslusvið Tjarnargötu 12 • Póstfang 230 • S:421 6700 • Fax: 421 4667 • rcykjanesbaer@reykjanesbacr.is LAUS STÖRF HJÁ REYKJANESBÆ Heiðarsel og Frístundaskólinn Leikskólinn Heiðarsel óskar að ráða leikskólakennara eða leiðbeinanda sem fyrst í 100% starf. Frístundaskóli Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða starfsmenn í 50% stöður eftir hádegi. Leitað er eftir áhugasömum starfsmönnum, sem eru reiðubúnir að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf. Reykjanesbær býður starfsfólki sínu upp á öryggi, gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Sigurðardóttir leikskólastjóri Heiðarsels, í síma 421 1554 og Helga Jóhanna Oddsdóttir starfsþróunarstjóri Reykjanesbæjar í sima 421 6700. Umsóknir berist starfsmannaþjónustu Reykjanesþæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ eða á rafrænu formi á heimasiðu Reykjanesbæjar fyrir 26. október nk., merktar viðkomandi starfi. Starfsþróunarstjóri. ••• reykjanesbaer.is Laugardagskaffl Munið laugardagskaffi Samfylkingarinnar á hverjum laugardegi ívetur á Víkinni, Hafnargötu 80, kl. 10:30 - 12:00. Kaffi og meðlæti í boði ásamt spjaili um landsins gagn og nauðsynjar. Allir velkomnir. Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Samfylkingin □ Aðgengi að bæjarfuiltrúum: Framsókn eykur að- gengið að kjörnum bæjarfulltrúa Framsóknarflokkurinn í Reykjanesbæ hefur brugðið á það ráð að bjóða upp á viðtalstíma með Eysteini Jónssyni, bæjarfull- trúa Framsóknarflokksins fyrir A-listann. Viðtalstím- arnir eru alla fimmtudaga frá 10-12 í félagsheimili Framsókn- arflokksins að Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ. „Við teljum að það sé nauðsyn- legt að gefa fólki tækifæri til að koma sínum hugðarefnum að þeim sem eru kjörnir fulltrúar þeirra,” sagði Eysteinn Jónsson. Fyrstu viðtölin eru á morgun en hægt er að panta viðtalstíma á heimasíðu Framsóknarflokksins í Reykjaensbæ, www.xbreykja- nesbaer.is. Fyrir þá sem ekki hafa aðgang að tölvu er hægt að hringja í Eystein í síma 864 0807 og panta tíma. Fjölnota íþróttahús boðið út í Grindavík Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt að fela bæjarverkfræð- ingi Grindavíkur að bjóða út fjölnota íþróttahús sem er að stærð um 50 x 70 metrar og staðsett verði austan stúku- byggingar. Boðið verður út möguleiki á dúk húsi og úr varanlegra efni. Gert verði ráð fyrir salernisað- stöðu við húsið og húsið verði upphitað. Fyrir liggur stuðningsyfirlýsing stjórnar knattspyrnudeildar UMFG vegna slíks húss austan við stúkubyggingu,segir í fund- argerð bæjarráðs Grindavíkur. ' 1820 íbúðir í byggingu Fréttir herma að farið sé að hægjast um á byggingamarkaði en ekki aldeilis í Reykjanesbæ, eins og þetta skilti ber með sér. Hér er þó ekki allt sem sýnist því einhver hefur tekið sig til og bætt tölunni einum fyrir framan töluna 820. Annað hvort upp á grínið eða til að gefa til kynna að hátt í eitt þúsund íbúðir eru nú mannlausar á Keflavíkurflugvelli eftir að herinn fór. Fullyrt hefur verið að þær íbúðir fari ekki á almennan markað. Vörugeymsla til sölu Til sölu er vörugeymsla að Fitjabraut 6b, Reykjanesbæ. Um er að ræða braggalagað stálgrindahús byggt 1941, stærð 330m2. Stærð lóðar er 5.558m2. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar í síma 894 0103. VÍKURFRÉTTIR Á NETÍNU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! M | VÍKURFRÉTTIR ^ 41. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.